20.04.2013 21:20
Kapphlaup, hönnun og andlegir erfiðleikar.
Það fylgir búhokrinu að sífellt er verið í kapphlaupi við tímann og árstíðirnar.
Mörgum reynist betra að koma skítnum á túnin fyrir sláttinn og heyja svo áður en vetrar, og svona mætti lengi telja. Þegar slæmt tíðarfar kemur til viðbótar seinfærum bændum í kapphlaupinu fer svo allt í klessu.
Nú lítur út fyrir að vorverkunum seinki aðeins vegna vöntunar á vorblíðu ,en sumt verður ekki stoppað hvorki með góðu eða illu.
Svo maður er kominn í endurhæfingu með hamarinn og sögina og að sjálfsögðu í kapphlaupi við tímann, Því sauðburðurinn er farinn að tikka óÞyrmilega hinumegin við hornið.

Hundatamningum var snarhætt, hreinsað útúr " tamningarhöllinni " og farið á fullt í að hanna og koma upp sauðburðaraðstöðu.

Þar verður stefnt á að setja upp um 20 einstaklingstíur og síðan hópstíur ásamt fóðrunaraðstöðu, Þannig að puðið verði lágmarkað í törninni miklu.
Það er svo grundvallaratrið í málinu að uppsetningin verði einföld og látlaus og lítið mál verði í framtíðinni að taka Þetta niður og setja upp, ef svo skyldi fara að sauðburður skyldi bresta á að ári.
Og fyrirferðin á draslinu verði sem allra minnst á geymslutímanum.
Hönnunin er svo eins og fyrri daginn öll á harða diskinum svo drjúgur hluti af deginum fer náttúrulega í að hugsa.
Og Því er nú fjandans verr að sumir eiga erfiðara með Það en aðrir.
Skrifað af svanur
13.04.2013 08:51
Fótsnyrtir, harðindi og húllumhæ.
Ekki er hægt að halda öðru fram en veturinn hafi farið mildum höndum um okkur sem Þreyjum Þorrann og Góuna á sunnanverðu Nesinu.
En Þessa dagana eru samt helv. harðindi , alhvítt , kalt og skafrenningsÞvælingur annað slagið.
Sem betur fer var aðalútfallinu lokið í hundatamningum og snjórinn heldur frostinu frá frekari niðurgöngu í akurlendið.
Og kuldinn!! Jaaa Það hlýtur að fara að hlýna fljótlega.

Fótsnyrtirinn var svo á ferðinni á miðvikudaginn með tilheyrandi skelfingum fyrir værukæra bændurna og vesalings kýrnar. Klaufskurðardótið er að svínvirka, fljótlegt að henda Því upp og fjarlægja á eftir.

Í fyrstu skiptin urðu ansi marga haltar eftir klaufskurðinn, árleg meðhöndlun breytti Þvi en samt urðu tvær haltar í Þetta sinn sem er tveimur of mikið.

Það var byrjað á Þessu eftir morgunmjaltir og tímaáætlunin stóðst nánast uppá mín. hjá mér. Síðasta kýrin í gegn rétt fyrir kl.11.

Snjósleðinn fékk svo loksins að snúast smá, sem var orðið mjög brýnt bæði mín vegna og hans.
Og kannski er ekki séð fyrir endann á Því ef helgin nýtist rétt.

Já, og kannski tæpir tveir annasamir mánuðir í Þetta húllumhæ .

07.04.2013 09:07
Tamningarslútt og hundabrask.
Nú eru rétt um tveir mánuðir síðan tamningarnar voru settar í fluggírinn.
Þá var stefnan sett á að loka sjoppunni um 10 apríl, í a.m.k. 2 mánuði.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum er undirritaður með eindæmum skipulagslaus. latur og kærulaus og nefndu Það bara.
En Þrátt fyrir Þessa annmarka hefur bókstaflega allt gengið upp og reyndar framar björtustu vonum, í málaflokknum.
Síðustu tveir nemendurnir munu yfirgefa svæðið um næstu helgi, sem er innan skekkjumarka með tilliti til ofanritaðs.
Rennslið gegnum stöðina hefur verið hraðar en reiknað var með og má segja að tekist hafi að hreinsa upp biðlistann sem reyndar var búinn að vera lokaður smá tíma.
Það hjálpaði að vísu aðeins til að ekki voru allir tilbúnir í námið.

Þessi aðstaða skipti sköpum, Því Það var ekki nóg með hægt væri að temja alla daga, heldur stytti hún grunnvinnuna verulega og t.d. var erfiðasti byrjandinn tilbúinn til útivinnu eftir 5 daga.
Það að vera tilbúinn í útivinnu Þýðir hjá mér að hægt sé að vinna með hundinn á stóru opnu túni án nokkurs aðhalds. Hann sé fær um að halda hópnum saman og kominn með smáhugmynd um hvað helstu skipanirnar Þýða.

Þessi gamla mynd sem tekin var uppá grínið sýnir tamda og lítið tamda sem voru komnir Þetta langt í fræðunum.
Tamningatíminn á einstaklingunum var misjafn, frá einni viku og uppí tvo mánuði.
Mér sýnist að fyrir Þann sem er kannski ekki Þaulvanur tamningu en vill samt temja sjálfur, sé býsna góð fjárfesting að kaupa hjá mér viku tamningu og fá síðan leiðsögn með framhaldið. Hundurinn ætti í flestu tilvikum að vera kominn á beinu brautina og tímasparnaður eigandans yrði meiri en ég Þori að nefna hér.
Og kostnaðurinn yrði svona eins og dagsnámskeið í faginu.

Þessar eru að skoða sig um fyrsta morguninn á nýjum stað. Sú sem er búin að átta sig á að Þarna er eitthvað áhugavert innan dyra er tveggja ára gömul.sáralítið tamin en samt aðeins tekin í vinnu.
Hún var að falla á tíma/aldri og eigandinn búinn að átta sig á að hann myndi ekki temja hana af neinu viti.
Til að geta komið henni í gegn hjá mér með mánaðarprógrammi var hún tekin í tíma tvisvar á dag og eigandinn fær í hendurnar aftur skemmtilegan fjárhund sem hann getur farið með beint í kindavinnu eftir að Þau hafa stillt saman strengi sína.
Þessu fylgir síðan ýmisskonar umsýsla og alltaf koma reglulega fyrirspurnir um grunntaminn hund til kaups.
Núna eru til dæmis Þrjár tíkur á mínum vegum eða hliðarvegum í reynsluvist hjá slíkum fyrirspyrjendum. Ég legg alltaf mikið uppúr Því við sölu á tömdum eða grunntömdum hundum að væntanlegur eigandi sé helst fullkomlega sáttur við kaupin áður en málinu er lokað.
Ég er hinsvegar ábyrgur gagnvart hundinum með að heimilið sem honum sé ætlað til frambúðar, sé ásættanlegt fyrir hann.
Það er ekki alltaf einfalt mál.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334