Færslur: 2012 Desember

31.12.2012 15:41

Norðanhvellur og áramótasmal.

 


 Það skiptir litlu hvaða tegund náttúruhamfara angrar okkur skerbúa, þær sýna okkur allar hversu lítil við erum þegar á reynir. Þó slæmt veður setji allt úr skorðum gengur það þó yfir á einhverjum og oftast tiltölulegu skömmum tíma á meðan t.d. eldgos reyna verulega á þolrifin.

 Norðan hvellurinn nú náði  ekki sömu hæðum hér og sá í nóvemberbyrjun, sá  var nú reyndar með þeim ítækari í nokkur ár. Reyndar náði þessi  sér því betur upp sem vestar dró á Nesinu.

En þessir helv. rokhvellir eru samt alltaf hundleiðinlegir.

 Hér hékk rafmagnið að mestu inni og  varastöðin sem er alltaf til taks er sem betur fer sjaldan notuð síðustu árin.

Það hefur ekki gert almennilegan snjóbyl hér það sem af er vetri og þó maður þjáist  með þeim sem fá mjög ríkulega úthlutun af slíkri óáran þennan veturinn er þeim engin hjálp í því. 

 Það er fastur liður hér í púkki með Hestamiðstöðinni í Söðulsholti, að bjarga hrossum í aðhald fyrir ólæti síðasta kvölds ársins og svo er enn, þrátt fyrir skítaveður.



 Það var rekið inn úr þremur hólfum.



 Eftir nákvæmar vísindalegar rannsóknir á einni umferðaræðinni var ekki lagt í að taka inn úr  fjórða hólfinu en farið verður í sértækar aðgerðir með hrossin þar, fyrir kvöldið.



  Þarna munu þessi eyða nóttinni í upplýstu hólfinu og trúlega róandi músík í eyrunum.

Og nú sér fyrir endann á barnsburðarleyfi tamningarfólks og fyrstu hrossin verða tekin inn á morgun í Hestamiðstöðinni.

 

28.12.2012 08:31

Rörtengur, sleggjur og tölvufídusar

 Stundum lítur maður um öxl og sér þá gjarnan hlutina í vandamálalausum hillingum.

Lífið var einfalt, ef dráttarvélarnar fengu olíuna sína áður en tankurinn tæmdist gengu þær. Það var skipt um smur og koppar smurðir svona eftir hentugleikum kannski árlega .

 Ef eitthvað bilaði komu skiptilykillinn og rörtöngin sér vel og sleggjan og meitillinn ef þau dugðu ekki.

 Nú er öldin önnur, þægindin komin úr öllu hófi og skiptilykillinn og rörtöngin ryðga uppá vegg. Nú eru það rafmagnsfídusarnir sem gera manni lífið leitt milli þess sem þeir virka.

Ekkert tæki til sem ekki er búið tölvum í bak og fyrir og ýti maður á vitlausan takka er allt komið í botnlausar skelfingar,

 Ein af þessum tölvuvæddu græjum er mjaltabásinn sem verður að skila sínu tvisvar á sólarhring allan ársins hring.



 Þetta fyrirbæri er í mjaltabásnum og um leið og kýrin kemur í básinn kemur númerið hennar fram á skjánum og þar getur maður kallað fram allar upplýsingar um hana ef vill. Nythæð er skráð sjálfvirkt inn ásamt mjaltahraða og ef hún er á lyfjameðferð eða á ekki að mjólkast saman við, sér græjan um það að ekki er hægt að setja tækið á  kúna o sv. frv.

 Þessi  8 ár sem mjaltabásinn hefur verið í notkun held ég að einungis einu sinni hafi þurft að brenna í bæinn eftir varadælu svo hægt væri að ljúka mjöltum.



Til að tryggja öryggið sem best er þjónustuaðilinn fenginn einu sinni á ári að yfirfara allt dótið og þar er sett upp og haldið utanum prógramm sem tryggir viðhaldskerfið eins vel og hægt er.

 Því það er ekki nóg að básinn gangi sína 365 daga á ári heldur verður allt að virka rétt svo spenar og júgur verði sem mest til friðs.



 Þjónustugengið frá Jötunn Vélum mætti í gær og þó þetta árið væri ekki um " stóra " yfirhalningu að ræða rétt entist dagurinn þeim í verkið.



 Og þegar allt gengur smurt er bara býsna gott að byrja daginn á þessum vinnustað.
 
En  kaupið mætti auðvitað vera hærra og frídagarnir fleiri.

22.12.2012 20:58

Jólagjöfin þetta árið!!!

 Góðir hlutir gerast hægt.

 Þó stressleysið í framkvæmdum Dalsmynnisbænda sé orðið algjört er samt verið að vinna sig niður forgangslistann hægt og sígandi.

 Þó gjafaaðstaðan eins og hún hefur verið síðan féð var tekið inn hefði þótt afbragðsfín fyrir ekki svo löngu er hún alls ótæk í dag.



 Þegar átti að fjárfesta í rúlluklónni neðan í hlaupaköttinn var hún í fyrsta lagi ekki til.
Í öðru lagi átti hún að kosta 60.000 kall.

 Þetta mál fór ekki einu sinni í nefnd , heldur var ákveðið að smíða rúlluklóna þegar tími gæfist.

 Nú hefur hjólbörunum verið lagt í bili og tæknin verið tekin í vinnu.

Fyrir alla meðaljóna í sauðfjárbúskap er þessi tækni velþekkt svo þeir þurfa ekki að lesa lengra. Þið hin sem haldið að heyið sé borið í fanginu fram á jöturnar ættuð að halda lestrinum áfram.



 Það er komið með rúlluna inn í vinnuaðstöðuna og skorið aðeins ofan í hana með rúlluhnífnum.



 Rúlluklóin góða ( þessi a la Atli Sveinn) er sett utanum um belginn á henni þar sem hún læsir sig fasta við hífingu.
 Hlaupakötturinn/talían kemur henni síðan í gjafagrindina þar sem plast og net er fjarlægt og þar sem búið er að skera ofaní rúlluna er auðvelt að jafna henni út í grindinni.



 Síðan eru borðin í hliðum grindarinnar hækkuð eftir því sem heyið lækkar.



 Þessi mynd er tekin 4 tímum eftir áfyllinguna í dag og efsta fjölin komin upp að vísu óþarflega snemma. Nú er átið farið að jafna sig og gjafagrindin mun ekki verða fullsetin aftur fyrr en næst verður gefið. Kannski seint á jóladag eða annan í jólum.

Já , þetta var semsagt jólagjöfin í ár. 


 
Flettingar í dag: 44
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 278
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 413398
Samtals gestir: 37118
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 04:27:46
clockhere