13.04.2013 08:51

Fótsnyrtir, harðindi og húllumhæ.

 Ekki er hægt að halda öðru fram en veturinn hafi farið mildum höndum um okkur sem Þreyjum Þorrann og Góuna á sunnanverðu Nesinu.

 En Þessa dagana eru samt helv. harðindi , alhvítt , kalt og skafrenningsÞvælingur annað slagið.
 Sem betur fer var aðalútfallinu lokið í hundatamningum og snjórinn heldur frostinu frá frekari niðurgöngu í akurlendið.

 Og kuldinn!! Jaaa Það hlýtur að fara að hlýna fljótlega.





 Fótsnyrtirinn var svo á ferðinni á miðvikudaginn með tilheyrandi skelfingum fyrir værukæra bændurna og vesalings kýrnar.  Klaufskurðardótið er að svínvirka, fljótlegt að henda Því upp og fjarlægja á eftir. 

 

Í fyrstu skiptin urðu ansi marga haltar eftir klaufskurðinn,  árleg meðhöndlun breytti Þvi en samt urðu tvær haltar í Þetta sinn sem er tveimur of mikið.



 Það var byrjað á Þessu eftir morgunmjaltir og tímaáætlunin stóðst nánast uppá mín. hjá mér. Síðasta kýrin í gegn rétt fyrir kl.11.



 Snjósleðinn fékk svo loksins að snúast smá, sem var orðið mjög brýnt bæði mín vegna og hans.
Og kannski er ekki séð fyrir endann á Því ef helgin nýtist rétt.



 
Já, og kannski tæpir tveir annasamir mánuðir í  Þetta húllumhæ .
Flettingar í dag: 439
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 363
Gestir í gær: 34
Samtals flettingar: 422835
Samtals gestir: 38528
Tölur uppfærðar: 3.5.2024 06:59:00
clockhere