09.11.2008 20:09

Annasöm helgi.


  Það er nokkuð ljóst að helgarnar eru alltof fáar og ótrúlegt hvað allskonar verkefni hlaðast á þær.

  Yngri bóndinn brá sér með mági sínum vestur/norður í Bitrufjörð í gær að elta hænsfugla upp um fjöll og hálsa.


Þar hlýtur að hafa verið krökkt af fugli því 24 lágu eftir daginn. Þar bættist að vísu sá þriðji í hópinn svo 10 fugla kvótinn var ekki fylltur.
  Þó þessar séu í felulitunum voru það ekki þær, heldur frænkur þeirra sem lenti í eldlínunni í gær.

  Meðan  þeir soguðu að sér tært fjallaloftið mátti ég dunda mér við að hræra upp í aðalhaughúsi búgarðssins og það var býsna fátt sem minnti á hreinleika fjallanna í því starfi.

  Já nú er stress í gangi að tæma haughús fyrir veturinn. Ef það tekst, eiga þau síðan að duga fyrir úrgang búpeningsins fram á vor en þá endurtekur stressið sig, með að koma mykjunni á túnin á réttum tíma. Og nú er búfjáráburðurinn alltíeinu orðinn mikils virði og mikilvægt að hann komist á tún á hárréttum tíma á vorin.
  Í dag var síðan valsað bygg fyrir næstu 2 vikur( yngri bóndinn) og sóttur 15 tonna mykjudreifari suður í Borgarfjörð (ég) sem leigður er í verkið. 
Smalahundakeppnin sem átti að vera hjá mér í dag, frestaðist (eða féll niður) og mann bæði sveið og klæjaði, með þær málalyktir.

  Það verður síðan tekið rækilega á því á morgun og mikil peningalykt í loftinu.emoticon

08.11.2008 20:11

" Dulin verðmæti."


  Já, það var erfiður dagur hjá okkur feðgunum þegar við tókum á okkur rögg og fórum í stórtiltekt í vélageymslunni.
  Þegar vélageymslan og verkstæðið var byggt fyrir um 15 árum fannst mér þetta vel ílagt og trúði því að meðfædd framsýni og spádómshæfileikar sæju til þess að þetta myndi nú duga  mér út búskapinn. Nú er staðan sú að sá ofvöxtur sem hljóp í vélar og tæki urðu til þess að dyrnar hefðu þurft að vera metranum hærri og breiðari. Sama á við um vegghæðina. Þrátt fyrir þetta hefur nýtingin á vélageymslunni verið svo góð að ákveðið var að fara gaumgæfilega í gegnum öll dýrmætin sem þar hafa lent í tímans rás og reyna að úrelda endanlega sem mest.
 Þarna kom satt að segja margt fróðlegt í ljós og ljóst varð, að kannski hefði húsnæðið betur verið nýtt í upphaflegan tilgangi þess heldur en að gera það að heimildarsafni um genginn vélaflota.

 Viðhorfin hjá okkur feðgunum voru svo nokkuð ólík til þessarra verðmæta. Ég hafði nokkrar taugar til þess sem hinn leit á sem algjört drasl, meðan hann handlék afganginn úr bílasmíðinni í vetur með tregablöndnu augnaráði. Já sem betur fer var stutt í járnagáminn.

 Þegar við náðum svo inn í hornið hægra megin í skemmunni komum við að Deutzinum sem þar hafði staðið hreyfingarlaus í 3 ár. Hann er ekki nema 40 ára gamall. Það rifjaðist margt uppfyrir mér þegar hann hrökk í gang rétt eins og honum hefði verið lagt þarna í gær.
 Þessi 40 ha. vél var engin smásmíði þegar hún kom í sveitina og mikið er búið að bjóða henni gegnum tíðina.

    Áburðurinn kominn inn og járna og ruslagámarnir búnir að fá sitt. Gamli minn er nú ekki á leiðinni þangað.

         Þegar ég barmaði mér sáran yfir þessum tjónadegi við nágrannann vottaði ekki fyrir samúð hjá honum.

  
Þrátt fyrir að yngri bóndinn hefði leitt hann í gegnum þessa sömu aðgerð fyrir tveimur dögum og þurft að beita mikilli harðfylgni til að ná ásættanlegum árangri.

  Ég er ekki frá því að hafa goldið þess að núna var vanur maður á ferðinni
.
.emoticon 


      

 

06.11.2008 19:20

Haus- eða ekki haus??


  Það er enginn haus, sagði yngri bóndinn spekingslegur á svipinn.

 Við stóðum yfir kú með kálfssóttina og fæturnir sem sáust, virtust vera hinir eðlilegustu framfætur og þetta væri allt í sómanum. Við nánari athugun reyndist þó rétt að enginn haus fylgdi þessum löppum , enda voru þarna afturfætur á ferðinni og kálfurinn greinilega alveg á hvolfi.

  Þar sem eldri húsmóðirin sér um fæðingarhjálpina  var hún umsvifalaust ræst út, til að stjórna aðgerðum. Hennar sérsvið liggur að vísu í sauðfénu þar sem hún fremur hin ótrúlegustu kraftaverk en þetta er nú allt sama tóbakið, eða þannig.

  Þegar til átti að taka kom upp ágreiningur um hvernig staðið skyldi að því að snúa kálfinum.
Tillagan um að toga og snúa um leið, var ekki keypt og aldursforsetinn kvað uppúr með að hér yrði ekkert gert fyrr en Rúnar dýralæknir væri kominn í hinn endann á símanum.
 Hann var eldsnöggur að átta sig á málinu og kvað umsvifalaust upp með það,  að löppunum yrði ýtt til baka eins og hægt væri, kálfinum snúið og svo afturábak út með hann.

 Tíu mínútum seinna var svo eldsprækur nautkálfur kominn í heiminn. Þetta ætlar að verða nautkálfaár í ár, þarsem meiripartur kálfanna er naut. Í fyrra var það á hinn veginn.

 Þar sem ég læt ekkert tækifæri ónotað að bögga þann yngri með þessum kúastofni sem ég er neyddur til að búa við, benti ég honum á að sú nýborna væri hvort sem er með ótækt júgur og spenalag til að nota til undaneldis. Ég sleppti því þó að bæta  við,  að það ætti nú reyndar við flestar kýrnar á skerinu, okkar og annarra.

 Uss suss suss, best að hætta sér ekki í þessa umræðu.emoticon
Flettingar í dag: 327
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 1149
Gestir í gær: 139
Samtals flettingar: 435009
Samtals gestir: 40170
Tölur uppfærðar: 11.5.2024 09:05:19
clockhere