11.04.2010 21:37
Árshátíð sauðfjárbænda.*****
Þrátt fyrir háan aldur og nokkra skemmtanafíkn hef ég aldrei haft mig í að sitja árshátíð okkar sauðfjárbænda.
Nú var bætt úr því og borg óttans sótt heim á föstudag og árhátíðin setin um kvöldið.
Þetta var reyndar 25 ára afmælishátíð.
Já aldarfjórðungur síðan Jói á Höfðabrekku lagði undir sig landið og miðin og hóaði sauðfjárbændum saman í breiðfylkingu.
Þetta var annars frábær hátíð og fær 5 stjörnur af 5 mögulegum.
Guðni Ágústs. stóð sig frábærlega sem veislustjóri. Greinilega góður í því!
Maturinn var með því besta sem ég hef kynnst og skemmtiatriðin voru vægast sagt hvert öðru betra.
Eina sem skyggði á þetta, var að það varð býsna notalegt í Súlnasalnum og væri full þörf á því að Snorri Sigurðs. endurhannaði loftræstinguna í þessu húsnæði okkar bændanna.
Þarna hitti ég alveg aragrúa af liði sem ég þekkti misvel.
Svona eftir á að hyggja uppgötvaði ég hinsvegar það, að umræðuefnið við þessa vini og kunningja þessa kvöldstund, á milli þess sem ég sinnti minni heittelskuðu, var hundar.
Það var eiginlega nokkuð sama hvar ég settist eða hverjir settust hjá mér alltaf endaði umræðan með ýmsum tilbrigðum um hundamál.
Svosem ágætis umræðuefni.
Ég hefði alveg getað selt nokkra tamda hunda þessa kvöldstund eða bókað á eitt til tvö námskeið en það var hvorugt í boði.
Það er þó rétt að taka fram að við Ari á Hrísum minntumst ekkert á hunda og ekki við Aðalsteinn á Vaðbrekku heldur.
Í hvert skipti sem ég hitti Aðalstein ítreka ég við hann gamalt loforð um að gæda mig á hreindýraveiðar.
Hann trúði mér held ég ekki, þegar ég sagði honum að ég hefði sleppt tarfi sem mér var úthlutað á heiðina hjá honum fyrir 3 árum.
Ég fullvissaði hann hinsvegar um að nú myndi ég sækja um árlega þar til ég fengi tarf aftur, því við þyrftum að klára þetta áður en við verðum " gamlir".
Hvað sem hreindýraveiðun líður held ég að það yrði mikil upplifun að eyða einum til tveim dögum með þessum sagnaþul og fjallamanni á heiðinni hans.
En árshátíðin var semsagt alveg rosalega fín og það sást ekki nokkur einasti maður sauðdrukkinn.
Að vísu voru vinir mínir á Austurbakkanum ekki sjáanlegir í morgunkaffinu þegar við yfirgáfum morgunverðinn um tíuleitið á laugardagsmorguninn.
Enda klukkan ekki orðin hálfellefu.
Myndir af hátíðinni hér .

Skrifað af svanur
09.04.2010 07:56
Mjólkurflutningarnir á Nesinu.
Eins lengi og elstu menn muna hefur mjólkin á norðanverðu Snæfellsnesi verið flutt inn í Búðardal.
Þar hafa miklir snillingar tekið við henni gegnum tíðina og verið góðir í að framleiða allskonar sérvöru sem hefur virkað vel eða mjög vel í sölunni.
En allt er breytingum undirorpið, ekki síst í sveitinni og nú er norðanmjólkinni smalað saman með okkar mjólk sem enn erum að berjast við þetta hér sunnanfjalls. Og nú lendir hún á Selfossi til að byrja með.

Á mánudögum er bætt um betur í flutningsgetunni og mætt með þriggja hásinga aftanívagn.
Það er orðið talsvert síðan sex hjóla Maninn þjónustaði okkur og eins gott að ekki sé þröngt fyrir dyrum þegar þetta flutningatæki birtist á hlaðinu.
Það hafa verið algjör álög á okkur,að hér hefur hver öðlingsbílstjórinn tekið við af öðrum allt frá því að Siggi Brynka þjónustaði hér á öndverðri síðustu öld. Það er reyndar svo langt síðan hann var, að ég man trúlega ekki eftir honum nema í gegnum sögusagnir.

Hann Sveinn Pétursson fellur ákaflega vel inn í þennan hóp öðlinga en vinnutíminn hjá honum lengdist um 1.5 klst. við þessa breytingu , þrátt fyrir að létt væri á svæðinu að sunnanverðu.
Þeir bæir sem enn eru í mjólkurframleiðslu að norðanverðu eru Arnarstaðir og Hraunháls í Helgafellsveit. Í Grundarfirði eru síðan eftir 4 bæir , Kolgrafir. Eiði, Naust og Nýjabúð.
Svo er bara að vona að þessi breyting bendi ekki til þess að tekið sé að fjara undan samlaginu í Búðardal, því grannar mínir í Dölunum mega ekki við því að missa það.

06.04.2010 22:55
Hundarnir í heimavinnunni.
Stundum hitti ég fólk sem segir mér það í fyllstu einlægni að það borgi sig ekkert að vera að leggja vinnu í að temja hunda til að nota þá í kindavinnu.
Þetta séu hvort sem er ekki nema örfáir dagar á ári sem verið sé að nota þá.
Ég virði að sjálfsögðu þessar skoðanir enda er ég löngu hættur að boða fagnaðarerindið í þessum efnum, til vantrúaðra.
Ég kom einu sinni til dansks fjárbónda sem m.a. sýndi okkur lömb í innifóðrun sem áttu að fara í slátrun fljótlega.
Hann sagði okkur það, að flutningabíllinn sem flytti lömbin, væri á tímakaupi og því væri brýnt að það gengi hratt að lesta bílinn. Danskir bændur voru þá löngu búnir að læra það sem margir íslenskir kollegar þeirra eiga eftir tileinka sér, að fara vel með peningana sína.
Sá danski átti tvo hunda og þeir sáu um að koma lömbunum hratt og örugglega á bílinn.
Mér þótti það dálítið merkilegt að þessi hagsýni bóndi keypti hundana fulltamda. Annan þeirra sem hann átti þá, fékk hann í Hollandi en hinn var breskur.
Ég er hinsvegar eins og sá danski að nota hundana mína nokkuð marga daga á ári.

Hér sjá Assa og Vaskur um að halda lömbunum að rekstrarganginum.

Hér eru það Snilld og Dáð sem halda kindunum frá rúllugrindinni meðan sett er rúlla í hana fyrir næstu 3 dagana.

Tækifærið er notað til að kenna þeim að troða sér meðfram veggnum inn fyrir kindurnar. Hér vippar Dáð sér yfir en Snilld lendir verr í því.

Hér fara þær vinstra megin inn í hornið hvergi bangnar.

Þessar eru nú ekki á leiðinni upp á sláturbíl en trúlega væru þær stöllurnar snöggar að rusla þeim út með smá hvatningu.

Já, það styttist svo óðfluga í að sauðburður hefjist og þurfi að koma lambfénu niður fyrir veg.
Þá kemur sér vel að hafa aðstoð við að virða biðskylduna.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334