08.04.2012 22:00

Hvolpar til sölu.


 Til sölu hreinræktaðir Border Collie hvolpar sjá . HÉR

05.04.2012 23:55

Ég hét að detta oftar íða/ en ég gerði í fyrravetur.-- Hagyrðingakvöldið í Lyngbrekku.

 Það var Samkór Mýrarmanna sem stóð að meiriháttar hagyrðingakvöldi í Lyngbrekku á föstudagskvöldið.



Að sjálfsögðu byrjuðu þau á að syngja fyrir okkur nokkur lög til að mýkja upp salinn fyrir vísnaveisluna.

 Þarna mættu 6 hagyrðingar hver öðrum snjallari og það fór ekki á milli mála að þau höfðu öll unnið heimavinnuna sína af mikilli natni.

 
 Heimamaðurinn  Þorkell á Mel t.v. Dísa  og Dagbjartur á Hrísum .

Þorkeli var gert að leggja mat á trúverðugleika fjömiðlanna.

                                                                        Sannleikann í fjölmiðlunum mér er skylt að meta
                                                        mæla alla lýgina sem þar á blöðum finnst.
                                                        Hér í þessu partíi ,ég verð þess víst að geta,
                                                        að vísnaþáttur Skessuhornsins lýgur einna minnst.

Og þetta hafði hann um landsdómsmálið að segja.
 

                                                         Ekki langar mig að meir ,
                                                        málið um hér fjöllum.
                                                       Af því að þeir gripu Geir,
                                                       en gleymdu hinum öllum.

Í heimsókn hjá Dísu og Dagbjarti á Hrísum hafði  Þorkell verið rekinn úr húsbóndastólnum í eldhúsinu.

                                                        Firna mikla furðu vekur,
                                                        fyrirtektir þessa manns.
                                                        En á Hrísum enginn tekur,
                                                        að sér skyldur húsbóndans.
                                         

Dísa var  spurð að því afhverju Mýrarmenn væru svona fallegir:  

Mýraeldsins mögnuð leið

má ei falla í gleymsku

íbúunum af hann sveið

útlitsgalla og heimsku.
 

Og hún var spurð um áramótaheitið. 

Því að lofa þykir hlýða

sem þokkalega staðið getur

Ég hét að detta oftar íða

en ég gerði í fyrravetur.

 

Þetta hafði hún um syndirnar að segja.
 

Til að bæta lífsins leik

ljúfu vinir.

syndir mínar efli og eyk

eins og hinir.

 

Þau voru svo spurð að því fyrir hvað þau ættu að hljóta fálkakrossinn ef til þess æmi. 

 

Hýrnar svipur hringaskorðu

halda teiti verð

þegar fæ ég fálkaorðu

fyrir sláturgerð.



 Dagbjartur, Helgi snillingur á Snartarstöðum og séra Hjálmar Jónsson. 


 Sjálfslýsing Dagbjarts á sér og bifreiðakostinum.


Ljótur kall með lágu risi

ljóðin spjallar feginn um

Á móðugráum Mitsubisi

mjakast eftir veginum


Mér í ljóðum tala tem

og talsvert yfir voma

en það er afar sjaldan sem

svona vísur koma.

Og þetta hafði Dagbjartur um félaga sína við háborðið að segja.

 

Dísa

 

Þó hún hafi grálynt geð

gleddist hún með sanni

ef hún bara byggi með

bærilegum manni.

Jón Ingvar

Ég þekki lítið þennan mann

og því má alveg trúa

en eitt er víst að uppá hann

er engu hægt að ljúga.

Um Séra Hjálmar

 

Séranum er syndafátt

samt er grátt í lokknum

þó hann hafi áður átt

athvarf sitt í Flokknum.


Séra klerkur kom hér fyrstur

Kátt var dýrið

Hvort sem  Óðinn eða Kristur

er við stýrið.



 

Helgi. ( Dagbjartur hafði áhyggjur af því að líklega hefði hann nú farið of illa með Helga í gegnum tíðina)

Allt mitt níð er illt að toppa

sem átti þó að heita grín

ég er orðinn uppiskroppa

og ætti kannske að skammast mín.

Sært ég hefi sómamann

sannleiksgildin hliðrast.

Samt er fyrir sannleikann

sárt að þurfa að iðrast.

 Dagbjartur spáði í framhald samskipta þingeyinga og kínverjans Nubo sem vildi kaupa Grímsstaði á Fjöllum ?

Nupo vill með náðarausu

nema land en fátt er tryggt.

Þetta  er allt í lofti lausu

og líkast til á sandi byggt

Úr hvað syndum telurðu brýnast að draga, bæði hjá sjálfum þér og eftir atvikum hjá öðrum þátttakendum ?

Hjá hinum flest má fegra og laga

og færa margt til betri vegar

En úr mínum ekkert draga

Þær eru fjandi skemmtilegar



                   
Segjum sem svo að þið fengjuð tilkynningu á morgun þess efnis að ykkur hefði verið veittur Riddarakross hinnar Íslensku Fálkaorðu. Fyrir hvaða eiginleika/afrek teljið þið líklegast að það myndi vera ?


Óli festir á mig strax

Orðukrossamyndir.

Fyrir leti og lúðabaks

lesti mína og syndir

 

 


Jón Ingvar Jónsson lagði sitthvað til málanna.



 

 Kynning á sjálfum sér.

 

Ég telst líkur Agli enn,

alltaf snar í svörum

og báðir drjúgir drykkjumenn

sem drjúpa ljóð af vörum.

 

Og Jón Ingvar á hvorki bíl né hest

 

Staða mín er kröpp og klén,

kjörin bágu svíða,

konan hirti kaggann en

ég kann bar'ekk'að ríða.

 
      
 Um félaga sína á sviðinu

 

Fólkið hér er flest í reynd

fullt af hjartagæsku

og samanlagt með sömu greind

sem ég hafði í æsku.

 

Helgi Björnsson

 

Helgi Snart með rugl og raus

að rekkum hart nú vegur;

er með svarta sál í haus

og sjaldan artarlegur.

 

Þórdís Sigurbjörnsdóttir

 

Hagyrðingar hneggja og frísa

og hárin rísa

því hér er komin Hrísa-Dísa

hörkusvísa.

 

Dagbjartur Dagbjartsson

 

Um Dagbjart vil ég þegja því

það er ljóst hér inni,

hann fékk víst bara að fara í

fylgd með konu sinni.

 

Og Hjálmar fékk sinn skerf. 

Um trúmál vil ég tæpast ræða,

tel það reyndar best,

en almáttugur en sú mæða

að eiga svona prest.

 

Þorkell Guðbrandsson (tilvist hans var Jóni áður ókunn)

 

Óvit mitt ég ekki dyl,

eins því Þorkel spyrja vil

og hann gerir eflaust skil:

ertu virkilega til?

 

 

Svo kom fram að Hjálmar er búinn að fá Fálkaorðu:

 

Aldrei hefur Hjálmar bleytt

hendi en vel þó gengið

og orðu fyrir ekki neitt

einu sinni fengið.

 

      

        Ekki var komið að tómum kofunum hjá  Hjálmari.

         Jón Ingvar hafði líkt sér við Egil á Borg:

 Sá er af silfri ríkur
og sýpur á vínum,
svartur, ljótur og líkur
langfeðgum sínum.
.

Þetta hafði Hjálmar að segja um eigin syndir.

Syndgað er í erg og gríð
í óteljandi myndum.
Ó, mér stendur alla tíð
ógn af mínum syndum.

Spurt var um hvernig erlendum sendimanni hefði litist á Jón Gnarr og Jóhönnu:

Andlitin voru stíf og strekkt

þá stund er vér þar áðum

og samt var eitthvert undarlegt

aulaglott á báðum.


Spurði hvort Dagbjartur yrði ekki miklu sælli ef hann giftist Þórdísi á Hrísum. Dagbjartur svaraði.


  Obbolítið enn ég vinn
í að sinna konum
ég gjökti þetta góði minn
á gömlu réttindonum.

Þó eru ekki stoðir styrkar

Stundum illa til þess fann

Ég spyr hvort hjónavígslan virkar

sem viagra á líkamann.


Og Hjálmar gerð sér mat úr þessu en hnuplaði reyndar  seinnipartinum  frá Reykjavíkurskáldinu.

Þig mun vígslan vafalítið yngja,

vetrardrunga eyðir hennar kraftur,

svo"jafnvel gamlir símastaurar syngja

í sólskininu og verða grænir aftur."

 

Það náðist ekki að festa hendur á Helga  á Snarta en ég geri bara blogg um hann seinna.

Þetta blogg er svo sérstaklega tileinkað Einari vini mínum í Fremri Gufudal sem liggur tjónaður eftir vinnuslys  á Borgarspítalanum
 .

 

   

 

01.04.2012 21:38

Tveggja daga menningarferð í Skagafjörðinn.

 Það var Félag Sauðfjárbænda á Snæfellsnesi sem blés til mikillar ferðar norður í Skagafjörð helgina 24. og 25. mars.


 Þetta varð rúmlega 30 manna hópur en þó veðurblíðan væri einstök næstum alla ferðin sjást nokkrir rigningardropar á þessari mynd sem tekin var í að áliðnum seinni deginum við Staðarskála á heimleið.


 Fyrsta alvörustoppið var í sláturhúsi KS þar sem boðið var uppá dýrindis lambalæri með öllu sem með því á að vera. Þar fengun við fróðlegt spjall um skúri og skin á afurðasölumálunum og óskir um að breyta lítilsháttar til  með ræktunarmarkmiðin. Óskalambið ætti að vera með 1 læri en tvo hryggi og það mætti svo gjarnan vera hauslaust þar sem sviðasala væri nánast hrunin innanlands.



 Þaðan var svo brunað að Hlíðarenda þar sem er nýlegt róbótafjós sem gaman var að skoða. Þar biðu okkar léttar veitingar en í svona ferðum er standandi veisla á hverjum bæ.



 Hér er bygggeymslan en þarna er gefið sýrt bygg í tímastilltum gjafabás.



 Næst lá leiðin að S. Hofdölum en þar skoðuðum við nýleg taðfjárhús sem ég er sérstakur áhugamaður um. Þar eru  50 kindur um hverja gjafagrind og allar milligerðir úr plasteiningum samsettum með galvanhúðuðu tengijárnum..

 Sauðburðaraðstaðan var meðal annars í þessum gám og síðan í vélageymslu sem var innréttuð með stíum fyrir vorvertíðina.



Að lokum var síðan komið við á Varmalæk hjá Birni og Magneu þar sem kíkt var á hross og frábæra aðstöðu.


Dagurinn endað síðan á Bakkaflöt þar sem búið er að byggja upp úrvals þjónustumiðstöð fyrir ferðamenn. Þar var borðaður frábær kvöldmatur, gist og svo beið okkar morgunverður áður en lagt var af stað á ný. Þarna var sundlaug og heitir pottar og bar fyrir langþyrsta ferðamenn og nefndu það bara.



 Nú lá leiðin að Syðra Skörðugili þar sem skoðað var nýuppgert flott hesthús og aðstöðu til að vinna inni með hrossin, ásamt úrvals fjárstofni hjá Elvari og Fjólu.
Féð er annarsvegar í fjárhúsum með steyptu rimlagólfi og hinsvegar á taði í hlöðu.


Þó ég hafi nú komið þarna margoft var hesthúsaðstaðan  ný fyrir mér. Þarna er gamalgróin hrossarækt stunduð ásamt tamningu og þjálfun.


 Eftir að hafa skoðað og spjallað nægju okkar hjá Elvari var farið yfir í  minkabúið þar sem Einar og Ásdís tóku á móti okkur, leiddu okkur í allan sannleika um minkaræktina en nú eru sem betur fer góðir tímar í þessari búgrein. Mjög góðir meira að segja.





 Eftir langt stopp á Skörðugili var haldið að Stóru Gröf Ytri og skoðuð fjárhús. Þarna er féð  í hefðbundnum grindafjárhúsum, á taði í hlöðu og hluti þess liggur síðan við opið í öðrum húsum. Og veisla að sjálfsögðu eins og allstaðar. Þeir sem þurftu á viðgerðarbauk að halda eftir gærkveldið hresstust  nokkuð þarna.


 Nú var haldið að  Keldudal á Hegranesi sem var síðasti viðkomustaðurinn í ferðinni.



Þar er blandað bú, aðallega kúabú en um 150 fjár. Féð er afar vel gert og í gemlingshópnum  hér, er engin með undir 18  stig fyrir læragerð. Keldudalsbændur eru miklir fróðleiksbrunnar um allt sem viðkemur búrekstri og bættu vel í það sem við höfðum innbyrt af skagfirskum vísdómi í ferðinni. 

Fín ferð og takk fyrir mig.

Fyrir þá sem hafa haldið/vonað að ég væri búinn að gefa öll bloggskrif frá mér er rétt að upplýsa að fyrir um 10 dögum hrundi harði diskurinn í tölvunni hjá mér.

 Það tókst þó að ná svo til öllu sem á honum var, en ég hef verið dálítið mikið kærulaus með að taka afrit af því sem inná honum hefur lent gegnum tíðina.

 Svo það er fullt af óskrifuðum bloggum í bakpokanum.
Flettingar í dag: 229
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 219
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 803354
Samtals gestir: 65136
Tölur uppfærðar: 31.3.2025 22:19:28
clockhere