09.03.2015 19:43
Boðberi vondra tíðinda
Er hann þá ekki hreinræktaður spurði pilturinn með ósviknum spurnarhreim í röddinni ?
Jaaa sagði ég, hann getur alveg verið hreinræktaður en ekki til að sækja kindur eða halda saman hóp eins og flestir BC eru ræktaðir til.
Það væri einfaldlega þannig að í tímans rás hefðu ýmsir sveigt útúr þessari ekta fjárhundaræktun, með allskonar ræktunarlínum sem gerðu hundana eigendavænni fyrir þá sem ekki ráða við að temja alvöru ræktunardýr.
Þetta eru kannski rólegar og meðfærilegri týpur en eru ekki að gera nema brot af því sem góðir hundar geta.
Og nú var ég kominn með hálfgerðan fyrirlestrartón í röddina.
Ég hafði nokkrum dögum áður tekið hund frá piltinum til að koma honum aðeins af stað í tamningunni fyrir hann.
Hundurinn átti að vera undan góðum fjárhundum og að sjálfsögðu hreinræktaður.
Þetta var rólegur og meðfærilegur hundur frekar áhugalítill, en var alveg til í að reka féð og hikaði ekkert við að bofsa og gelta svona til að koma þeim á hreyfingu.
Hafði enga takta til að fara fyrir þær eða halda þeim saman. Hann er ekki nema eins og hálfs árs sagði pilturinn, getur hann ekki lagast eitthvað?
Nei sagði ég , og bætti svo við það yrði .þá algjört kraftaverk, en þau geta svosem alltaf gerst.
Reyndar hafði ég kynnt mér bakland hundsins í millitíðinni, fannst það ekki gæfulegt en taldi rétt fara ekki nánar út í þá sálma .
Ég benti svo á að trúlega gæti hundurinn orðið ágætis rekstrahundur. Áhuginn gæti aukist eitthvað við notkun og mér sýndist hann myndi verða ágætlega ákveðinn.
Pilturinn sagðist þá vilja koma sér upp góðum alhliða fjárhundi og vildi ekki eiga nema einn hund.
Það sló á þögn í símanum við þessa yfirlýsingu.
Þetta var hinsvegar ekki í fyrsta sinn og því miður ekki það síðasta sem ég gerðist boðberi vondra tíðinda í málaflokknum.
Sagði piltinum því, að ef hann væri ákveðinn í þessu, myndi ég ráðleggja honum að verða sér úti um " alvöru " velættaðan hvolp.
Þennan gæti hann átt áfram og notað hann við rekstur og ýmislegt heimasnatt þar til hinn kæmist upp. Hann yrði nokkurn veginn sjálftaminn til þess.
Svo vel vildi til að ég vissi af velættuðu goti og vegna þess hvernig málið var vaxið tók ég sénsinn á að benda honum á það.
Náttúrulega með hefðbundnum fyrirvörum um að ekkert væri öruggt í málinu.
Mér líður ennþá svolítið vel inni í mér eftir að pilturinn hringdi í mig fyrir nokkrum dögum.
Var kominn vel áleiðis í að temja hvolpinn sem ég benti honum á og var uppi í skýjunum af ánægju.
Skrifað af svanur
06.03.2015 12:42
Flugarr frá Dalsmynni tekinn út eftir 6 vikna tamningu.
Það hefur verið unnið í fjórum trippum á tamningaraldri fyrir mig í vetur en það yngsta af hrossaeigninni eru tvö á fjórða vetri. Ákvað að hætta þessu ræktunarbrölti en það er spurning hvernig gengur að standa við það.
Í morgun var það fyrsta tekið út eftir 6 vikna tamningu. Flugarr frá Dalsmynni undan Fjólu frá Árbæ og Fláka frá Blesastöðum.
Örstutt myndbrot. Hér
Hæstánægður með stöðuna á honum og enn kátari með umsögnina sem fylgdi honum.
Nú fer Flugarr í ótímasett frí og ég læt mig hlakka til að sjá árangurinn hjá hinum þegar þeirra áfanga lýkur.
Skrifað af svanur
19.02.2015 21:18
Jólapakkar og aðrir pakkar.
Það er enn meira spennandi en að opna jólapakkana, að vera viðstaddur þegar fóstrin eru talin af mikilli nákvæmni í kindahjörðinni.
Sérstaklega þegar útkoman stenst væntingar.
Nú er talningu lokið og það voru veturgömlu kindurnar eða tvævetlurnar sem voru undir væntingum með frjósemina.
15 nóv. var fullorðna féð tekið inn og rúið.
Þær eru alltaf lotteríið í hjörðinni ásamt því hversu margir gemlingar eru með tveimur. En frjósemin hjá þeim hefur verið langt utan vinsældarmarka árum saman. Tvílembuhlutfallið meira að segja verið í stöðugri aukningu milli ára.
Já, niðurstaðan var semsagt sú að það eru 194 lömb á hverjar hundrað af því fullorðna. Tvær tómar ,14 einlembur og tíu þrílembdar. Af einlembunum voru 9 veturgamlar sem er verulega í slakari kantinum.
Næstum malandi af ánægju á taðinu
Tvævetlurnar eru mun viðkvæmari fyrir haustfóðruninni en þær fullorðnu
trúle ga vegna þess að þær eru undantekningarlaust að skila miklum afurðum gemlingssárið. 18 kg + meðalvigt algeng og þeim fer síðan alltaf fjölgandi sem ekki tekst að venja undan annan tvílembinginn.
Gemlingarnir gúffa í sig bygginu því nú þarf að ná upp þroskanum fyrir vorið.
Útkoman á gemlingunum var hinsvegar afbragðsgóð. Að vísu voru 4 tómir sem er 4 of mikið, en það sem kætti mig verulega var að einungis tveir þeirra voru tvílembdir
Algjörlega frábært.
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334