05.04.2010 20:01
Annríki,stóðhestar og pínulítið væl.
Þetta er búin að vera annasöm helgi þrátt fyrir allan heilagleika.
Það var laugardagurinn sem toppaði hana, en þá var rúllað austur á Hellu að kíkja á sunnlenska stóðhesta sem léku listir sínar í Rangárhöllinni.
Þetta var hreint út sagt alveg frábært og meira að segja ég sem hef takmarkað vit á góðum hestum, var farinn að grípa andann á lofti á hárréttum augnablikum.
Ég passa mig nú á því að nefna engin nöfn né birta myndir í þetta sinn, enda var það m.a. tilgangur ferðarinnar að sjá út hesta fyrir nokkrar merar og síðan að skoða hvort þarna ræki á fjörur hestamiðstöðvarfólks " nothæfan " undaneldisgrip til notkunar í aðalgirðinguna okkar.
Eftir nokkrar pælingar á vesturleið var ekki beðið boðanna heldur hringt í allar áttir á leiðinni.
Það voru bókaðar nokkrar hryssur og síðan komið af stað þreifingum í stóðhestahaldi sem spennandi verður að vita hvort gengur upp.
Einhverra hluta vegna bitnar það á mér, aulanum í hópnum að sjá um stóðhestaprúttið í girðinguna, en ef að tekst að landa því er ég næstum laus allra mála um framhaldið.
En ég sem var alveg hættur allri hrossarækt mun hugsanlega halda 3 og 1/2 meri í sumar, svo það er eins gott að sölukerfið haldi áfram að blómstra hjá hestamiðstöðinni eins og það gerir í dag.
Já, og ef orð standa hjá sunnlendingum munu a.m.k. tvær þeirra verða hjá einum enn áhugaverðari en hinir þessir áhugaverðu eru.
Það verður svo bara að viðurkennast, að þetta er bras sem ekki er leiðinlegt að standa í.
Já vælið í fyrirsögninni er um alveg skelfilegt kvef sem hefur þjakað mig óspart um helgina.
Þar sem ég hef ekki mátt vera að því að verða jafn hroðalega veikur og full ástæða er til má reikna með nú geti ég loksins farið að vorkenna mér og væla dálítið.
Það er samt nokkur ástæða til að óttast það að erfitt verði að vekja þá samúð á heimilinu sem eðlileg væri í svona skelfingum.

Skrifað af svanur
02.04.2010 21:06
Skuggi frá Litla Hrauni og tvær gamlar vísur.
Það var vel uppúr miðri síðustu öld sem faðir minn keypti gráa hryssu af systur sinni sem þá hafði brugðið búi á Litla Hrauni í Kolbeinstaðarhrepp.
Sú gráa var keypt til afsláttar en henni fylgdi í kaupunum veturgamall foli sem gekk undir henni.
Þetta var dökkjarpur stór og fallegur gripur undan Nökkva frá Hólmi.
Eitthvað hefur nýi eigandinn séð við folann því hann ákvað að sú gráa skyldi verða gerð árinu eldri svo veturinn yrði þeim jarpa léttbærari.
Sá jarpi dafnaði vel og farið var aðeins að eiga við hann á fjórða vetur.
Pabbi tamdi sitt sjálfur og tók oft góðan tíma í það . Tryppin voru teymd mikið og hann dundaði oftast einn við þetta. Stundum sá maður hann koma ríðandi í hlað á tryppinu sem teymt hafði verið frá húsi.
Það kom fyrir að við krakkarnir værum kölluð til og sett á bak og teymt undir. Þá hefur væntanlega verið eitthvað á ferðinni sem öruggara hefur verið að leggja í meiri vinnu heldur en minni.
Skuggi, en það var sá jarpi nefndur, var af meðfærilegri gerðinni og taminn án aðstoðar.
Hann var nokkur ár að koma til en það var eins og eigandinn vissi á hverju var von því hann var hinn rólegasti yfir framförunum og svaraði fáu þegar nágrannarnir spurðu hann, hvort ekki færi að rætast úr þeim jarpa.
Skuggi varð afburða reiðhestur, mikið viljugur og með gríðarlegt rými bæði á tölti og brokki.
Pabbi var einhverra hluta vegna afar lítið gefinn fyrir skeiðið og einhverntímann þegar ég skilaði Skugga eftir að hafa fengið hann lánaðan sagði ég að hann hefði tekið góðan skeiðsprett hjá mér.
Þá brosti sá gamli eins og honum einum var lagið og sagði. Já það er aðeins til í honum.

Hér eru þeir félagarnir staddir á Hvítárbökkum, nánar tiltekið á Faxaborg.
Myndina fékk pabbi senda ásamt vísu frá Önnu í Saurbæ Kjós, sem hafði fengið að prófa klárinn.
Mörgum kynnst ég hesti hef
háreistum og fínum.
En ég mun geyma Skugga skref,
skýr í huga mínum.
Pabbi hafði ákaflega gaman af ferskeytlunni og rímnakveðskap.
Einhvern tímann fór ég með vísu fyrir hann og spurði hvort hann hefði heyrt hana áður.
Hann velti henni aðeins fyrir sér neitaði því og bað mig að fara með hana aftur.
Ég gerði það, síðan var riðið í næsta áningarstað og þar fór ég með hana í þriðja sinn.
Það voru vallendisbakkar framundan og þegar stigið var á bak á nýjan leik dunaði bakkinn vel undir þeim jarpa þegar hann þuldi töltið á fullri ferð, meðan knapinn kvað við raust.
Sporar grjótið sprettaglaður.
Spenntur mélin bryður ótt.
Á stökkferð töltir Skuggi hraður.
Skilað hefur vel í nótt.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334