06.10.2016 16:11
Sjálfbær hundabúskapur ,- eða þannig.
Nú sér fyrir endann á sumarbloggfríinu mínu og eina spurningin í stöðunni er hvenær vetrarfríið hefst
.

Það eru búin að vera mikil umsvif í hundamálunum hjá mér, smá tamið fyrir aðra og gotið undan Korku og Dreka tamið og selt .
Nema Bonnie sem verður væntanlega tekin í ræktun. Hún hefur mætt afgangi í tamningunni en það stendur til að bæta úr því næsta ár.
Hún er ársgömul síðan í maí , skreið í gegnum ISDS prófið í haust en það býður upp á ýmsa möguleika í ræktuninni.
Þannig að nú eru hún, Korka og Sweep öll skráð í ISDS .

Svona lítur svo hundaeignin út í dag. vinnuhundarnir Smali og Korka, sem er náttúrulega ræktunardýr í aukavinnunni. Drift frá Haukholtum sem er að verða klár í tamningu og talsverðar vonir eru bundnar við og Bonnie .

Svo er það hann ( Anglesey ) Sweep frá Írlandi sem ég flutti til landsins í sumar. Hann er fulltaminn á franska vísu en er fyrst og fremst keyptur í ræktunina hjá mér en ekki vegna þess að mig vanti smalahund.
Svo er það stóra spurningin hvort hann skilar því sem ég er að leita eftir


Ég hef sagt að það skipti engu máli hversu mikið ræktunardýrin okkar eru töluð upp , - eða niður .
Það eru afkomendurnir sem munu stimpla þau út eða inn í ræktunarsögunni.
Svo Sweep á eftir að sanna sig á annanhvorn veginn.

Og í ljósi þess að þetta hundadæmi hjá mér er orðið ágætlega sjálfbært getur maður getur leyft sér smá ævintýramennsku í ellinni.

Slóð á Sweep í léttri æfingu. Hér
Skrifað af svanur
08.03.2016 21:00
Kjarkaður, - grimmur nú eða bara helv. aumingi.
Nr. 1 , 2 og 3 vil ég bara hafa hann nógu djöf. grimman sagði viðmælandinn ákveðinn.

Hann hafði hringt í mig til að vita hvort ég vissi einhversstaðar af hundi sem hentaði honum í pörun.
Taldi upp ýmsa kosti sem tíkin hans var gædd en það vantaði alveg kjarkinn.
Svona símtöl koma alltaf öðru hvoru og stundum verða þau bæði löng og ánægjuleg.
Sérstaklega þegar viðmælandinn veit alveg nákvæmlega hvað hann vill og farið er að stúdera ættfræðina og skiptast á skoðunum um viðfangsefnið og hugsanlegan árangur.
Og næstum allir eru að leita að hundi sem er nægilega kjarkmikill og ágengur til geta haft sem fullkomnasta stjórn á aðstæðum
Sumir eru sammála mér um að það sé mikill munur annarsvegar á yfirvegun og kjarki, til að taka vafningalaust á kind sem ræðst á hundinn eða stendur framaní. Hundi sem sleppir strax og kindin gefur eftir.
Hinsvegar á grimmum hundi sem ræðst á kind til að hanga í henni og tjóna hana, stundum í taugaveiklun eða einhverskonar stresskasti.
Hundi sem mér finnst stundum að skapi fleiri vandamál en hann leysir.
Tamningin spilar að sjálfsögðu alltaf inn í það hvernig spilast úr þessum eiginleikum, en suma hluti ræð ég allavega ekki við þó það segi nú kannski ekki mikið.
Ég ákvað að leggja ekki í rökræður um grimmd eða ekki grimmd , sagðist því miður ekki muna eftir neinum fólgrimmum hundi í augnablikinu og óskaði náunganum velfarnaðar í leitinni.

Félagi Vaskur er sá algrimmasti sem ég hef tamið og átt. Réðist bæði á menn og dýr jöfnum tönnum.
Hann hefur trúlega átt 9 líf eins og kettirnir því hann flaut á kostunum gegnum lífið þrátt fyrir nokkur grafalvarleg brot fyrrihluta ævinnar. En hann var ekki notaður í ræktunina.
Já, þó mér gangi langoftast illa að rækta hinn fullkomna hund þá kemur fyrir að detti inn hjá mér eintök sem mér finnst ásættanleg í framræktun.
Það er svo að sjálfsögðu alltaf sama lotteríið hvernig spilast úr þeim eintökum.
En eitt af forgangsatriðunum svo eintökin sleppi gegnum nálaraugað er góð samsetning af ágengni og kjarki.
Skortur á því gengur ekki .
Hér er slóð á einn sem mér líst vel á ennþá.
Skrifað af svanur
15.02.2016 20:40
Útskriftardagur er málið.
Ég hef lengi velt því fyrir mér hvernig hundatamning skilar sér til eigandans, ekki síst til þeirra sem hafa kannski ekki reynslu af tömdum hundum.




Oft geri ég myndbönd sem sýna út á hvað tamningin gengur.
Stundum með nokkrum útskýringum á hvað beri að varast eða leggja áherslur á í framhaldinu.
Allt góðra gjalda vert en ???
Á sunnudaginn setti ég upp dagsnámskeið með eigendum 7 hunda sem ég hef tamið, mismikið að vísu.

Brúnó frá Dalsmynni og Bassastaðabóndinn höfðu báðir gott af deginum þó allt hefði verið í góðum gír hjá þeim.
Fjórir þessara hunda voru frá mér, þrír afhentir um 9 vikna, til handvalinna kaupenda sem keyptu síðan mánaðartamningu í fyllingu tímans.

Máni frá Dalsmynni sem var búinn að vera viku hjá hugsanlegum kaupanda, vann fyrir hann með miklum tilþrifum.
Þann fjórða hafði ég alið upp og tamið töluvert. Hann var búinn að vera í viku reynsluvist hjá hugsanlegum kaupanda sem var mættur til að vinna með hann á námskeiðinu.
Hin þrjú höfðu verið í tamningu hjá mér frá 1 - 4 vikur.
Þetta fannst mér alveg sérstaklega velheppnað uppátæki.
Ekki síst fyrir mig, að kynnast því rækilega að þetta er ekki einfalt mál hvorki fyrir eigandann né hundinn.

Rollunum var nú farið að finnast þetta orðið gott, um það er lauk. Lilli frá Dalsmynni þurfti að vinna úr því.
Eigandann að átta sig á hvernig ætti að vinna þetta og hundinn að vera að hlusta á allt aðra rödd og áherslur en notað hafði verið við tamninguna.

Dagbjartur á Hrísum mætti með Frekju sína frá Hrísum, nýútskrifaða eftir viku tamningu. Snilldarpar þar á ferðinni.
Já, ég sannfærðist um það að í langflestum tilvikum er full þörf á því að fá eigendur tamingadýra frá mér, á námskeið eða í heimsókn til að slípa þá/þau almennilega saman.
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334