22.12.2008 23:16

Jólablogg fyrir yngri kynslóðina.


  Þetta blogg er fyrir krakkana bæði í sveit og þéttbýli, sem eru duglegir að kíkja hér inn og skoða dýramyndirnar hjá mér.


                                 Hér eru Dáð , Snilld og Vaskur

 

       Dáð og Snilld eru mjög miklar vinkonar og geta leikið sér endalaust saman.



  Ég heiti Táta og er í heimsókn í Dalsmynni um jólin.

     Ég ætla að senda Ingu Dís og Róbert jólakveðjur. Einar og Inga fá auðvitað líka kveðju og Katrín og Diemut fá svo extra góðar kveðjur .



  Nú eru allir hrútarnir komnir í heimsókn til kindanna og ætla að eyða jólunum hjá þeim.
Hér er lambhrúturinn hann Vökull Raftsson sem fékk 84,5 stig í skoðun í haust. Hann fær að vera með 6 veturgömlum í þetta sinn.



  Nú er kominn hellingur af kálfum í sveitinni sem finnst ágætt þegar krakkar koma að heilsa upp á þá.



        Og mömmurnar eru svo dálítið forvitnar eins og mömmur eru stundum  .



  Hér er mynd af honum  Funa þegar hann var lítill. Það er búið að panta rauða hálfsystir hans í vor.
Mamman sperrir eyrun þegar hún er minnt á þetta og það er góðs viti.



   Hér er Assa með got ársins í Dalsmynni. reyndar sjást bara 4 hér fyrir ofan, en hér koma þeir allir.



  Og með þeim fá allir lesendur heimasíðunnar bestu jóla og nýársóskir frá Dalsmynni, með þökkum fyrir áhorfið og kommentin á árinu sem er að líða.






22.12.2008 08:41

Burðardýr og tónleikar.

 Á laugardagskvöldið var kominn yfir 30 cm. jafnfallinn snjór hér og orðið virkilega jólalegt.
Vegna lognmála á Nesinu hefur jafnfallinn snjór löngum verið sjaldgæfur til lengdar og svo er enn.

Það hvessti reyndar ekki mikið aðfaranótt sunnudagsins sem samt fór þetta allt af stað og safnaðist í dyngjur. Hér á sunnanverðu nesinu er enginn ákveðinn með snjómokstur, heldur eru bílar ýmist að austan eða vestan sendir hér um. Það hafði greinilega gleymst að moka að nafla  alheimsins hér,  snjó dregið upp í hjólförin og skólavegurinn var býsna þungur á sunnudagsmorguninn þegar við renndum niðureftir um leið og farið var í bæinn, að loknum morgunmjöltum.
 Og það var eins og við manninn mælt að um leið og keyrt var inná austurbakkann var þessi mikli og fallegi jólasnjór að mestu horfinn. Í mesta lagi svo 5 cm snjóþykkt enda óvíst að þeir þoli mikið meira þar.

 Já, sunnudeginum var varið í borg óttans, að versla restina af jólagjöfunum. Það er skýr verkaskipting í þessari árlegu verslunarferð. Ég er burðardýrið og er eldsnöggur að játa öllu sem ég er spurður varðandi jólagjafir. Lengi hefur verði gælt við þá hugmynd að stofna stéttarfélag burðardýra til að ná fram ýmsum réttindamálum. Ég myndi leggja til í þeirri umræðu að burðardýr yrði nestað með a.m.k. einum Wískífleyg að morgni dags til að gera það jákvæðara og þjálla yfir daginn.

 Þetta gekk samt óvanalega vel að þessu sinni þrátt fyrir óunnin réttindamál, enda fararstjórinn mjög vel skipulagður um innkaupin  eftir að hafa sett upp nákvæman lista vikuna áður með ákaflega jákvæðum undirtektum undirritaðs við öllum hugmyndum.

  Þessi eina jólagjöf sem ég ber hinsvegar ótakmarkaða ábyrgð á reyndist mér sama hrikalega vandamálið og vanalega. Eftir að hafa reynt til þrautar að koma því máli alfarið á yngri dótturina án árangurs, var gripið til þess ráðs að " týna " fararstjóranum í Kringlunni og taka síðan hring með dótturinni til að leysa málið..

  Um kvöldið var síðan farið á jólatónleika Langholtskirkju og þetta var bara nokkuð gott hjá honum Jóni. Öðru hvoru sneri hann baki við kórunum og lét gestina þenja raddböndin til hins ýtrasta. Sem betur fer hafði stéttarfélag burðardýra ekki náð fram helsta baráttumáli sínu svo þetta var fínt hjá salnum.

 Þó þarna væri hvert atriðið öðru betra toppaði hún Eivör þetta nú samt. (Fannst mér.) 

 Mikið var nú samt gott að komast aftur í snjóinn, á mörkum hins byggilega.emoticon 


                                         Svona aðeins ýkt ástand.
       

 

19.12.2008 19:54

Comment ,trippi og dekk



  Það er eitthvað ólag á commentadæminu hjá 123 svo ég verð að svara sjálfheldukommentum hér.

  Ég veit að Ransý er aftur komin í jólaskapið eftir hrollvekjuna, því þær mæðgurnar voru búnar að baka svo  myndarlega fyrir jólin.. 
 Þessar kindur báru svo beinin á norðanverðu nesinu, Þorleifur, og eigandinn er fyrrverandi samstarfsmaður þinn í smíðunum.
 Þetta var snyrtilega gert hjá sjoppueigandanum , Bjarni, eins og við var að búast. .Allar bógskotnar á þessu færi.

 Fyrsti tripparekstur vetrarins var svo á tamningastöðinni í dag og fékk stærsti hluti hrossanna að hlaupa.



  Hér eru þau klár í reksturinn sem fengu að fara í þetta sinn. Þau byrjuðu nú á að hlaupa niður stýrispotta að fengu smá aukakrók.



  Þarna er það Vinur sem leiðir hópinn en svo var það Korinna sem var hin sprækasta og tók forystuna öðru hvoru. Það er farinn nokkurra km. hringur og við Dóri vorum í hæfilegri fjarlægð á hjólunum til að halda þeim á leiðinni. Þau voru nú ekki eins hlaupaglöð og  þau verða seinna  í vetur og þetta endaði á gutlferð í restina. Það var ansi napurt og benzínþumallinn við frystingu um það er lauk.  Og eins og sést á myndunum er orðið jólalegt og þetta var dagsbirtan sem boðið var uppá í dag.

 Svo var ekki undan því vikist lengur að koma frúarbílnum á vetrardekkin en hann var á upphaflegu dekkjunum, sem eru komin í 34.000. km. og a.m.k. eitt sumar eftir af þeim enn.
 Eftir að við Hölli í Bifreiðaþjónustunni höfðu krufið landsmálin og svikamylludæmið, gerði ég upp, og þrátt fyrir jóla, kreppu, og stórviðskiptaafslátt tókst Hölla ekki að koma þessu neðar en í 124.000. Ég vona að það eyðileggi samt ekki jólin fyrir honum.

  Og svínnelgd  dekkin komu mér svikalaust heim í hálkunni á ásættanlegum hraða.emoticon
Flettingar í dag: 433
Gestir í dag: 99
Flettingar í gær: 294
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 419390
Samtals gestir: 38171
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 11:44:42
clockhere