Færslur: 2009 Mars

30.03.2009 07:52

Vatnsnesingar og menningarferðir.

   Núna er tíminn fyrir allskonar menningarferðir og til marks um það komu þrír hópar í Hestamiðstöðina á laugardaginn, sauðfjárbændur af Vatnsnesinu voru  þar um kl 11 og kl. 2 og 5 mættu síðan sinn hvor hestamannahópurinn.

                       
                 Einar hefur trúlega þurft að bæta nokkrum sinnum á þennan yfir daginn.

  Ég og frúin komu aðeins að móttökunni á rollubændunum enda nýbúin að sækja nokkra þeirra heim svo sem frægt er orðið.



  Þetta var tæplega 30 manna  hópur og skemmtilegt að sjá hvað mikið er af ungu fólki búandi á Vatnsnesinu.
 Þar sem væntanlega var erfiður dagur framundan hjá fjárbændunum var boðið upp á kraftmikla Snæfellska kjötsúpu að hætti Dalsmynnis. Þar sem þarna var álitlegur markhópur fyrir fjárhundaræktendur á ferðinni, var tilvonandi ræktunartík gripin með, ásamt nokkrum kindum.


 
 Það gekk ágætlega að sýna gríðarlegan vinnuáhugann og ýmsa ágæta takta en þegar sýna átti takmarkalausa hlýðnina kom í ljós að þetta var ekki góður dagur hjá okkur Snilld svo spurning er hvernig markaðsátakið tókst?

                             Hvað skyldi Snilld hafa verðið að bralla þarna?

   Eftir að hafa skoðað dótakassann hjá Einari, húsmæðrunum til mikillar hrellingar var haldið niður í byggþurrkun þar sem hópurinn komst í annan dótakassa. Þar fræddi þurrkunarstjórinn, Þverárbóndinn, ferðalangana um leyndardóma byggþurrkunarinnar.

  Þau héldu síðan áfram á vit sauðfjárbænda í Kolbeinstaðarhreppnum og ráðgerðu að ljúka ferðinni með fjósaskoðun í Hraunhreppnum.

Gaman að þessu.emoticon 

Það eru svo fleiri myndir í albúmi.

28.03.2009 21:55

Allt á fullu hjá afastelpunni.



  Já þetta var viðburðarríkur dagur hjá litlu manneskjunni eftir að hafa gist hjá afa og ömmu.


 Til að byrja með voru komin tvö lítil lömb þegar við amma fórum út í morgun.



 Svo meiddi ég mig í puttann þegar ég var að gefa rollufrekjunum mat.



  Það var vont og amma slapp ekki við að setja plástur þegar við komumst heim.



  Meðan afi og Atli voru að mjólka var amma tekin í snjókarlavinnu. Þetta voru pabbinn, mamman og barnið og litli bróðirinn.??

  Á meðan var allt að gerast í fjósinu.


 Það fæddist lítil kvíga obbboðslega skrítin á litinn.

  Svo komu gestir að heilsa uppá kálfana.


  Inga Dís og Róbert Vikar þurftu náttúrulega að heilsa upp á nýfæddu lömbin.



  Þau töldu líka rétt að heilsa upp á tudda kallinn sem varð mjög glaður að sjá þau.

 Já þetta var erfiður dagur svo ég ætla að sofa heima hjá mér í nótt en ekki hjá afa og ömmu .



25.03.2009 21:42

Kýrnar klaufsnyrtar.


  Þetta var venju fremur órólegur dagur í Dalsmynnisfjósinu þegar Guðmundur mætti eldhress með klaufskurðarbásinn. Sem betur fer virtust flestar kýrnar vera með gullfiskaminni og voru búnar að gleyma skelfingunum fyrir ári, þegar fyrsta alvöruklaufsnyrtingin fór fram frá upphafi landnámsbyggðar. Það var hin skelfilegasta lífsreynsla bæði fyrir bændur og kýr, þó einungis kýrnar gengju haltar og skakkar dögum saman eftir skelfingarnar.

  Nú var þetta allt annað líf, verkið skotgekk og varla sást hölt kú í framhaldinu.


 
     Þær voru bara nokkuð slakar meðan þær biðu eftir að röðin kæmi að þeim.



                                     Nú er víst alveg að koma að okkur.



                            Ja, hver þremillinn er eiginlega í gangi.


   Hvað er svo þessi vitleysingur þarna eiginlega að gera með þennan háværa slípirokk??



                                Sjáið þið bara hvað  ég er orðin fín.

 
Þetta verður svo endurtekið að ári ef guð lofar og ekki rignir.



Flettingar í dag: 297
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 443
Gestir í gær: 31
Samtals flettingar: 398493
Samtals gestir: 36203
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 12:06:19
clockhere