15.04.2017 20:12

Hestaslark 2013 .

 Það rifjast sitthvað upp þegar verið er að stinga út og spá í hugsanlegar hestaferðir sumarsins.  

 Það var árið 2013 í ágústmánuði sem ég fékk fyrirmæli um að setja upp þriggja daga hestaferð með það sem á járnum var í Hestamiðstöðinni í Söðulsholti. 

Það var fljótgert.

 Svo var bara að finna daga sem hentuðu með nothæfri veðurspá. Fyrsta dagleiðin Söðulsholt - Hallkelsstaðarhlíð gekk vel fyrir utan hefðbundinn hasar við að koma rekstrinum fyrsta legginn. 


  Dagur eitt. Hrossin neðan  Gerðubergsins farin að róast  eftir starthasarinn.

Við vorum fjögur með hópinn, um 40 hross.  

 Ég, Iðunn og Dóri ásamt Ágústu Rut sem hafði verið við tamningar í Söðulsholti um tíma. 

Önnur dagleiðin norður yfir fjallgarðinn, Hallkelsstaðarhlíð - Bíldhóll gekk enn betur.


  Þarna fann ég götu ofan og austan Heydalsvegar sem ég frétti af daginn fyrir ferðina. Skemmtileg gata en alltof stutt.emoticon

 Veðrið frábært og hrossin farin að slípast í rekstrinum. 

  Þegar spáð hafði verið í veðrið  lá fyrir að kröpp lægð myndi ganga yfir vestanvert landið. Ferðin var sett upp þannig að það yrði sloppið til byggða áður en hún birtist.  
 Þessa daga höfðu veðurfræðingarnir hinsvegar tekið upp á því að flýta henni jafnt og þétt en samt voru enn líkur á að við ættum að ná langleiðina suður af áður en aðalhasarinn byrjaði. 


 Við fórum tímanlega frá Bíldhól. Ágústa búin að yfirgefa okkur en Arnar í Haukatungu kominn í staðinn.

 Riðum gamla þjóðleið sem lá að Litla Langadal. 
  Þaðan yrði síðan riðið suður Flatir  sem leið liggur að Söðulsholti.

  Gatan vestur í L. Langadal var orðin óljós á köflum en Jóel á Bildhóli er m.a. gefið það, að geta sagt til vegar svo skiljist og dugði það okkur prýðilega.
 
  Leiðina suður Flatir þekkti ég hinsvegar eins og handarbakið á mér. Þegar kom að Litla Langadal var ljóst að lægðin góða hafði líka tekið daginn snemma, aðeins byrjað að rigna og veðurhljóð komið í fjallgarðinn. 

 Ég þekkti það að suðaustan áttin er ekki heppilegasta útreiðarveðrið suður Langadalinn og Flatirnar.  Þar sem hún treður sér gegnum skarðið niður dalinn. 

  Það var því allt gert klárt fyrir langan legg.  Fengið sér af nestinu og öflugustu hrossin tekin undir hnakkinn.
 
   Við vorum síðan rétt komin af stað þegar lægðin kom í fangið á okkur, úrhellisrigning og bætti sífellt í vind eftir því sem sunnar dró.  

  Jóel hafði bent okkur á að ef  við  myndum lenda í slæmu suður dalinn væri möguleiki að stoppa hópinn í giljum innst í dalnum vestanverðum.

   Það var  hæfileg fyrsta áning.   Ég mat það hinsvegar þannig að ekki væri viðlit að stoppa hópinn þarna. .

   Reksturinn var ekki á neinni lestarferð á eftir okkur Dóra og spurningin var einfaldlega um það hversu lengi við gætum haldið honum fyrir aftan okkur.
   Það var svo sprautast uppúr Drögunum og suður Flatirnar í sama úrhellinu og hávaða roki. Allt á yfirferð . emoticon  

  Sunnan Flatanna er leiðinda reiðvegur , grýttar götur með Flatnánni en eftir því sem við lækkuðum okkur sló aðeins á veðrið. Þarna náðum við að hægja aðeins á rekstrinum og síðan  að stoppa  vestan árinnar neðan Illagilsins. 



Þetta er nú ekki hefðbundinn áningastaður  og ekki lögðum við í að reyna að ná hrossum til skipta þó áfanginn væri orðinn óhóflega langur.

   En fljótfarinn var hann.  emoticon

  Þarna kom í ljós að Arnar var alblóðugur í framan. 

  Í sviftingum við að komast af stað hafði klárinn náð að berja hausnum í hann þannig að sprakk fyrir á augnbrún.    

 Þó ég sé sjaldnast með kvíðahnút  í ferðalögum þá velti ég því fyrir mér þarna, hvernig myndi ganga með reksturinn niður með Flatnánni að ármótunum. 
 
 Þar eru frekar ógreiðar götur en allt niður í móti og ljóst að það yrðu engin grið gefin af rekstrinum. 

 En nú dugði ekkert væl bara að drífa sig í hnakkinn og láta vaða . Og þetta slapp til en tæpt var þetta allt emoticon.
 
  Þegar niður var komið, ármótin að baki, ( riðin á harðastökki emoticon  ) og allt fylgdi sem átti að fylgja, andaði ég léttar.

  Fannst eins og nú væru engin vandamál til lengur.  

 Vissi af stað framundan  þar sem ef vel tækist til, yrði hægt að stoppa hópinn og komast á minna þreytt hross. 

  Það gekk eftir , hár árbakki á aðra hliðina og stokkalækur sunnanvið. Þarna tókst að hafa hestaskipti og klára nestið .  Þó úrhellið væri það sama var  veðrið að öðru leiti snöggtum skárra.

  Leggirnir 3 sem eftir voru gengu smurt. 

En Iðunn hefur ekki fengist í hestaferð með mér síðan. emoticon

09.04.2017 20:53

Fínn fyrsti hundur, - eða þannig. .

 Hann var mættur á námskeið hjá mér fyrir nokkrum árum. 

 Ja eða kannski þó nokkuð mörgum árum. emoticon  

   Ungur piltur með fyrsta hundinn sinn, fullur áhuga að koma sér upp góðum fjárhundi. 
Eftir fyrsta tímann spurði hann mig hvernig mér litist á hundinn. 
 
 Það voru alveg punktar í hundinum og ég gerði dálítið úr því sem mér leist á. 

 Minntist ekkert á hitt. 

  Þetta var tveggja daga námskeið og við fórum fjórum sinnum í kindur.
  
Hundurinn var tæpur með áhugann en fór ágætlega  að fénu.

  Alveg kjarklaus en þetta gekk fínt með tömdu kindunum  og allir ánægðir um það er lauk. 

   Eftir námskeiðið þegar ég var að koma hundi og dóti í bílinn átti pilturinn leið hjá og við tókum lokaspjallið. 

 Ég gaf lítið út á það þegar hann vildi fá mig til að hæla hundinum sínum en hvatti hann til að vinna vel í hundinum og fá eins mikið útúr honum og hann gæti.  

  Það kæmi svo kannski að því að hann myndi langa í öflugri hund með þessum. 
 Þá skyldi hann vanda sig eins og hægt væri , fyrst við valið og síðan tamninguna.
  Ef það gengi vel skyldi hann svo æfa þá saman í vinnu og þá myndi þetta verða verulega skemmtilegt.  

 Það var síðan nokkurnveginn ári seinna sem pilturinn hringdi í mig.

  Hann minntist ekkert á hundinn sinn en sagðist vera að spá í hvolp. Væri að skoða tvö got og langaði að vita hvort ég þekkti eitthvað til þeirra. 
( Svo langt síðan að ég lét enn hafa mig í að gefa álit á gotum emoticon)  
  Það hittist svo á að ég taldi mig þekkja til beggja gotanna og þurfti ekki að hugsa mig um, sagði honum bara hvað ég myndi gera ef ég væri að leita að hvolpi.

 Ekkert heyrt í honum síðan. 

  Veit bara að  hann er með gott fjárbú , - og til þess tekið að hann sé alltaf með afbragðs fjárhunda.   

  Fyrir þá sem hafa lesið alla leið hingað en eiga eftir að koma sér upp góðum fjárhundi þá er þetta leiðin. emoticon  

  Hafa áhuga á málinu og vinna að því í alvöru emoticon.

05.04.2017 20:25

Og verðið ??

Netmiðlarnir hafa snarlækkað auglýsingarkostnaðinn hjá þeim sem eru að fórna sér í ræktunarstarf, til að halda við fjárhundum landsins emoticon .

  Sem áhugamaður um  ræktunarstarfið fylgist ég þar með því sem í boði er hverju sinni. 

   Fell stundum fyrir freistingunni og áður en ég veit af hef ég fest mér hvolp til  að kynnast nánar, einhverra hluta vegna.  

  En sem betur fer eru  margir fleiri áhugasamir og alltaf jafn forvitnilegt að sjá hvernig þeir nálgast málið. 
  Auglýsingarnar eru að sjálfsögðu jafn misjafnar og þær eru margar. sumar ýtarlegar með góðum myndum ásamt því að nefna foreldra . Aðrar snubbóttari. 

  Ekki alltaf, en oftast  byrja þeir áhugasömu á því að spyrja um verð. 

  Kannski skiljanlegt þegar illa launaðir  fjárbændur eiga í hlut en samt ?? 

   Verðlagið á BC hvolpum á íslandi er  þannig, að mér finnst það nánast aukaatriði þegar kemur að því að velja sér hvolp til uppeldis og tamningar. 

  Aðalatriðið hlýtur að vera að baklandið sé þannig að líkurnar á góðu vinnudýri séu sem mestar. 

  Fyrir nokkrum vikum var t.d. komið til mín með 13 mán . hund til skoðunar. 

  Ættbókarfærður, undan "góðum smalahundum " og nefndu það bara.

  Hann var  hinsvegar laus við alla BC takta en hefði alveg getað stigast hátt í byggingu og útliti sem íslenskur gjammari. enda stökk hann geltandi beint í kindurnar og hékk í lærunum. 

  Bara fóðrið á þessum hundi er búið að kosta kaupandann á annað hundrað þús.  

  Sá stendur síðan væntanlega í sömu sporum og fyrir ári síðan með að fara að leita sér að efni í fjárhund.

  Eins og það  er skemmtilegt að skoða efnilegt fjárhundsefni  hjá eiganda þess, finnst mér alltaf jafn ömurlegt að lenda í að kíkja á eitthvað sem  er kannski algjörlega í hina áttina. 

  Þó  eigandanum sé  bent á að  hundurinn sé ungur og allt geti breyst á stuttum tíma þá er oft erfitt að  láta mikinn sannfæringakraft fylgja því.

  Já , - ég fell sem sagt stundum fyrir freistingunni og kaupi mér  tíkarhvolp  til að ala upp og temja. 
  Ef vel tækist til myndi kannski koma ræktunartík útúr því sem slægi út það sem ég væri með.emoticon  

 Þó  það hafi ekki gerst enn er þó bara eitt dæmi um að ekki hafi orðið nothæfur fjárhundur úr þeim sem ég hef keypt svona.

  Þær  hafi staðið undir fjárfestingunni með ( svona nokkurnveginn) áföllnum kostnaði emoticon . 

  Reyndar spyr ég sjaldnast margs í þessum viðskiptum. Læt ættbókina duga.   Og aldrei er spurt um verð hvolpsins. Segi bara ræktandanum að senda reikninginn. emoticon
Flettingar í dag: 104
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 294
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 419061
Samtals gestir: 38090
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 07:48:02
clockhere