17.05.2008 04:45

Vorblíðan og byggið.

  Síðast þegar ég lofsöng veðrið brá svo við að komið var alvitlaust veður daginn eftir og næstu daga. Ég hef því ekki þorað að minnast á, að hér er búið að vera meiriháttar vorveður í marga daga og sér ekki fyrir endann á því. Í þessum skrifuðu orðum er lítils háttar rigning og lambféð sem út er komið var kuldalegt áðan, þó mér fyndist því engin vorkunn, enda  hitinn um átta stig. Eitt gemlingslambið hafði trúlega legið eftir þegar hópurinn hafði fært sig um set og bar sig aumlega svo jarmurinn heyrðist heim að bæ í vorkyrrðinni, aleitt í þessum stóra hráslagalega heimi. Eftir að því var kippt í liðinn hljóðnaði allur jarmur utanhúss, fuglasöngurinn ekki. Byggsáningunni þokar vel áfram þessa dagana þó betur megi ef duga skal. Lokið er sáningu í Hrossholti, Þverá, Dalsmynni og Kolviðarnesi en eftir að ljúka seinni umferð í  Söðulsholti og á Rauðkollstöðum. Tvær spildur í Hrútsholti sem Dalsmynni sf. er að endurrækta eru einnig eftir en annarri verður lokað með grasfræi ásamt byggi. Nú er bara að vona að hlýindin haldist,  byggið nái sér fljótt á strik og uppskern líði ekki fyrir hversu seint er sáð.
 Það sér allavega fyrir endann á byggdæminu en þá er eftir að sá grænfóðrinu  hér á bæ, en það hefur setið á hakanum í þessum barningi. Sáð verður rýgresi í um 6 ha. bæði til beitar og sláttar. Já og svo fer tími áburðardreifingar að renna upp.

  Og olíuverðið alltaf á uppleið.

16.05.2008 06:27

Lambfé út.

   Já, fyrstu lambærnar fóru út í gær. Það var ekki vegna gróðurleysis eða veðurfars að það gerðist ekki fyrr, heldur er sólarhringurinn einfaldlega alltof stuttur til að koma hlutunum í framkvæmd. Árleg klaufsnyrting er gerð um leið og ærnar fara út og þó það sé einfalt mál að snyrta klaufirnar með dúkahnífnum eftir að við fórum að hafa féð á taði/hálmi er alltaf jafn önugt að þurfa að velta þessum flykkjum fram og til baka, sérstaklega þegar menn þykjast vera tæpir í bakinu. Þær biðu hinsvegar ekki boðanna og létu sig hverfa niður fyrir þjóðveg áður en húsbóndinn og hundarnir voru búnir að setja sig í stellingar til að fylgja þeim yfir veginn. Það er ekki alltaf einfalt mál með blikkdósirnar á 110 km hraða og ökumenn undir stýri sem í alltof mörgum tilvikum bera enga virðingu fyrir sauðkindinni og litlu lömbunum sem eru stundum vís með að taka til fótanna beint á bílana. Þar sem bæði  stóru hliðin voru opin vegna mikillar dráttarvélaumferðar var leiðin greið í þetta sinn og þær höfðu sloppið niðurfyrir án vanhalda. Þar munu þær síðan halda til næstu 3-4 vikurnar en þá verður fjallið tilbúið fyrir þær með öllum sínum unaðssemdum. Gróðurinn er kominn svo vel á veg að trúlega þýðir ekki að setja heyrúllu niðurfyrir. Hún yrði einfaldlega látin óétin. Sauðburðurinn er enn í lága gírnum. Gemlingarnir eru þó flestir bornir og um 10 urðu tvílemdir sem er ekki gott. Nokkrir þeirra munu fá/verða að ganga með báðum lömbunum í sumar enda eru þeir óvanalega stórir og þroskamiklir þetta árið og erfitt um vik að venja undan þeim, því það er líka dálítið um þrílembur í eldri hópnum.

 Það er svo náttúrulega afar slæmt vandamál á sauðfjárbúi, ef ekki finnst tími til að setja féð út á grænu grösin.  Eins gott að það vandamál leysist fyrir haustið.

15.05.2008 04:10

Vekjaraklukkur( rafknúnar eða innbyggðar)

 Ég er ekki frá því að hafa legið láréttur í svona  fimm til tíu sm. hæð yfir rúminu drykklanga stund áður en tekið var ofsafengið viðbragð til að slökkva á vekjaranum sem glumdi með gríðarlegum hávaða. Þetta er svona gamaldags vekjari sem gengur fyrir rafhlöðu, þar sem sem ekki tókst  að finna  upptrektan á sínum tíma.  Þá hafði mér verið gert að henda fína rafmagnsútvarpsvekjaranum mínum eftir að 
 " rafeindasegulbylgjusérfræðingur"  hafði dæmt hann sérlega lífshættulegan, mér og umhverfinu.  Þessi ágæti vekjari er reyndar ekki notaður nema á .þessum árstíma því ég hef annars innbyggðan vekjara sem dugar mér vel við eðlilegar aðstæður en nýtur ekki fyllsta trausts á sauðburði af fenginni reynslu.
Rétt er að taka fram að vekjaraskiftin á sínum tíma  voru svona friðþægingarfórn eftir að hafa þverneitað að fjárfesta í einhverri tugþúsunda græju til að halda öllum óæskilegum rafsegulbylgjum frá heimilinu. En vaktin var semsé að byrja og þarsem mín heittelskað lá steinsofandi við hliðina á mér( umlaði ekku einu sinni við hávaðann) var ljóst að fyrir svosem 20 - 40 mín. var ekki " neitt að gerast" í sauðburðinum. Trúlega hafa viðbrögðin sem lýst er í upphafi verið með með kröftugra móti vegna þess að "klipið" hafði verið framanaf af svefntímanum vegna vélaviðgerðar um kvöldið/nóttinar. Það er eins gott að sauðfjárbændur og búalið búa ekki við sama reglugerðarparagraffið og vöru og flutningaökuþórar þessa lands hvað hvíldartíma snertir.
 Og sauðburðurinn sem hefur verið afar rólegur undanfarið er nú að komast af stað og þegar heimasætan kemur um helgina eftir að hafa " skellt aftur"  skólahurðum og skruddum þennan veturinn, verður hún enn velkomnari en vanalega því við þessi " gömlu" höfum staðið vaktina, svona með öðru daglegu rísli, þar sem Atli hefur alveg verið í jarðyrkjunni , fyrst í flagvinnu og síðan á sáðvélinni en  vonandi lýkur aðaltörninni þar í vikunni eða um helgina. 

Það verður síðan að viðurkennast að þessi maítörn verður alltaf pínu erfiðari með hverju árinu(og kílóinu) sem bætist við og þegar akuryrkjan færist yfir á sauðburðinn þá!!
Flettingar í dag: 461
Gestir í dag: 102
Flettingar í gær: 294
Gestir í gær: 61
Samtals flettingar: 419418
Samtals gestir: 38174
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 12:06:05
clockhere