Færslur: 2008 Janúar

19.01.2008 10:06

Fundur + !! vinnuferð !!


Byggræktendur í Eyjarhrepp hinum forna hittust í gærkvöld og fóru yfir ræktunarmálin.
 Uppskerutölur haustins vori daprar annað árið í röð og vóg þar þyngst foktjón í roki sem gekk yfir um 23 sept.
 Þriggja tonna markmiðið af ha. náðist ekki þetta haustið. Líklega væri skynsamlegt að miða uppskerutölurnar við vigt á rennblautu byggi eins og sumir gera svo góða skapið haldist en allar þyngdartölur  eru miðaðar við bygg með 87 % þurrefni. Þrátt fyrir þessar niðurstöður og hækkandi áburðarverð var enginn bilbugur á mönnum og er stefnt að ræktun á um 100 hö. næsta vor enda er kjarnfóðurverð á hraðri og öruggri siglingu uppávið.

 Svo snúið sé aftur að Danmerkurferðinni þá var byrjað á því eftir lendingu að taka í notkun 2 bílaleigubíla og skipta hópnum sem taldi 9 manns.
 Þrír yfirgáfu okkur í "bændageiranum" en við hinir byrjuðum á að renna við í vélasölufyrirtæki í um 15 mín. fjarlægð frá flugvellinum.
 Eftir að hafa skoðað fyrirtækið og þegið veitingar var brunað af stað í næsta mál sem var heimsókn til akuryrkjubónda.Var nú tekið á því á hraðbrautunum því við vorum klukkutíma á eftir áætlun. Þrátt fyrir einbeittan brotavilja bílstjórans og töluvert hættuástand sem skapaðist á akbrautum Danaveldis gekk illa að ná upp tímatapinu  og urðu menn að lokum sammála um að við værum á áætlun miðað við lendingu flugvélarinnar og róuðumst við nokkuð við það.
 Það fyrsta sem stakk í augun við komuna til bóndans var að ekki sást nokkurt tæki eða eitthvað dót sem tilheyrði starfseminni  utandyra . Þessi bóndi ræktaði um 600 ha. af ökrum og var sjálfum sér nógur um öll tæki. Vélarnar voru greinilega teknar í gegn fyrir geymsluna t.d. allur beislis og tengibúnaður pússaður og lakkaður.
  Hann átti um 250 ha. af ræktunarlandinu sjálfur, hitt  leigði hann í nágrenninu og voru um 20 km á milli þeirra akra sem fjærst lágu hvor frá öðrum. Hitt landið var hann með á leigu og var að greiða um 50 - 70.000 ísl. kr/ha. Hann var að fá um 30 - 40.000 kr. í styrk á ha. Þarna er ræktunarlandið með öðrum orðum mjög verðmætt . Hæsta leiguverð hér sem ég hef heyrt um er 5.000 kr./ha fyrir tún en oftast er það ekkert,bara að túninu sé haldið í rækt. Það er nokkuð fast verð á akurlendinu í sölu eða um 2.500.000 ísl.kr./ha. Meðal þess sem fór í gegn hjá honum var 5.000 tonn af hálmi, hann framleiddi ekki allt það magn heldur keypti og endurseldi að hluta, og uppskeran í bygginu var 5 - 6 tonn af ha.
 Hann kaupir áburðinn að haustinu, til að fá betra verð og tekur hann í lausu. Frá því hann gekk frá kaupum í haust hefur áburðurinn hækkað um 30 - 40 % og er enn að hækka svo við eigum von á góðu þegar áburðarverðin birtast okkur trúlega í næstu viku. Og ég get alveg fullvissað ykkur um það að traktorarnir og tækin þarna voru af alvörustærðum. Eftir að hafa farið rækilega yfir ræktunarmálin var enn lagt út á hraðbrautirnar með upphaflegu aksturslagi því það átti að taka eina umferð í keilunni fyrir kvöldverðinn sem okkur var boðið í af SAC verksmiðjunni.
 Við náðum hinsvegar einungis í að sjá félagana sem skilið höfðu við okkur um morguninn ljúka sinni umferð með því að bursta Danina (Danirnir kunna sig).
 Eftir ánægjulegan kvöldverð og einn lítinn öl var síðan tekinn loka rússíbaninn á hraðbrautinn á hótelið þar sem við dvöldum  í ferðinni, en það var í 60 km fjarlægð frá Agromec sýningunni. Við komum okkur síðan fyrir á hótelinu, lögðum undir okkur "testofuna" og svo söng karlakórinn" örfá " lög fyrir svefninn.

 

18.01.2008 20:17

!!Vinnuferð!!

  Það er rétt að byrja á því að taka fram, að þá sjaldan sem ég bregð mér út fyrir landsteinana er allaf um erfiðar vinnuferðir að ræða.Í þetta sinn var lagt af stað úr sveitinni kl. þrjú á mánudagsmorgni og komið til baka um 1/2 tvö aðfaranótt föstudags.
 Svo stíft var prógrammið að klukkustundar seinkun á flugtaki setti allan mánudaginn úr skorðum. En af þessum tæpum fjórum dögum var tveimur heilum eytt á Agromek en hinir notaðir til að heimsækja þrjú bændabýli og 4 fyrirtæki sem þjónusta bændur með ýmsun hætti.(Hljómar þetta ekki trúverðugt.)

  Með í för var Karlakórinn Sukkbræður og er vitnað í þá hér á síðasta bloggi.
Þó erfitt sé að hæla þeim félögum fyrir eitthvað, verðu ekki af þeim tekið að þeir syngja eins og englar.

  Agromek.

  Þetta er í annað sinn sem ég fer á sýninguna og var hún ívið minni umfangs nú. Það kemur til af því að vélaframleiðendur hafa sótt á um sýningin verði haldin í nóvember svo hægt sé að ganga frá sölum fyrir áramótin.Er þetta væntanlega í síðasta sinn sem hún er haldin í jan. og voru færri tækjaframleiðendur á sýningunni en síðast.T.d vantaði þar  helstu dráttarvélamerkin. Þrátt fyrir það máttum við hafa okkur alla við að komast yfir allt svæðið á tveim dögum. Manni finnst nú að þessi sýning gangi út á það að sýna allt það stærsta af tækjakostinum eins og fjögurra hásinga sturtuvagna o.sv.frv.
 Það er samt ótalmargt sem gaman er að skoða og stúdera .T.d. var þarna plastpökkunarvél fyrir gömlu góðu baggana sem ég kynntist nú aldrei persónulega og ég velti fyrir mér hver notaði þetta í dag ?

Nú verð ég að slá botninn í þetta í bili þar sem ég á að vera mættur á fund eftir 5 mín.

  

 

15.01.2008 21:41

Syngjandi sæll og glaður......

Svanur var að hringja,  afar léttur í tali, og mikið sungið á bak við hann. Mér skildist að það væru þreyttir Íslendingar, búnir að labba mikið um sali Agromek sýningarinnar, og sjá margt af eigulegu dóti. Ekki efa ég það. Svanur bað mig að skila því að hann væri mest að skoða dönsku kúakynin og athuga kosti og galla. Spurning hvort hann gleymi göllunum.
Hér báru 2 kvígur í dag, Rúnar dýralæknir kom og aðstoðaði Atla við að ná dauðum kálfi frá annarri. Hin var borin þegar komið var í fjósið til kvöldmjalta, alveg snælduóð  og lá við að hún hjólaði í Atla þegar hann var að færa kálfinn betur upp í básinn. Hún var samt hin prúðasta meðan við mjólkuðum hana. Aðalhausverkurinn með þessar kvígur er að finna nöfn við hæfi, því ef ég sting upp á viðeigandi nöfnum ( að mér finnst) þá finna þeir feðgar þeim allt til foráttu. Það er ein kvígan sem er alveg meiriháttar, fallegt júgur og góðir spenar, skapgóð, malar næstum meðan hún er mjólkuð og þar að auki falleg á litinn. Ég stakk upp á nöfnunum  Æði eða Meiriháttar en fékk svona augnaráð sem ég ætla ekki að lýsa frekar. Ég hugsa ég laumist bara í fjóstölvuna og skrái nöfnin án þess að spyrja kóng eða prest.
Og svona í lokin, þá er hér bara ekkert svo afleitt veður, ekki snjókoma en skefur.
Flettingar í dag: 137
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 294
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 413785
Samtals gestir: 37190
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 06:38:46
clockhere