Færslur: 2009 Maí

11.05.2009 21:42

Eldur,brennisteinn,rigning og ríkisstjórn.

  Fljótlega eftir að nýja stjórnin var kynnt  í gær fór að rigna. Það rigndi ekki eldi og ekki brennisteini en alveg djöfuldómi af vatni.

Og það rignir enn.

 

  Núpáin sem oftast er á mörkum þess að eiga skilið að heita á, varð alveg gasalega glöð og missti sig alveg af kátínu. Það fór mikið fyrir henni hér, og niður á sléttlendinu hefur hún eflaust breitt rækilega úr sér.



 Og liturinn gaf ekkert eftir fúlustu jökulám en það var þó ekkert að lyktinni af henni  blessaðri.

 Hafi verið blautt um áður, er á tæru að það getur ekki orðið blautara um en núna.

Einhver myndi segja að nú væri botninum náð og héðanaf gæti aðeins orðið þurrara um.
Ég held nú að stytti upp þegar ríkisstjórnin er komin norður yfir heiðar.


Því miður er botninum trúlega ekki náð í kreppunni en það er önnur saga.emoticon
Og þessi ágæta ríkisstjórn er örugglega kominn á toppinn í vinsældunum og nú mun leiðin liggja mishratt niðurávið.emoticon




09.05.2009 13:17

Lögbrotin , sáningin og samningurinn hennar Jóhönnu.

  Þó  annríkið/ puðið, hafi stórbreyst til batnaðar í sveitinni koma samt tímabil þar sem vinnulöggjöfin og hvíldartímareglugerðin eru þverbrotin. Vorið er mikið áhættutímabil í þessum lögbrotum því þá er fjölmargt sem þarf að vinnast á stuttum tíma og ef sauðfjárbændur eru t.d. ekki því betur mannaðir í vaktaskiptinguna þá verða þeir að gæta þess að lesa ekki of mikið af þessu rugli sem við eigum að lifa eftir.

  Loksins þornaði upp og þá var tekið á því í akuryrkjunni. Mér þótti slæmt mál að hætta sáningunni núna um miðjan dag, í logni og blíðu , en þá voru þeir akrar þrotnir sem nokkur glæta var
að sá í vegna bleytu.


  Hér er verið að sá í þurrlendi og það mátti ekki þurrara vera.  Já  hér er gæðunum misskipt eins og annarsstaðar.


          Sáðvélin tekur áburð og byggfræ fyrir 1- 2 ha. og yngri bóndinn sem fær oft að baslast einn í áburðinum og fræinu lestar sáðvélina vönum handbrögðum

  Við Yrkjamenn, eigum  eftir að sá í um 30 ha. í bygginu og ljóst að þeir munu bíða a.m.k.frameftir næstu viku.


            Það gengur stundum mikið á og hér hefur tvöföldun verið snarað undan með látum.


                               Hér er hún komin undir aftur og Fegginn klár í völtunina.

 Það sem er þó komið niður róar okkur  umtalsvert og nú fá neglurnar að gróa að nýju og magasýrurnar komast í nokkuð eðlilegt ástand.
 Það er sexraðabyggið sem sáð er fyrst en því er illa treystandi í golunni sem gerir stundum hér á haustdögum.
 Vandamálið við Íslensku yrkin sem þola hitt og þetta á haustin, er hvað hálmuppskeran er rýr en nú er hún farin að spila inn í afkomuna í þessu lotteríi.

  Það stefnir svo í að akuryrkja og sauðburður rekist illilega á  annað árið í röð hjá mér og trúlega mun ég velta fyrir mér hvort annað verði ekki að víkja.

  Þar sem hvorug búgreinin, byggið eða sauféð er að skila vinnulaunum, þarf að spá í hvort sé lífvænlegra til framtíðar.

Og þar er óvissan meiri en oft áður, því nú er spurningin hvað við gerum við samninginn frá Brussel sem hún Jóhanna er ólm í að sýna okkur sem fyrst. Ef guð og þingmenn lofa??

 Já, hann  Steingrímur ætlar svo bara að horfa á, og vita hvað gerist
!emoticon
 

06.05.2009 22:13

Hvít með loðnar tær!


  Ég veit ekki hvor okkar,  ég eða smiðurinn vorum ánægðari þegar hann tók saman í gær og yfirgaf svæðið í bili.

  Það er búið að skipta um alla glugga í húsinu og endurnýja  þakjárnið. Síðan verður það klætt utan í sumar og þar með verður öllu utanhússviðhaldi lokið a.m.k. næstu 30  +,  árin.  Pottþétt einhvers annars höfuðverkur en minn þegar þar að kemur.

 Smiðurinn fer þó ekki langt því næsta verkefni bíður hans á Rauðkollstöðum þar sem skipta á um þakjárn og bæta við kvistherbergi .  Félagi hans er að fara illa útúr flensunni þrátt fyrir góða umönnun Frúarinnar og er svo illa komið fyrir honum að hann fór til læknis í vikunni.  Þá er ástandið alvarlegt.

   Þessi sat svo fyrir utan eldhúsgluggann hjá mér rétt fyrir sex í morgun og leit íhugul á mig.



  Hún lét sér fátt um finnast þó ég tæki af henni margar myndir og  væri á hreyfingu í innan við tveggja m fjarlægð. Annaðhvort hefur hún fundið á sér að hjá mér væru allar rjúpur friðaðar, alltaf, eða einhver meiri ógn hefur steðjað að henni frá öðrum en mér.

  Og nú styttist í að ég geti óskað ykkur til hamingju með alvöru ríkisstjórnina ykkar.emoticon
Flettingar í dag: 58
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 913
Gestir í gær: 95
Samtals flettingar: 414619
Samtals gestir: 37273
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 04:01:41
clockhere