Færslur: 2011 Maí

19.05.2011 03:49

16 lömb á fimm árum !

Á svona míní fjárbúi og hér ( um 150 kindur) er sjaldgæft að hafa 5 ær með lambsóttina í einu.

 Þetta gerðist þó í gær og svo óheppilega vildi til að það var ekki nóg með að ég ætti vaktina heldur voru báðir fæðingahjálparmeistararnir fjarstaddir (til að byrja með.)

Þar sem einlembuhlutfallið ásamt fleirlembuhlutfallinu( 2 + ) eru ákaflega óhagstæð um þessar mundir er það sérstaklega vaktað hvort eimlemba sé á ferðinni því þá er umsvifalaust bætt undir hana af biðlista nokkrum.

 Við eru orðin algjörir sérfræðingar í því að sjá út einlembur strax í fyrstu fæðingarhríðunum þrátt fyrir litla æfingu í einlembufæðingum síðari hluta sauðburðar.

 Nú, fyrsta af þessum fimm kom með þrjú og ekki orð um það meira.

Næsta með 2 og síðan kom hún 616 sem hætti ekki fyrr en það voru komin 5 lömb í heiminn sem er nú ekki daglegur viðburður hér sem betur fer.


  616 með þrjá fimmlembinganna sem allir voru  stórir og gáfu tvílemingunum ekkert eftir í stærð.

 Þær tvær sem á eftir komu voru báðar með tveim, fengu umsvifalaust eitt í ábót svo .það voru allt í einu 4 þrílembur komnar á vandræðalistann til viðbótar.

 616 er fædd 2006 og er þetta í fimmta skipti sem hún ber.

Gemlinsárið átti hún 2, síðan þrjú lömb árlega næstu 3 árin og nú fimm. Samtals  16 lömb á fimm árum sem er ansi ríflegt.

Ekki gott ef fjárstofninn væri allur svona.

15.05.2011 22:20

Olía úr illgresi ??

 Það var mikil breyting á stillingum sáðvélarinnar að fara úr 200 kg af byggfræi á ha. niður í 8 kg af Doðrufræinu. Ekki var það svo slæmt að geta minnkað áburðargjöfina niður í um 100 kg á ha. úr 300 kg.

 Það var verið að sá fyrsta olíufræinu, Akurdoðrunni og þó að maður viti lítið um áburðarþörf og árangur og heilmargt annað þá mun þessi sáning segja okkur ákveðna hluti varðandi framhaldið.



 Doðrufræið er örsmátt og magnið í þennan 1.5 ha. sem sáð var í þessi 12 kg voru eins og krækiber í helvíti þegar það var komið í stóru sáðvélina.



 Ég var fyrir löngu búinn að ákveða að koma ekki nálægt vetrarrepjuræktun vegna óvissunnar um uppskeru en þegar útlit er fyrir að komin sé olíujurt sem nái þroska yfir sumarmánuðina þá fer þetta að  verða mun áhugaverðara.

 Kannski finnast sumarafbrigði af sumarrepju eða nepju sem ná að þroskast hér og þá verður spurning um hvað verður ofaná í ræktuninni.

 Hér í Eyjarhreppnum verður trúlega sáð í á milli 10 og 20 ha af doðrunni og gaman að sjá hvað kemur útúr því.

 Ekki síður spennandi að sjá hverju Jónatan Hermannsson kemst að á Korpu í sumar.
 Þar verða gerðar tilraunir með Doðruna, sumarrepjuna og nepjuna.


 

13.05.2011 07:44

Lambféð, hundavinnan og eldgamlar hundasögur.

 Ég og félagi minn vorum djúpt sokknir í að grafa upp sögur af góðum hundum frá síðustu öld þegar sauðburðurinn tók af okkur völdin.

 Það kemur hvað eftir annað upp þegar menn rifja upp gamlar hundadáðir, að í leitum og innrekstri þegar átti að láta góðan vel taminn hund vinna eitthvað erfitt verkefni setti hundseigandinn alltaf það skilyrði að aðrir héldu í hunda sína meðan sá góði kláraði málið.

Skyldi ekki einhver kannast við slík dæmi ennþá.

Um sauðburðinn hefur það víða verið óskrifuð regla að halda hundunum frá lambfénu, enda rollurnur harðskeyttar  þegar lömbin eru ung. Þannig hefur það löngum verið hjá mér nema á Lubbatímanum ( ' 72 - ' 82.) enda fátt ömurlegra en rolla á fleygiferð eftir skíthræddum hundi.

Núna eru hundarnir óspart notaðir enda full virðing borin fyrir þeim af flestum ánum.  Ef einhverjar eru mjög harðskeyttar er þó hundunum haldið til hlés, því þó þeir ráði við málið verður að virða  móðurréttinn og ekki að setja upp óþarfa átök.

    Tinni, Snilld og Dáð halda utanum lambféð ofan ristarhliðs meðan ég opna hliðið neðn þjóðvegar.

 Það er eitt af lotteríum lífsins að koma lambfénu ótjónuðu niður fyrir þjóðveg þvi flestir ökumenn nútímans hafa engan sans fyrir því hvernig unglömb geta hagað sér.

 
 Svona nálægð hefði nú ekki verið þoluð í gamla daga en þetta sýnir hver staðan er þegar rollurnar treysta því að hundarnir sýni ekkert óþarfa áreiti.



 Hundarnir stoppa féð af við veginn ef bíll er á leiðinni.


                                                                 Tinni, Dáð og Snilld.

 Þeir læra svo að bíða ofan vegar meðan bóndinn lokar hliðinu því yfirkeyrður hundur er ekki mikils virði.

Og þeir sem kunna sögur af góðum hundum frá síðustu öld eða geta bent á heimildarmenn að þeim, mættu hafa samband.

 Það er ekki síst verið að leita að fyrstu skosku (BorderCollie) hundunum og afkomendum þeirra.
Flettingar í dag: 3070
Gestir í dag: 69
Flettingar í gær: 1220
Gestir í gær: 122
Samtals flettingar: 808203
Samtals gestir: 65333
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 22:42:29
clockhere