10.02.2015 19:57
Já ..Verðið á tömdum hundi ??
Þú ert að selja tamda fjárhunda sagði maðurinn í símanum.
Ég velti því fyrir mér hvort þetta væri spurning eða staðhæfing.
Það kemur aðeins fyrir, svaraði ég svo.
Áttu eitthvað til sölu núna spurði hann þá ?
Nei, sagði ég.
Maðurinn hikaði aðeins og spurði svo hvaða verð væri á tömdum hundi. Nú var samtalið farið að ganga smurt og ég sagðist ekki minnast þess að hafa nokkurntímann selt tvo hunda á sama verði.
Verðin væru jafn misjöfn og hundarnir.
Núú sagði maðurinn , hvaða verð eru þá helst í gangi hjá þér.
Ég játaði það að stundum losaði ég mig við hund sem ég hefði kannski lagt talsverða vinnu í á sæmilegu hvolpaverði vegna þess að hann myndi aldrei virka almennilega.
Já, gæfi þá meira að segja stundum.
Þeir bestu færu á, ja allavega 400 +.
Svo væri allt þar á milli.
Spurningarnar voru ekkert á þrotum hjá viðmælandanum og nú vildi hann vita hvað dýrustu hundarnir hefðu framyfir hina.
Jaaaaa, þeir væru auðvitað mikið tamdir, alhliða öflugir vinnuhundar. Hlýddu þessum helstu skipunum.
100 % öruggir í að fara fyrir og halda saman hóp og koma með hann. Hefðu mikinn vinnuáhuga og úthald. Væru auðvitað gallalausir í daglegri umgengni.
Svo skipti aldurinn talsverðu máli.
Já, og hvað vantar helst í þessa ódýrari spurði náunginn þá og var orðinn mjög alúðlegur í röddinni.
Eg var hinsvegar ekki mjög alúðlegur lengur og sagði að í þessa ódýrari vantaði eitthvað af kostum dýra hundsins , mismikið, þó það mætti hafa gagn af þeim.
Þeir væru minna tamdir og oft væru svo einhverjir gallar í farteskinu annaðhvort í umgengninni eða vinnunni sem ekki löguðust í tamningu.
Er þetta þá ekki endalaust prútt var þá spurt.
Nei , það væri aldrei prúttað. ( Umhugsunarvert en þannig er það ).
Kaupandinn fengi ákveðinn aðlögunartíma og síðan væri málinu lokið. Annaðhvort með kaupum, eða ég tæki hundinn til baka. Eftir að hafa dælt í mig þó nokkrum spurningum í viðbót kvaddi maðurinn.
Ég er hinsvegar enn að velta fyrir mér hvað lá á bak við yfirheyrsluna.
Allavega var örugglega ekki um væntanlegan kaupanda að tömdum hundi að ræða
En þekkingin drepur engan
.

Skrifað af svanur