11.11.2014 20:14
Tíkur , hundar og - geldingar. !
Ég velti því stundum fyrir mér hversvegna svo margir vilja tíkur frekar en hunda þegar ákveðið hefur verið að kaupa hvolp í smalið.
Er sjálfur með tíkur í ræktuninni sem er þó ekki umsvifamikil.
Einfaldara að finna hund í pörun en öfugt, þegar verið er að prufukeyra ættarlínurnar saman.
Ég er hinsvegar ekki viss um að flest þeirra sem leita sem ákafast að tíkarhvolpi séu endilega að stefna að ræktun.
Menn trúðu því á tímabili að ekkert mál væri að losna við lóðaríin og það sem þeim fylgdi með sprautu tvisvar á ári. Þetta er auðvitað hægt en ég held nú samt að þetta sprautudæmi sé á útleið vegna ýmissa aukaverkana sem menn vilja rekja til þess.
Margir trúa því að tíkurnar séu auðveldari í umgengni og tamningu sem er nú að mínu mati ekki rétt.
Þegar svo ótímabær og óvænt gotin koma í heiminn þá er því tekið sem hverjum öðrum húskross.

Þetta var nú samt útpælt
Dálítið spennandi samt og skemmtileg svona á ákveðnum tíma, þó sú ánægja geti orðið dálítið súr ef illa gengur að losna við skemmtilegheitin.
Þó nokkrir vilja að vísu hafA það í bakhöndinni að geta slegið í eitt og kannski tvö got ef tíkin kemur til með að virka við það sem hún á að gera .
Ég hef fullan skilning á þeirri hugsun.

Já , kominn smá hvolpafiðringur enda kannski spennandi got í kortunum.
Ef ég væri hinsvegar ekkert í ræktun, þá er alveg kristaltært að ég myndi láta tíkurnar eiga sig þegar kæmi að því að endurnýja smaladýrin.
Allra hluta vegna.
En það yrði þá grundvallaratriði að láta það sama yfir hundana ganga og smalahestana mína.
Láta fjarlægja úr þeim kúlurnar, svona um eins og hálfsárs aldurinn.
Breytingin á þeim vinnulega séð verður engin, En allt hormónastressið og merkingar á mönnum og málleysingjum og dekkjunum náttúrulega, hverfur.
Bara átakalaust og skemmtilegt líf.
Og ekki nokkur einasta hætta á ótímabæru goti.

Félagi Vaskur er gott dæmi um gelding sem svínvirkaði án kúlnanna og afsannaði kenninguna um óeðlilega holdasöfnun þeirra kúlnalausu.
Þetta var virkilega erfiður hundur í tamningu og notkun framanaf. Fram úr hófi sjálfstæður og fólgrimmur bæði við menn og málleysingja.
Svo erfiður að ég treysti mér ekki til að selja hann sem þó var ætlunin í upphafi.
Svo kúlurnar voru fjarlægðar og Vaskur varð með tíð og tíma aðalsmalinn.
En hafi ég látið mig dreyma um að lundin blíðkaðist eitthvað eða hann yrði meðfærilegri við geldinguna gekk það alls ekki eftir.
Samt ekki frá því að hann hafi róast í daglegri umgengni.
Bara svona til umhugsunar fyrir tíkarleitendurnar
Skrifað af svanur
