09.09.2011 22:37
Hestar og hundur í leit ,- en ekki ég.
Ég fer ekki í leitir þessa helgina en smalaklárarnir eru komnir norður á strandir ásamt knöpum þar sem þeir munu svitna á sunnudaginn.

Þessi aftari er í fríi núna, enda er þetta ársgömul mynd af þeim feðgum Þrym og Neista að mæta nýjárnaðir í hauststörfin eftir hóstasumarið mikla.

Og hann Tinni minn fer þar í sína fyrstu alvörusmalamennsku án þess að eigandinn haldi í hendina, nú eða fótinn á honum í þeirri frumraun. Og dj. held ég að hann eigi eftir að standa sig vel þar, þetta vandamálalausa eintak af BC..
Reyndar sé ég ekki framá að fá að hafa hann í smali fyrr en kemur að eftirleitunum en þá verður gaman að lifa.

Skrifað af svanur