30.06.2009 21:00

Byrjaði illa en endaði vel. Mjólk og rebbar.

  Það kom í ljós þegar mætt var í morgunmjaltirnar að gleymst hafði að kveikja á mjólkurtanknum kvöldið áður. Og það er alltaf jafn súrt að þurfa að hella niður mjólk.

 Nú er fjórðungsmótið á Kaldármelum að bresta á og yngri bóndinn sem er djúpt sokkinn í björgunarsveitarmálin verður því lítið að þvælast fyrir í búskapnum næstu dagana.

 Eftir að við skutum mórauðan ref í fyrrakvöld vöknuðu ýmsar spurninga og þvi ákvað ég að taka hring um fjöllin og kíkja á grenin þó ég hefði svo sem enga trú á þvi að það svaraði einhverjum spurningum.
 
 Geldingaborgin. Hér í hrauninu eru 2 greni sem eru nokkuð virk . Þau voru tóm þetta árið.


 Hnappadalurinn er flottur. Meira að segja Austurbakkinn. Ytri og Syðri Rauðukúlur sem Rauðamelsbæirnir draga nafn af. Gullborgin  fjær til vinstri en Heggstaðir og Heggstaðarmúlinn óljóst í baksýn.



Horft niður Rauðamelsfjallið innst úr Urðarborgunum innaf Geldingarborg. Hlíðavatnið fjær, Oddastaðavatnið nær. Hér fyrir neðan er hraun sem ég þurfti að læðast yfir á hjólinu. Það slapp til þó ég hafi ekki farið þetta í nokkur ár.



Hraunkambagrenið ( Rauðmelsgrenið,sjá athugasemdir ) var nánast árvisst þegar ég var að byrja í þessu og fyrsta grenið sem ég komst á sem gestur í boði Sigga Odds. Mér þótti lítið til koma þegar læðan hljóp nánast yfir lappirnar á okkur án þess að verða nokkurs vör.  Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og það hvarflar ekki að mér að gera lítið úr tófunni . Það hefur hinsvegar ekki leitt út í þessu greni í mörg ár.

 Þetta var síðasta grenið á rúntinum og öll tóm??

 Þar sem ég hafði góðan tíma ákvað ég að kíkja á Höfðaurðirnar á stað sem Svenni í Hlíð hafði bent mér á sem hugsanlegt greni fyrir mörgum árum. Ég hafði reyndar aldrei keypt það að þarna væri alvörugreni því það var norðan í urðarborginni og ég hafði og hef aldrei séð greni á svæðinu sem ekki snýr í suður eða vestur. Reyndar fór ég á það í nokkur ár, áður en ég afskrifaði það nema sem viðkomustað fjölskyldu sem væri komin á flakk.


  Það sjást tveir yrðlingar á myndinni en þeir eru í felulitunum.

  Þarna var enginn umgangur sjánlegur en rétt þegar ég var að yfirgefa staðinn heyrði ég murr í yrðlingi nánast undir fótunum á mér.

 Trúlega hefur læðan farið af stað með yrðlingana eftir að heimilisfaðirinn féll frá og komið hérna síðustu nótt..

En hvaðan hún kom er spurning??

Þarna var mikið fuglalíf. Meira að segja Jaðrakan  spígsporaði þarna um við tjörn rétt við grenið.

Þeir sviku mig samt algjörlega við að tilkynna komu læðunnar sem var nánast samlit mosanum þarna. 

 Hvíta læðan sem laut samt  í gras um rúmum 4 tímum seinna er trúlega með eldri dýrum sem ég hef skotið.
.

Við þóttumst þekkja læðuna sem betri helming þess mórauða sem fyrr er nefndur.
 Hvað segið þið sérfræðingarnir svo um aldurinn á þessum tönnum..

Hún hafði samt skilað 5 yrðlingum í vor enda mikil frjósemi í rebbunum þetta árið.

 Svo er það spurningin fyrir vini mína á austurbakkanum sem eiga, eða taka sér beitarrétt í gósenlöndum vesturbakkans, hvort það sé nokkur sanngirni í því, að þeir njóti grenjavinnslu hér þegar sveitarfélagið þeirra er búið að leggja af þessa þjónustu heimafyrir??. Ja, ég bara spyr nú svona.

  Og enn er a.m.k. 3 spurningum ósvarað í rebbamálunum.emoticon


 

Flettingar í dag: 329
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 363
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 413059
Samtals gestir: 37059
Tölur uppfærðar: 16.4.2024 21:47:11
clockhere