09.09.2008 23:39
Fjölbreyttur dagur.
Það er ekkert atvinnuleysi sem hrjáir okkur í sveitasælunni frekar en fyrri daginn.
Yngri bóndinn er í fullri vinnu að sinna konu og barni og sá eldri heldur uppi dampi á búgarðinum á meðan, með dyggri aðstoð konu og tengadasonar..
Fyrsta júgurbólgutilfellið í langan tíma kom svo upp í morgun svo það var hringt í dýralækninn og skammast yfir döprum penicillinlager búsins. Gamla ræðan sem við Rúnar kunnum báðir um heimskuleg lög og reglugerðir sem takmarka penicillínlager bændanna var þó ekki flutt í þetta sinn né heldur svarræðan hjá Rúnari um helvítis nöldrið í okkur Svenna í Hlíð. En við Svenni erum ábyrgir bændur og vitum að stöðugur penicillínskortur á búum landsins er ekki góður frá dýraverndunarsjónarmiðum og mörg skepnan hefur örugglega fengið að kveljast út á það.
Það var síðan komið við á Hvanneyri með hey og bygg í efnagreiningu, á leiðinni upp að Vélabæ en þar beið aðaldráttarvél heimilisins. Eitthvað sambandsleysi í rafmagnsdótinu hafði verið að plaga hana og búið að komast fyrir það.
Heimkominn var tekin skyndiákvörðun um að koma upp hestahólfi í Hrossholti, staurar vír og græjur teknar til í snatri og vaðið í þetta.
Það tókst að koma niður öllum hornstaurum (7st.) draga út vírinn og byrja að reka niður staura á einum leggnum .þegar doksi hringdi, mættur til að kíkja á kúna.
Að loknum mjöltum var síðan mætt á fund til að jafna niður fjallskilum. Það er nú
orðið meiriháttar mál að jafna mörgum tugum dagsverka á .þessa örfáu rollubændur í sveitinni.
Já það er óþarfi að láta sér leiðast og Týri fékk frí í dag.

Skrifað af svanur
