07.05.2008 03:53
Border Collie ræktun, Týri og áhættufíkillinn.
Ég þverbraut hinsvegar þessa góðu reglu þegar ég ákvað að halda Össu minni undir algjörlega ótaminn hund, Týra frá Daðastöðum. Þetta var samt ákvörðun tekin með einbeittum brotavilja, eftir að hafa farið yfir málið með ræktanda hundsins, sem ég tek mark á í ræktunarmálum. Faðirinn , Dan er innfluttur en ég hef séð tvær tíkur undan honum í tamningu og litist vel á. Þó hundurinn væri alveg ótaminn og stjórnlaus fór ég samt með hann í kindur áður en " ræktunarbrotið " var framið og hef síðan farið aftur með hann eftir að hafa náð nokkurri stjórn á dýrinu. Týri er kominn með gríðarlegan vinnuáhuga og fer nokkuð vel að hlutunum. Hann er með meiri fjarlægð en ég átti von á, reyndar mjög góða fjarlægð og hélt hópnum ákaflega vel saman. Ákveðnin er frábær og þegar ein kindanna gekk að honum til að kanna stöðuna (styrk hundsins) beið hann átekta og óð síðan í hausinn á henni á hárréttu augnabliki. Ég hef reyndar aldrei séð slík tilþrif hjá hvolpi áður. Hann stökk aldrei í hópinn eða beit í öðru tilviki í þessi skipti hjá mér. Mér fannst hann hinsvegar dálítið ör í daglegri umgengni. Reyndar tók mig tvo daga að ná góðu sambandi við hann sem er mjög óvanalegt. Eftir að það náðist var hann fljótur að læra grundvallaratriðin í góðum hundasiðum . Þetta er hundur sem ekki er mikið hafður laus og oft finnst mér að þeir séu trekktari en hinir sem aldrei eru bundnir. (Mæli samt ekki með því.) Rétt er þó að hafa í huga að 3 lóða tíkur á hlaðinu hafa ekki róandi áhrif kröftuga hunda.
Það stefnir síðan í metár í hvolpaframleiðslu og ég hef aldrei vitað af jafnmörgum gotum í gangi í mínum " hundavinahóp" eða a.m.k. sjö. Nú þarf því að tala upp kaupendahópinn svo menn fari í að endurnýja miðlungsdýrin og fái sér eitt "alvöru" svo ekki verði verðhrun á markaðnum.
En ég er semsagt kexruglaður áhættufíkill í ræktunarmálunum.

Skrifað af svanur