Færslur: 2017 Maí
15.05.2017 04:52
Morgunvaktin.
Það er stafalogn og hlýtt.





Klukkan að verða fjögur.

Algjör kyrrð í fjárhúsum og fæðingardeild utan kumrið í tveim nýbornum sem eru að kara lömbin sín.
Önnur á eftir að skila því seinna en gefursér ekki tíma til þess.
Krafsar , setur sig í stellingar til að leggjast.
Hættir við.
Stússast aðeins meira í því nýfædda. Þegar það er komið á spena gefst loksins næðisstund.
Leggst, rembist og seinni gimbrin rennur átakalítið í heiminn.
Sólin er í þann mund að láta sjá sig yfir fjöllin í austri og fuglarnir láta í sér heyra úr öllum áttum.

Tjaldurinn sem er væntanlega að koma sér upp ódýrum verkamannabústað einhversstaðar við afleggjarann er á vappi við snúrustaurana.

Lambærnar sem fóru út í gær, eða í fyrradag reyndar, eru komnar heim undir hús á næturröltinu.

Þær verða svo settar niður fyrir veg í vorhólfið sitt seinnipartinn í dag.
Í " Hundahöllinni " steinsofa 3 tíkur og Sweep ræktunarhundur.
Tíkurnar hafa fengið alltof langt frí frá tamningunum en nú stendur það til bóta.

Tvær þeirra ræktunarhæfar og eru ekki á förum héðan í bráð. Þeirri þriðju verður fundið gott framtíðarheimili í sumar ef tekst að vinna hana útúr vandamálunum sem hún hefur hlotið í vöggugjöf.
Ætli það sé ekki vegna alls þessa plús allt hitt sem ég hef í kringum mig, sem mér líður svona vel inní mér, með kaffibollann við tölvuna.
Skrifað af svanur
11.05.2017 05:10
Sauðburðurinn.
Nú fer að síga á seinni hluta sauðburðar, um þriðjungur óborinn. Gengið þokkalega.






Reyndar mjög vel miðað við síðasta ár sem var dapurt með miklu lambaláti og allskonar. T.d. einungis 5 % gemlinga með lömbum.
Nú er ekki nóg með að allir gemsar sónuðust með lömbum heldur hefur gengið mjög vel með þá .

Fylgst með seinna lambi koma í heiminn.

Orðið rúmt um það óborna .

Þessi á 2 í vændum og uppfyllir þar með ræktunarmarkmið búsins hvað frjósemi varðar.


Lilja frá Bassastöðum sem átti hæst dæmda kollótta hrút í Snæf og Hnapp. í fyrrahaust er hinsvegar að spá í að skila 3 lömbum í ár.

Skuggadís hennar Kolbrúnar Kötlu lætur ekkert raska ró sinni á hefðbundnum hvíldartíma. Enda innan ræktunarstefnunnar í frjóseminni.

Það varð alveg gríðarleg breyting þegar þessari sauðburðaraðstöðu var komið upp. góður dagur í að skella henni upp og nokkrar klst. að taka niður. Vegnar sérlega góðs vetrar var nýtingin á aðstöðunni í hundatamningum vetrarins hinsvegar sáralítil.

Nú er bara beðið eftir að kuldakastið gangi yfir svo hægt verði að drífa féð út í vorið.
Ræktunarmarkmiðið með frjósemina er svo aðeins að klikka því framboðið af einlembum er ekki í takt við þrílemburnar svona á lokasprettinum.
Skrifað af svanur
- 1