Færslur: 2015 September

13.09.2015 20:17

Landskeppni Smalahundafélags Íslands 2015.


Já. Landskeppni Smalahundafélags íslands var haldin að Einholti Mýrum við Hornafjörð helgina 28/29 ág.


´
Þarna var klassaaðstaða, stærðar tún sem virkaði mjög vel fyrir menn, hunda og kindur. Það var Austurlandsdeild sem hélt mótið að þessu sinni en Agnar Ólafsson og stórfjölskylda sáu um nánast alla framkvæmd, veitingar og nefndu það bara . Allt af miklum glæsibrag.


17 hundar voru skráðir til leiks.

6 unghundar, 3 í B fl og 8 í A / opna flokknum.


Unghundar . úrslit.

1. Frigg frá Kýrholti F. Karven Taff M. Loppa frá Dýrfinnustöðum.
Stig 73 + 67 = 140. Smali Aðalsteinn Aðalsteinson.

2. Skutla frá Skálholti F. Karven Taff m . Týra frá Innri Múla.
Stig 60 + 47 = 107. Smali. Marsibil Erlendsdóttir.

3. Doppa frá Húsatóftum.FBrúsi frá Brautartungu m.Kría frá Daðast.
Stig 74 + 30 = 104 Smali Aðalsteinn Aðalsteinsson.


                                        Marsibil og Aðalsteinn 


B flokkur..Úrslit


1. Kátur frá Eyrarlandi f. Mac Eyrarlandi.m. Lýsa frá Hafnarfirði
stig 77 + 74 =151 Smali Agnar Ólafsson.

2.Astra Polar Eyvindarmúla innfl. ISDS 00316260
stig 63 +33 = 96 Smali Kristinn Hákonarson.

3. Gutti frá Hafnarfirði f. Karven Taff m. Ólína frá Hafnarfirði
stig 39 - hætti keppni. smali Sverrir Möller.



                                                  Agnar og Kristinn.


A fl. Opinn flokkur. Úrslit.


1. Kría frá Daðastöðum f.Dan frá Skotlandi. m. Soffía frá Daðastöðum
stig.72 +85 =157 smali Aðalsteinn Aðalsteinsson.

2 Korka frá Miðhrauni. F.Tinni frá Staðarhúsum m. Táta frá Brautartungu
stig 75 +61 = 136. smali Svanur Guðm.

3. Smali frá Miðhrauni f. Tinni. m Táta
stig 70 + 63. Smali Svanur Guðm.



                                                         Aðalsteinn og Svanur.



                                                ágætlega mætt af áhorfendum báða dagana

 Smali frá Miðhrauni hlaut síðan titilinn " besti hundur  mótsins"



 Systkinin Smali og Korka frá Miðhrauni eru 4 ára  . F. Tinni frá Staðarhúsum . M. Táta frá Brautartungu. Korka verður væntanlega ISDS skráð á árinu og verður síðan notuð í ræktun. Hér eru í uppeldi undan henni 5 hvolpar sem verða tamdir næsta ár. 

Er ekki frá því að það verði eitthvað  ;).


07.09.2015 20:53

Allt að gerast í fjárhundunum, - eða hvað ?

 Þó ég sé nú kannski ekki alveg með puttann á púlsinum í ýmsu því sem er að gerast í BC fjárhundaræktuninni á Íslandi þekki ég samt málaflokkinn  dálítið.

  Ég skynja  það t.d. mjög sterkt að eftirspurnin eftir tamningu fjárhunda og tömdum fjárhundum hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin og er umtalsverð þessi misserin.

 Síðustu vikurnar hef ég t.d. - því miður þurft að neita 7 manns um tamningu og staðan hjá mér er sú að ég sé ekki tilgang í að taka þá inn á biðlista.

 Og það er ekki verið að spyrja um verð eða hugsanlegan árangur heldur hvort ég geti tekið hundinn eða tíkina sem fyrst eða þegar hann/hún yrði tilbúin í tamninguna.

 Og þetta gerist þó það sé orðinn nokkur hópur manna víðsvegar um landið að temja í hjáverkum. Væntanlega hafa þeir sömu sögu að segja.

 Breytingin í eftirspurn eftir tömdum hundum er enn meira sláandi því nú eru a.m.k.sumir kaupendanna tilbúnir að borga fyrir góðan hund verð sem mér finnst ásættanlegt . Allavega meðan þessi markaður er að slíta barnsskónum hér á landi.

 Undanfarna mánuði hef ég verið að kíkja inn á erlendar sölusíður fyrir  BC fjárhunda. Þar er umtalsvert framboð af allskonar hundum á allskonar tamningastigum og allskonar verðum  og mér sýnist þessi viðskipti blómstra. 

Þar eru ódýrari hundarnir ekki dýrir miðað við þær tölur sem sjást hér á sambærilegum hundum en þeir dýrari teygja sig nú talsvert uppfyrir hámarksverðin hér.

Reyndar í gæðaflokki sem varla eða ekki finnast til sölu hér.

  Og margir þeirra stoppa ekki lengi á sölunni.

 Undanfarin ár hef ég haldið að mér höndum í ræktun og hvolpasölu vegna þess að mér hugnast ekki hvolpasalan/ræktunin eins og hún er praktiseruð hér.

 Látið verða til got öðru hvoru í stöðugri leit minni að hinni fullkomnu ræktunartík.

 Nú eru hinsvegar að bresta á verulegar breytingar í tamninga og ræktunarmálum yfirritaðs.

 Nú er ég kominn í nokkra ræktun og mun framvegis einbeita mér að því að temja eigin framleiðslu en loka að mestu leiti á aðra tamningu. 

  Ýmist ala upp og selja tamið eða selja hvolpana ásamt mánaðartamningu.

 Stefnan er svo að loka ekki málunum fyrr en viðskiptavinurinn er kominn með hund sem hann sættir sig við, hvort sem hann kaupir tamið eða hvolp með tamningu.



  
 Búinn að koma mér upp ásættanlegri aðstöðu fyrir uppeldið og þá sem ég sel með tamningarpakka.

  Ég hef mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig hunda ég ætla að rækta fyrir íslenska og kannski erlenda sauðfjárbændur en ég er hinsvegar alls ekki öruggur á því hvernig á að fara að því emoticon .

  Nú er svo í farvatninu að flytja inn taminn hund í ræktunina en það er nú og verður alltaf, sama lotteríið hvernig það skilar sér. emoticon

Já, já bara spennandi tímar framundan emoticon
Flettingar í dag: 1504
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 1220
Gestir í gær: 122
Samtals flettingar: 806637
Samtals gestir: 65282
Tölur uppfærðar: 2.4.2025 09:52:20
clockhere