15.05.2017 04:52
Morgunvaktin.
Það er stafalogn og hlýtt.





Klukkan að verða fjögur.

Algjör kyrrð í fjárhúsum og fæðingardeild utan kumrið í tveim nýbornum sem eru að kara lömbin sín.
Önnur á eftir að skila því seinna en gefursér ekki tíma til þess.
Krafsar , setur sig í stellingar til að leggjast.
Hættir við.
Stússast aðeins meira í því nýfædda. Þegar það er komið á spena gefst loksins næðisstund.
Leggst, rembist og seinni gimbrin rennur átakalítið í heiminn.
Sólin er í þann mund að láta sjá sig yfir fjöllin í austri og fuglarnir láta í sér heyra úr öllum áttum.

Tjaldurinn sem er væntanlega að koma sér upp ódýrum verkamannabústað einhversstaðar við afleggjarann er á vappi við snúrustaurana.

Lambærnar sem fóru út í gær, eða í fyrradag reyndar, eru komnar heim undir hús á næturröltinu.

Þær verða svo settar niður fyrir veg í vorhólfið sitt seinnipartinn í dag.
Í " Hundahöllinni " steinsofa 3 tíkur og Sweep ræktunarhundur.
Tíkurnar hafa fengið alltof langt frí frá tamningunum en nú stendur það til bóta.

Tvær þeirra ræktunarhæfar og eru ekki á förum héðan í bráð. Þeirri þriðju verður fundið gott framtíðarheimili í sumar ef tekst að vinna hana útúr vandamálunum sem hún hefur hlotið í vöggugjöf.
Ætli það sé ekki vegna alls þessa plús allt hitt sem ég hef í kringum mig, sem mér líður svona vel inní mér, með kaffibollann við tölvuna.
Skrifað af svanur