24.02.2017 20:25
Kúlur eða ekki kúlur, - hvað er málið ?
Það er velþekkt í hvolpasölunni að tíkurnar eru vinsælli hjá kaupendum.
Skýringarnar á því eru nokkrar en sú veigamesta er trúlega sú að það blundar í mörgum að geta skellt í got ef tíkin reynist vel.
Aðrar ástæður eru þær að sumir trúa því t.d. að tíkur séu meðfærilegri í vinnu , úthaldsbetri, skemmtilegri í umgengni eða sýni öðrum hundum/tíkum síður áreiti o.sv.frv.
Ég er reyndar ósammála öllum atriðunum nema því fyrsta.
Mér finnst skynsamlegra að velja tík frekar en hund ef verið er að spá í ræktun í fyllingu tímans.
Það kemur " stundum " fyrir að hvolpaleitendur spyrja mig hvort kynið sé skynsamlegra að velja.
Ég er löngu hættur að svara þessu beint.
Segi bara ( sem satt er ) að ef ég væri að leita að fjárhundi í vinnu en væri ekki að velta ræktun fyrir mér, veldi ég hund.
Þegar hann væri orðinn svona 15 mán. léti ég síðan fjarlægja kúlurnar.
Rétt eins og ég geri , eða gerði réttara sagt við hesttryppin í den (meðan þau urðu til hjá mér ) .
Dýralæknar tala reyndar um að það sé í lagi að gelda hundana eftir svona 6 - 8 mán aldur en mér finnst skemmtilegra að hundarnir séu nokkurnveginn fullþroskaðir.
Vaskur tapaði kúlunum vegna þess að ég taldi hann óhæfan í ræktun og óseljanlegan vegna þess hversu stórt númer hann var í ýmsu.
Vanaður hundur er laus við alla hormónastreitu, merkingarþörf og áreiti við aðra hunda er oftast lítið eða ekkert.
Engin hætta á flakki og sv.frv.
Tíkurnar eru hinsvegar með sín lóðarí á 6 mán fresti.
Það stendur yfir í um 20 daga í hvert sinn með tilheyrandi pössun ef einhver með kúlurnar í lagi er innan viss radíuss.
Bólusetning gegn þessu er ekki í dæminu hjá mér, því ég er einn þeirra sem trúa þvi að ófrjósemissprauta auki líkur á krabbameini. Ég geri svo engan greinarmun á tík eða hundi, í tamningu, vinnu eða umgengni að öðru leiti .
Sumir nefna fitusöfnun á geldingum sem vandamál.
Mín reynsla er nú reyndar alveg á skjön við þá fullyrðingu.
Gott dæmi um hið gagnstæða eru systkinin Korka og Smali. Hann er þrátt fyrir kúluleysi alltaf í passlegum holdum meðan ég er í vandræðum með Korku sem vill hlaða á sig ef ekki er gætt ýtrasta aðhalds í fóðrun.
Ef við lítum hinsvegar framhjá ofanskráðu er auðvitað mikilvægast að menn séu sáttir við það sem þeir telja best.
Og ef fólk er ánægt með hundinn sinn,- nú eða tíkina , eins og þau eru með eða án kúlna eða ófrjósemissprautna er auðvitað enginn að fara framá meira .
Skrifað af svanur