14.05.2010 03:57
Vorið góða gr... - í gamla daga.
Ég velti því stundum fyrir mér á þessum árstíma, hvort aldrei hafi komið slæmt vor í gamla daga.
Þá er ég að tala um svona 40 ár plús aftur í tímann.
Ekki nóg með að í endurminningunni sé alltaf blíða og hamingja heldur var vorið umgengist af fullri virðingu.
Öllum skólum lokið fyrir sauðburð hvort heldur á möl eða mold.
Meira að segja alþingismennirnir voru sendir heim í sauðburðinn og vorið.
Enda urðu þeir til margfalt minni vandræða þá en nú.
Þó gránað hafi í fjöll í nótt finnst mér að þetta vor sé líkt þessum gömlu góðu.
Það var staðfest í gær þegar ég sá að byggið var farið að gægjast uppúr ökrunum.
Og barnabörn komin í pottinn hjá ömmu.
Aron Sölvi er nokkuð sáttur við það.
Óbornu rollurnar fá að viðra sig yfir daginn og hjartað hennar Höllu Sifjar, ofarlega í hlíðinni vinstra megin við skriðuna orðið vel grænt.
Þrastarhreiðrið á stillansinum sýnir útsjónarsemi foreldranna, en nú er vissara að loka skemmu og hlöðudyrum .
Annars hefst óðara mikil fuglaumferð inn, með allskonar efni til hreiðurgerðar.
Og Móri kallinn sem hefur umgengist grenjaskyttuna af mikilli lítilsvirðingu í vetur var farinn að ergja mófuglinn verulega.
Þegar hann toppað svo lítilsvirðinguna við gömlu grenjaskyttuna með því að bögga lambféð í túnunum gekk hann of langt.
Já vorkoman er í góðum gír.
Nema það mætti fara að senda þingmennina heim.

Skrifað af svanur