06.01.2010 23:40
Eldur á vesturbakkanum, sprengingar á Austurbakkanum.
Vinir mínir á Austurbakkanum eru stórir í sniðum í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur.
Þegar kemur að því að brenna út jólin er það gert með miklum stæl og efnt til mikillar brennu og tilheyrandi láta.
Þeir eru hinsvegar passasamir á að ekki sé verið að brenna neinum spilliefnum og að þessi tuttugu leyfi sem sækja þarf um til Heródesar og Pílatusar möppukerfissins séu öll fyrir hendi.

Reyndar sagði mér einn ósannsögull að þegar dimmt væri orðið en áður en kveikt væri í, væri smágat í eftirlitskerfi brennustjóra hvað varðaði óæskilegt brennuefni en það er auðvitað bara bull,örugglega ættað af vesturbakkanum.

Einn af fréttamönnum heimasíðunnar brá sér á brennuna og staðfesti að allt hefði verið með myndarbrag og einungis hreint timbur í bálkestinum. Nema hvað.

Það var fjölmennt í góðviðrinu og flugeldarnir breyttust með glæsilegum hætti úr fullt af þúsundköllum í nánast ekki neitt.

Munurinn á bönkunum sem hrunflokkarnir gáfu vinum sínum og flugeldunum var sá að þegar bankarnir urðu að engu skildu þeir eftir mun þyngri byrðar fyrir okkur en flugeldarnir.

Já, þrátt fyrir að hafa lifað betri tíma í fjármálunum splæsti Borgarbyggð í veglega flugeldasýningu sem var í umsjá björgunarsveitarinnar Elliða.

Á Vesturbakkanum var öllum sprengingum sleppt við brennuna á laugardagskvöldið enda hrossavænt fólk þeim megin.

Svona gerist bara á vesturbakkanum.

Já nú er búið að loka á jólin í bili og fjörugur vetur framundan í landsmálunum.
Þó lýðskrumararnir séu lagðir á flótta frá ruglinu sem þeir hafa hamrað á síðasta árið.
Fullt af myndum í albúmi, smella .Brennur austur og vesturbak...NÝTT

Skrifað af svanur