31.10.2009 08:10
Gæsaveiðilokin og veiðimennirnir.
Nú fer gæsaveiðin að styttast í seinni endann hér, enda byrjað að plægja akrana þó enn sé mikið af fugli.

Þetta er fyrsta haustið sem veiðin er skipulögð í alvöru og faglega staðið að málum af hendi okkar sem settum 3 samliggjandi jarðir með um 50 ha. af byggökrum í púkkið.
Þó þetta hefði verið sett upp þannig, að fugl hefði verið 1-2 daga á akrinum áður en veiði var reynd gekk veiðimönnunum misjafnlega. Sem betur fer er aldrei neitt öruggt í veiðinni og menn voru að fá allt frá engu og upp í 79 fugla ( 2 byssur) í morgunfluginu.
Þegar staðið er í þessu er manni ekki sama hvernig veiðimaðurinn er, sem fer með skotvopn um svæðið.
Sem betur fer er til fullt af alvöru veiðimönnum sem fara eftir reglunum með fjölda skota í byssunni, láta blesuna vera og eru að ná góðri nýtingu á skotin. Sannir veiðimenn.
Hinir eru samt óþarflega margir sem byrja á því að renna skotpinnanum úr haglaranum þegar komið er í skurðinn og setja of mörg skot í magasínið.
Það fer síðan saman hjá þeim sem þurfa á þessu að halda, að skotnýtingin mætti oft vera betri.
Það er oft hljóðbært á svæðinu og við heyrum í skothrinunum þegar flugin koma inn.
Við heyrum líka hvort skotin eru óeðlilega mörg miðað við byssufjöldann.
Það gerist síðan óþarflega oft að veiðitölurnar eru ekki í neinu samhengi við skothrinur og skotfjölda sem þýðir að menn eru of gikkbráðir og tæma byssurnar út í loftið í einhverju óraunsæi.

Flugið að koma inn og betra að fara ekki á taugum. Góð skytta hefur ekkert að gera með fleiri en þrjú skot í byssunni.
Þó ég sé ekki heilagur líkar mér þetta ekki og þar sem ég veit að tuð við veiðimenn muni ekki breyta þeim, fara þeir grunsamlegu aftast á biðlistann og haldast þar. . En það hefur verið almenna reglan í haust að menn biðja um að fá að koma aftur, í sumum tilvikum þó ekkert hafi veiðst.
Og nú er spurt um rjúpuna en hún er alfriðuð hér á nokkrum samliggjandi jörðum.

Rétt eins og þessi höfðingi hér.
Nú munu veiðileyfasalar setjast niður, fara yfir reynslu haustsins og velta fyrir sér framhaldinu.

Skrifað af svanur