21.09.2009 19:42
Réttað í Þverárrétt.
Það var spáð bæði roki og rigningu.
En rétt eins og lausafjáreigendur fengu gott veður í bankahruninu í boði Sollu og Geira, og náttúrulega skattgreiðenda, þá fengu eigendur fjárins í Þverárrétt þetta fína veður meðan réttin stóð yfir.
Enda ekkert of gott fyrir vini mína á Austurbakkanum.

Hér er safnið í girðingunni og það var alveg örugglega með flesta móti.

Og ekki vantaði mannskapinn til að reka það inn í réttina.

Þessi skildi ekkert í eigandanum að koma ekki í réttina að taka á móti sér.

Og ekki þessi heldur.

Ég kann nú enga skýringu á þessarri uppstillingu en gott mál að festa hana á filmu (eða þannig.)

Og þessi vinur minn af Austurbakkanum hefur náð sér í næstum alvöruhrút, enda skilamaður í réttinni.
Umboðsmaður SS var að sjálfsögðu mættur á staðinn til að gæta þess að féð rynni til réttra aðila þar sem það yrði fryst í ótiltekinn tíma. Hann er örugglega ekki syngjandi þarna, en trúlega að fullvissa réttarstjórann og umboðsmann Valtra í réttinni, um eitthvað mjög þýðingarmikið.

Og síðan var farið í að versla sér eina gimbur til búdrýginda í kreppunni.
Fleiri myndir hér aftast í albúminu (síða 7 og aftar). Smella hér. Þverárrétt 2008/9NÝTT
Skrifað af svanur