24.07.2009 20:50
Danirnir og hundasjóið.
Það varð vandræðaleg þögn hjá Dönunum þegar ég spurði hvort nokkur bóndi væri í hópnum.
Svo glaðnaði yfir þeim á ný þegar ung stúlka upplýsti að afi og amma væru bændur.
Trúlega er hart í ári hjá dönskum kollegum mínum því enn hefur enginn bóndi verið í hópunum sem hafa komið til mín í sumar. Í fyrra voru alltaf nokkrir og í einum hópnum voru flestir bændur.
Þessi bændaskortur hefur óneitanlega nokkur áhrif á spjallið sem er alltaf bæði á undan og eftir því, að ég sýni þeim hvernig Border Collie hundarnir vinna að kindum.
Þessar sýningar eru bundnar við eina ferðaskrifstofu og einungis fyrir þá hópa sem gista í Hótel Eldborg.
Þau koma til mín á kvöldin eftir kvöldmatinn og það var dræm mætingin í fyrstu hópunum enda sögðu gætarnir mér að allir væru orðnir þreyttir eftir daginn og þetta höfðaði ekki til allra.
Nú hljóta leiðsögumennirnir að gylla þetta eitthvað fyrir þeim því allur hópurinn mætir og ég fæ
víst 4 línur í ferðabæklingnum hjá þeim.
Trúlega gæti ég verið í fullu starfi við þetta yfir sumarið miðað við þessar undirtektir og rútufjöldann sem fer hér framhjá daglega.
Ég er fremur slakur með sýningarprógrammið enda er þetta yfirleitt fólk sem þekkir lítið til smölunar og hundavinnu.
Stundum læt ég hundinn reka þríhyrninginn ( keppnisbraut í fjárhundakeppnum) en oft læt ég duga að vinna eitthvað með kindurnar nálægt fólkinu.
Þó Vaskur sé alltaf nálægur er það Snilld sem ber hitann og þungann af sýningunum í ár.
Hér er hún að fara í fyrra hliðið í þríhyrningnum.
Hér stýrir hún þeim inn í hliðið og síðan þarf hún að fara vinstra megin fyrir þær og koma þeim gegnum seinna hliðið.
Þó það sé þýðingarmikið að fara þetta þráðbeint og fallega í fjárhundakeppni býður maður ekki Dönskum gestum upp á það, heldur verður að búa til einhver vandræði. Þeir sem hafa séð fjárhundakeppni vita að það er afar auðvelt.
Hér eru kindurnar komnar útúr brautinni og Snilld réttir þær af.
Og í gegn fara þær við mikinn fögnuð áhorfenda.
Það er eins með góða sýningu og góða vísu að endirinn á sýningunni eða síðasta línan í vísunni verða að vera góð ef einhver á að muna þetta.
Vaskur sem fær að hjálpa til við að reka inn í réttina í lokin, og fær síðan stundum að taka þátt, ef ég hef fengið mjög skynsamlegar spurningar fyrir sýninguna, sér um að botna þetta fyrir mig.
Hann styttir sér leið við að reka útúr réttinni og þetta framkallar alltaf mikil fagnaðarlæti.
Sérstaklega ef hann lendir ofaná hópnum.
Megið þið svo eiga góða helgi.