06.04.2009 07:15
Allt á réttri leið.
Í svefnrofunum í gærmorgun heyrði ég einhver torkennileg hljóð utanað mér.
Mér fannst ég kannast við þau og það glaðnaði yfir mér í útkikki morgunsins að sjá stokkandaparið mætt á tjörnina.
Þau höfðu verið að spjalla saman í fyrstu morgunskímunni ánægð yfir að hafa náð þessum áfanga enn einu sinni.

Hjónakornin voru vör um sig til að byrja með enda löngu búnin að læra það ( sem betur fer) að engu er að treysta þegar mannsskepnan er annarsvegar.
Til að forðast misskilning er rétt að taka fram að hér fyrir ofan eru þau að spássera á ís, því þó þau séu heilög hér, er ekki gengið á vatni enn.

Hér er sú gamla að siða til annaðhvort dóttur sína eða tengdadóttir síðastliðið sumar.

Hún hafði fullan sigur í þeirri viðureign án aðstoðar ektamakans og var mjög reigingsleg á svæðinu sínu á eftir.

Steggirnir eru ekkert að skipta sér af svona innanríkisdeilum og eru nú yfirhöfuð slakir í uppeldinu.
Þeir eru nú kannski ekki einir um það.
Já , þó aðeins hafi kólnað, þá er vorið handan við hornið.

Skrifað af svanur