22.01.2009 21:58
Óstjórn, þjóðstjórn, óbreytt stjórn eða einhver stjórn??
Þó ekki virðist mjög spennandi tímar framundan í í lífskjara og dótakapphlaupinu, blandast engum hugur um, að nú er allt að gerast í pólitíkinni. Refskákin komin á fullt og stjórnarslitin að bresta á.
Gúrúinn sem talaði við mig í dag, sagði sem satt var að nú væru sjálfstæðismenn í þröngri stöðu.
Dyttu þeir út úr stjórnarsamstarfi eins og stefndi í, ættu þeir sér ekki viðreisnar von næstu 2 kjörtímabil. Það yrði þeim óbærilegt og myndi valda miklum skakkaföllum á valdapýramídanum sem þeir hafa komið sér upp.
Eina færa leiðin fyrir þá, væri að leggja til þjóðstjórn sem myndi starfa fram að kosningum næsta haust. Til að gera tillöguna trúverðuga yrðu að koma að stjórninni einhverjir utanflokkamenn.
Kratarnir væru í áfalli eftir síðustu skoðanakönnun og illa staddir með formanninn í tvísýnum veikindum. og engan tilbúinn í að stjórna kosningarbaráttu, sem kæmist með tærnar þar sem Ingibjörg hefur hælana í þungavigtinni. Svona tillaga gæti því hentað þeim ágætlega og róað grasrótina.

Vandamálið sem VG eiga svo eftir að glíma við í kosningarbaráttunni hefði svo komið mjög skilmerkilega fram í kastljósinu í gærkveldi þegar Steingrímur hélt fluginu með glæsibrag þar til Sigmar bað hann að svara spurningunni hans Geirs um hvort hann myndi skila láni gjaldeyrissjóðsins þegar hann væri kominn í stjórn. Það gæti verið dálítið vont að fara framúr sér í gagnrýninni og eiga svo að taka við að leysa málin.

Ég held að vinur minn gúrúinn, sé dálítið munaðarlaus í pólitíkinni eins og ég.

Skrifað af svanur