04.07.2008 22:46
Þjónustan í lagi.

Þessir eru næstum nákvæmlega eins og pöntunin hljóðaði upp á í útliti.
Svo er það innrætið???
Síðast þegar Dalsmynni sf. fjárfesti í dráttarvél var sest niður með Finnboga og merkt við hvaða aukabúnaður ætti að vera í græjunni, enda pöntuð með 6.mán. fyrirvara. Finnarnir klikkuðu svo á einu þungaviktaratriði, sem þeim verður seint fyrirgefið.
Þegar pantaður var hjá mér hvolpur í nóv.s.l. sem átti að vera afmælisgjöf til eiginmannsins var farið nákvæmlega yfir óskalitinn, ásamt því hvernig væntanlegt dýr ætti svo að vera í fasi og framkomu.
Þessir guttar hér að ofan eru ekki þrílitir en annars er útlitið samkvæmt ýtrustu óskum kaupandans.
Og þar sem ég hef að sjálfsögðu tröllatrú á gotinu, hef ég engar áhyggjur af því að þarna verði einhver vandamáladýr á ferðinni, enda stefnan ekki sett á nein ofurdýr.
Loksins komst svo ró á veðurguðina og hægt var að koma áburðinum á túnin og viðbótinni á rýgresið, en sáðvélin er þeim annmarka háð að geta komið max 400 kg af áburði á ha. með fræinu. Nú er bara beðið eftir rigningunni sem kemur alveg örugglega einhverntíma.
Ætli verði svo ekki kíkt á alvöruhross á landsmóti á morgun.

Skrifað af svanur