Blogghistorik: 2012 N/A Blog|Month_1
28.01.2012 12:26
Krosslagðir fingur, og úrkoma í fljótandi formi.
Nú er brugðið til betri tíðar eins og einhver sagði og endalaus hlýindi og rigningar í kortunum. Rétt eins og þegar beðið var þurrks á rigningarsumrunum í gamla daga.
Nú er votviðrið betur þegið og maður situr í hljóðri bæn með krosslagða fingur, andaktugur á svipinn í þeirri von að ekki linni fyrr en allir klaki er af túnum.
Svona litu túnin út í morgun og svellin sem koma í ljós undan snjónum hafa trúlega verið þarna í um 2 mán. eða svo.
Gæti sloppið til með kalið ef þetta tæki nú upp núna.
Þó aðeins hluti af affalli hússins sé notaður undir planið er það eins og lítil vin í eyðimörk skafla og svella a.m.k. þegar slær á frostið og sjókomuna.
Kemur sér vel fyrir litlu dekurprinsessuna og bræður hennar sem eru farin að skondrast úti þegar viðrar í það.
Það er svo rétt að játa það, að tekið er skýrt fram í ofangreindum bænastundum að algjör óþarfi sé að vera nokkuð að eiga við snjó ofan 100 m. hæðarlínu.
Óþarfi að vera með einhverja frekju eða óhóflegar kröfugerðir.
26.01.2012 22:36
Eyja og Miklaholtshreppur, fjárhagsáætlun og flókin stjórnsýsla.
Hér er slóðin á hógværa og látlausa úttekt á stöðu sveitarfélagsins míns í tilefni af fjárhagsáætlun þess fyrir árið 2012. Hér.