21.01.2014 08:04

Hundatamningarnar og áfangarnir.


  Ég er stundum spurður að því hvað taki langan tíma að temja eitt st. hund ?


 Það fer eftir viðmælandanum og því hvernig liggur á mér hvert svarið verður.


Oftast skauta ég yfir málið með því að segja að þetta sé svona svipaður tími eins og að temja hest.


Sem segir auðvitað ekkert.


Eftir að ég fór í hlutastarf við að temja fjárhunda gerist það sjálfkrafa með bættri aðstöðu, að skipulagningin verði önnur en í dundinu áður.

 Skæruliðahólfið var nú ekki notað svona, nema einu sinni.


 Nú skipti ég tamningunni í áfanga og þó skilin milli þeirra sé kannski ekki mjög skýr finnst mér það henta því vel sem ég er að gera.


 Nú er fyrsta áfanga lokið með systkinahópinn sem  ég byrjaði með fyrir rúmri viku.

 Ég hef aldrei áður verið með svona systkinahóp tekinn inn sama daginn .

 Hér eru systkinin á frídegi eftir vikutörn. Frökk litla t. h. sem er yngri og ekki alveg tilbúin fær samt að spreyta sig öðru hvoru sem aukanemandi.


Og þar sem ég er ræktandinn að hópnum finnst mér aldeilis frábært að geta spáð í útkomuna og fengið að vinna úr henni.  Einn í hópnum er nánast alveg copy - paste af móður sinni en hinir eru blandaðri.


 Þau eru þó það lík að ég útskrifaði þau öll úr áfanga eitt, á sama tíma . Það er ekki hefðbundið hjá mér með fjögurra hvolpa hóp sem kemur sitt úr hverri áttinni.


   Neró er alveg með þetta í genunum.

 Til að byrja áfanga 2 þurfa nemendurnir að vera orðnir mjög öruggir í að halda hópnum að mér.



Ég vil geta stoppað þá af hvar sem er, helst án þess að þurfa að hækka röddina.


 Hægri og vinstri skipanirnar eiga að koma þeim af stað úr kyrrstöðu þó það sé langt í land með að þeir séu öruggir á áttunum.


Og síðast en ekki síst eiga þeir að yfirgefa kindurnar og koma til mín við skipun.


 Ég mæli hiklaust með því að þeir sem eiga efnilegan hvolp og langar að temja hann sjálfir, en hafa kannski ekki aðstöðu eða kindur í það, kaupi þennan áfanga hjá einhverjum tamningarmanni nálægt sér.

 Það flýtir ótrúlega fyrir og auðveldar eftirleikinn.

 Tamningamönnunum  fjölgar sem betur fer hægt og örugglega.


 Eftir áfanga 1. vil ég komast í meira rými með kennsluna, helst út á stórt tún laus við girðingar og skurði.


 Hér er afi hvolpanna , Tinni frá Staðarhúsum kominn vel af stað í áfanga 2.


 Þá er farið í að senda hundinn lengra frá sér eftir hópnum og sett aðeins meiri pressa á hliðarskipanir.

 Þarna er ákveðið hvaða form ég held að henti eigandanum og hvort eitthvað þarf að breyta vinnulagi hundsins í því sambandi. Stundum þarf að víkka úthlaup eða þrengja. Ákveða hvort hann eigi að koma viðstöðulaust með hópinn eða stoppa þegar komið er fyrir hann o.sv.frv.


 Ef það eru ákveði tímamörk á því hvað ég hef hvolpinn lengi forgangsraða ég áherslunum eins og ég held að henti best í hverju tilviki.


Það er sjaldgæft að menn splæsi í áfanga 3, en þá er farið í alvöru vinnu með óvanar kindur og kennt ýmislegt bráðnauðsynlegt .

En það komast nú ótrúlega margir hundaeigendur ágætlega af án þeirrar kunnáttu hundanna sinna.


Það er svo kannski rétt að upplýsa það að hvolpur sem er ekki gott efni eða kemur skemmdur úr uppeldinu getur stoppað býsna lengi í áfanga 1 .



Flettingar í dag: 282
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 816
Gestir í gær: 81
Samtals flettingar: 418945
Samtals gestir: 38071
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 22:56:09
clockhere