19.03.2010 23:41

Hámarka hagnað,lágmarka tap? Eða gefa skít í allt saman.

  Ég held að það sé næstum liðin tíð að bændurnir hringi í sölumann áburðar,  í kaupfélaginu sínu og segist ætla að fá sama áburð og í fyrra.

  Fyrir því eru fyrst og fremst tvær ástæður.

 Önnur er sú, að mér vitanlega eru ekki nema  2 kaupfélög eftir í landinu.
Reyndar ekki nema  1 alvöru, sem á bændurnar ( og þeir"eiga " það náttúrulega) sem eru í svona reikning sem ýmist er í + eða - á áramótum eftir því hvort það er 2007 eða 2010. 

 Hitt er KBéið mitt sem er að vísu vaxandi, og ég er meira að segja farinn að versla þar á fullu aftur, vegna þess að mér líkar  vel við starfsfólkið sem lætur sig ekki hverfa bak við næsta rekka ef ég birtist. Það er samt ekki alvöru eins og í gamla daga og liðin tíð að menn fái sér ekki falskar tennur af því að kaupfélagið er ekki með þær.

 En þegar meira að segja Jón í Kolviðarnesi er hættur að kaupa áburðinn þar, þá og bregðast krosstré sem .....  ...


 Jón er nú ekkert í áburðarkaupshugleiðingum þarna, enda að stjórna leitum á Rauðamelsheiðinni.

 Hin ástæðan er sú að áburðurinn er orðinn alveg óhugnanlega dýr og menn leggja sig virkilega í líma við að ná notkuninni á honum niður eins og þorandi er.

 Þessa vikuna hef ég legið yfir áburðaráætluninni og Siggi Jarls. var orðinn virkilega þreyttur á mér áður en lauk.

 Það er erfitt að meta með einhverri vissu hvernig skíturinn nýtist og ekki minnkar óvissan við það að verulegur hluti hans er enn í húsi og engin leið að spá því hvort hann kemst á túnin/akrana á réttum tíma.

 Það er alltaf lotterí að koma skítnum út , helst áður en klaki fer úr en án þess að fá stórrigninguna á hann á frosinni jörð.

 Aðalpælingarnar liggja í því hvað skíturinn eða búfjáráburðurinn á að vigta þungt í dæminu og nú er eðli málsins samkvæmt gerð bjartsýnisáætlun með toppnýtingu á búfjáráburði.

 Og hann er látinn vikta verulega miklu meira í áætlun búsins nú en fyrir bara svona 2 árum.

 Að þessu sinni er til viðbótar gert ráð fyrir því að nota búfjáráburð í byggakrana að töluverðu leyti.


Hvernig sem fer með uppskeruna í haust verður þetta síðasti akurinn í Dalsmynni með Olsok yrki því bændurnir hafa ákveðið að nota það ekki framar.

Þetta eykur lotteríið í byggræktinni verulega og  er dagamunur á því hjá bóndanum hvort hann talar um að þetta muni hámarka gróðann eða hvort hann ætlar að lágmarka tapið með þessu.

 Í seinna tilvikinu er þungt yfir honum, og líklegt að hann hafi farið öfugu megin framúr.

 En við Siggi J. erum semsagt búnir að lenda málinu, og fyrsta áburðartilboðið barst mér í dag og tvö eru síðan væntanleg eftir helgina.
  Fyrst þá verður svo tekin ákvörðun um hvað mikið verður lagt undir í byggræktinni þetta árið.

 Þá er spurning hvoru megin farið verður framúr? emoticon
Flettingar í dag: 218
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 863
Gestir í gær: 52
Samtals flettingar: 422251
Samtals gestir: 38489
Tölur uppfærðar: 2.5.2024 16:53:26
clockhere