10.11.2009 23:58

Símaófriðurinn, þak og heybirgðir.

 Það var lítill friður við plæginguna í dag.

 Síminn var ekki til friðs og svo var maður tekinn í þakvinnu um miðjan daginn.

 Þau voru margvísleg erindin hjá símavinunum.

Sá fyrsti kvartaði yfir því að hann kæmist ekki inn á heimsíðuna hjá mér og við vorum innilega sammála um að það gengi nú ekki.

 Síðan hringdu tveir áhugasamir byggkaupendur en það virðist haldast í hendur, að þegar öll framleiðslan er seld þá stoppar ekki síminn vegna áfjáðra kaupenda.
 Núna er ég alveg sérstaklega vinsæll hjá hobbýfjárbændum á norðanverðu Nesinu og á Vestfjörðum. Sá úr Tálknafirðinum ætlaði samt ekki " villifénu" byggið sem hann vantaði.

 Það er svo greinilegt að starfsmenn Búvest eru á fullu núna því tveir þeirra voru í hópnum.

Ég lofaði Sigga Jarls því að vera við tölvuna kl. 8.30 í fyrramáli.

 Og þakvinnan tilheyrði efra húsinu en þar er verið að taka allt í gegn. Búið að skipta um alla glugga og hurðir. Innandyra er svo málningarvinna á fullu.

 Þakjárnið var svo rifið af í dag og nýju skellt á.


 Smiðirnir og bóndinn á fullu að gera klárt fyrir járnið en allt timbur var algjörlega ófúið í þakinu.

 Þetta hús var byggt 1965 og orðið tímabært að gera eitthvað róttækt en það fer þó ekki milli mála að allt timbur og járn hefur verið í allt öðrum standard á þessum tíma en í dag.



 Ég eyddi þó ekki nema 3 tímum í þakið og náði að plægja nokkra hektara en akrarnir eru samt  ansi blautir eftir mikið úrhelli um helgina.



 Já hér hafa svo heybirgðir vetrarins lent inni á mynd hjá mér og nú getið þið talið rúllurnar ef ykkur leiðist. Ég ætla ekki að segja töluna en svona miklar heybirgðir hafa ekki verið til í Dalsmynni fyrr.

Það var nú reyndar ekki þetta sem ég ætlaði að blogga um en hitt kemur seinna.emoticon

 
Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1482
Gestir í gær: 56
Samtals flettingar: 448800
Samtals gestir: 41438
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 00:51:16
clockhere