08.01.2009 23:09

Sleppitúrar og óhagstæður viðskiftajöfnuður??.


  Það var komið svartamyrkur á Hrútafjarðarhálsinum á suðurleið. Þar byrjaði síðan að rigna og síðan bætti stöðugt í rigninguna þar til heim var náð.  Ljósin virtust hverfa ofan í svartan veginn og bíllinn á undan okkur virkaði frekar ótraustvekjandi. Oftast á eðlilegum hraða en sló af þess á milli og stundum var hann kominn á öfugan veghelming.

  Aldrei þessu vant var fjögurra hesta kerran tóm á leiðinni að norðan en hafði farið full norðuryfir.
Það er svo matsatriði hvort það er hagstætt eður ei á þessum viðsjárverðum tímum.

 Reyndar höfðum við komið við hjá Ólafi á Sveinsstöðum og kíkt á 3 tamda hjá honum. Ég prófaði þann fyrsta sem hann sýndi okkur. Ágætur klár en ekki það sem við leituðum að.
 Hinir tveir voru sýnu betri. Það urðu þó ekki viðskifti að sinni enda margt í boði og allur veturinn framundan.
  Á Hvammstanga hittum við einn sem var í óðaönn að skipuleggja reiðtúr að norðan á Löngufjörur og til baka aftur. Ég á örugglega eftir að heyra í honum, áður en hann lokar ferðaáætluninni hjá sér.

  Þetta kveikti hins vegar í okkur félögunum, sem búum við það að Sleppitúrinn okkar er í lausu lofti og komið framyfir áramót. Stöðugt fleiri sem melda sig í að fara með en arkitektar ferðarinnar láta ekkert sjást í tövupóstunum sem að öllu eðlilegu ættu að vera á fullu núna. 

  Eftir að hafa blásið út um þetta háttalag félaganna gátum við snúið okkur að vangaveltum um bændareið sumarsins 2009. Þær vangaveltur fóru hinsvegar fram í fullum trúnaði og munu ekki sjást hér , allavega ekki strax.

   Það er svo óþarft að taka fram að við þessa umræðu okkar Einars, lýstist þokan , vegurinn og myrkrið verulega upp.

   Og óöruggi bíllinn sem angraði mig á tímabili var hvergi sjánlegur.emoticon
Flettingar í dag: 113
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 2949
Gestir í gær: 288
Samtals flettingar: 431041
Samtals gestir: 39820
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 02:06:54
clockhere