Tækjadótið á búinu.

Svona græjar nágranninn Feggann sinn fyrir vor og haustverkin ef þörf krefur.

Aðalvélin á bænum.148 ha Valtra með ótal sérpöntuðum fídusum. Fjöðrun á húsi og framhásingu og breiðustu dekkjum sem hægt var að koma undir hann m.a.

Pöttinger múgavél . Hún rakar til hliðar. Hægt er að færa stjörnurnar sundur með vökvatj. og bæta múgspjaldi á milli þeirra. Þá eykst vinnslubr. um 1 m. og múgarnir verða tveir.Með því að lyfta h. stjörnunni er hægt að minnka vinnslubr. um helming.

Pöttinger servo 25 vendiplógur . Þetta er léttbyggð gerð án vökvaskekkingar en með vökvaútslætti.
Aflþörf 120 -140 hö.

Slegið rýgresi. Pöttinger með knosara, vinnslubr. 3.4m.

Viconinn er eign Yrkja ehf: og er greitt fast gj. á rúllu.

Það er síðan samvinna við grannann um rúlluaksturinn.

Fjórhjólið fullbúið í girðingarvinnuna. Hægt er á einni mín.að skipta á pallinum og aukasæti sem kemur sér oft vel.
Fleiri myndir. http://dalsmynni.123.is/pictures/cat/9397/
