Bændur og búreksturinn.
Að búrekstrinum standa gamla settið, Svanur og Halla ásamt Atla Sveini og Guðnýju.
Húsfreyjurnar ánægðar með gang mála á folaldasýningu.
Yngri bóndinn horfir á fréttirnar með hinn yngri bóndinn gluggar í bíblíu sauðfjárbænda.
Stofnað var sameignarfélagið Dalsmynni sf um reksturinn, jörð og byggingar með Atla. Eiga hvorir aðilar 50 % í félaginu.
Sameignarfélagsformið var valið eftir mikla yfirlegu og er það að svínvirka hér.
Auk hefðbundna búrekstursins er unnið við grunnskólakennslu (Halla),. Tamningar og fleira , (Guðný) og verktakavinnu við girðingar, Svanur og Atli. Þá er refa og minkaeyðing í Eyja og Miklaholtshrepp unnin á vegum Dalsmynnis sf.
Tamningar á hundum og leiðbeiningar við þær koma aðeins upp og er greinilega vaxandi eftirspurn eftir tamningu á hundum og tömdum hundum nú um stundir.
Þarna er verið að kenna nemandanum að reka hópinn á undan sér frá smalanum.
Tækjakostur búsins er ýmist í sameign með öðrum, jarðvinnslutæki, múgavél og rúlluvélasamstæða, eða eign búsins, dráttarvélar, sláttuvél o.fl. en samið við verktaka um sáningu og þreskingu á byggi.
Sem sagt nóg að gera í sveitinni.