Kýrnar.

Hér eru um 45 mjólkukýr og annað eins af ungviði, allt  frá smákálfum uppí kvígur komnar að burði.

  2004 var ákveðið að leggja aðaláhersluna á mjólkurframleiðslu á búinu.

Góðu 400 kinda fjárhúsunum var breytt í hátæknilausagöngufjós með sjálffóðrun og mjaltabás en kindunum fækkað og þeim komið fyrir í flatgryfju og hlöðu.

  Fjósið sem lagt var niður við þessa breytingu var byggt 1972, 24 bása með rörmjaltakerfi. Breytingin á vinnuaðstöðu er eiginlega ólýsanleg.


 Búpeningurinn er mjög ánægður með breytingarnar og bændurnir hæstánægðir.


Uppeldið á kálfunum breyttist mikið við að þeir  komust  á hálminn.


 Sac básinn gerir það gott. Hann er 2 X 6  og mjög tæknilegur.



 Það eru keyrðar inn 4 rúllur í einu, tvisvar ,plús í víku.



  Það er samt alltaf sama fjörið þegar þær komast fyrst út á vorin.

 

 

 

 

 

 

 

  Hér eru þær farnar að róast í rýgresishánni.

Fleiri myndir. http://dalsmynni.123.is/pictures/cat/8547/

Antal sidvisningar idag: 94
Antal unika besökare idag: 1
Antal sidvisningar igår: 2486
Antal unika besökare igår: 103
Totalt antal sidvisningar: 447395
Antal unika besökare totalt: 41379
Uppdaterat antal: 19.5.2024 00:24:08
clockhere