Færslur: 2014 Mars
23.03.2014 08:16
Veturinn fjöllin o.fl.
Já, það fær mig enginn til að halda því fram að þessi vetur, sem er sem betur fer á síðustu metrunum hafi verið góður veðursfarslega.
Ætla samt hvorki að þreyta mig né aðra með nánari lýsingum á því en þrátt fyrir tíðarfarið hefur veturinn liðið hratt hjá undirrituðum enda í nógu að snúast..

Hundatamningarnar hafa tekið drjúgan tíma í vetur og gæðin hjá nemendunum hafa verið með besta móti sem gerir þetta allt miklu skemmtilegra. Á myndinni hér fyrir ofan sem tekin var í gær er ekki nema einn aðkomu, en það verður bætt úr því í dag og á morgun, enda fullskipað þessar tvær vikur sem eftir eru í tamningum þennan veturinn.

Skaflahlíðin sem er vestaní Dalsmynnisfellinu ber nafn með rentu eins og hún gerir reyndar oftast og leit svona út í gær en það er nú eiginlega fyrsti almennilegi dagurinn síðan daginn tók að lengja fyrir alvöru.

Ekki mikill snjór hér í um 140 m. en ágætis snjóbúskapur þegar ofar dregur. Kannski eiga eftir að sjást myndir af því þegar gefur til að snjósleðast pínulítið.

Og hér sést inn Núpudalinn með fyrrnefnda Skaflahlíð á hægri hönd, Svörtufjöll sem eru reyndar með bjartasta móti og Skyrtunnu fyrir miðri mynd.

![]()
Hér eru svo Svörtufjöllin og Skyrtunnan séð úr austurátt fyrir nokkrum árum, trúlega svipuð snjóalög núna.
Já, það er ljóst að veturinn rennur út á örskotshraða eins og vanalega þegar þessi tími er kominn.
11.03.2014 07:28
Fjárhús byggt.







- 1
