Færslur: 2008 September
16.09.2008 16:33
Lækirnir skoppa, hjala og .....
Þó að við akuryrkjumennir séu dálítið framlágir þessa stundina liggur vel á lækjum og ám sem leika við hvern sinn fingur eða flúð, í stórrigningunni. Og tjarnir og vötn sem hafa verið í sögulegu lágmarki eftir sumarið, eru nú útúrfull eins og ???............
Núpáin sem er búin að seytla milli steina í sumar lítur út eins og alvöruá. Það yrði ekki rekið fé yfir hana í dag.
Nú er bara að vona að akrarnir standi af sér úrhellið en hér í Eyjarhreppnum sáluga nær sunnan og suðaustan áttin sér ekki verulega á strik.
Ég náði að keyra út taðið/hálminn úr flatgryfjunni áður en ósköpin byrjuðu svo nú er bara að skella inn hálmrúllu á morgun svo allt verði nógu fínt áður en rolluatið hefst.
Atli er að smíða rollugrind á Pikkann því hann hefur mikilvægu hlutverki að gegna í ati haustsins.
Reyndar skaust hann í bæinn í gærkveldi til að athuga hvort hjúkkurnar og móðirin meðhöndli nú soninn örugglega rétt. Þar reyndist allt vera í góðu lagi.
Ég sleppti svo heita pottinum í kvöld.
Skrifað af svanur
15.09.2008 14:59
Eldur og brennisteinn
Ekki hafði ég fyrr sleppt orðinu eða síðasta bloggi út á netið, fyrr en fór að rigna alvörurigningu.
Síðan hefur hver alvörudemban rekið aðra og ljóst að nú þarf að huga að áfallahjálp fyrir þá byggræktendur sem minnst er á í síðasta bloggi.( Þessa með nöguðu neglurnar og baugana.)
Nú er allt að smella saman fyrir smalanir. Rafmagn komið á skógræktargirðinguna og veggirðingu svo gott sem lokið. (Það er eins gott að austurbakkarollurnar sem eru vanar að spígspora áhyggjulausar gegnum" rafmagnsgirðingarnar" séu ekki með veilu fyrir hjartanu þegar þær kynnast þessari. ) En langtímaspárnar eru ekki smalavænar. Það er Hafursfellið sem verður smalað í vikunni en það skiptist í tvö leitarsvæði. Stefnan er sett á fimmtudaginn . Ef vel gengur er hugsanlegt að ná báðum svæðunum en trúlega verður föstudagurinn nýttur líka.
Smalasettið mitt ,Vaskur og Assa.
Smalavestið og talstöðin verða nú skilin eftir heima í þetta sinn.
Síðustu tvö haust hefur þetta svæði verið smalað í foráttuveðri og nú heimta smalarnir almennilegt veður.
Þessvegna standa nú yfir samningaviðræður við veðurguðina.

13.09.2008 20:54
Sumaraukinnn..
Þó manni sýnist stöðugar rigningar í kortununum verður ekki mikið úr þeim þegar á hólminn er komið.
Það af haustinu sem liðið er hefur verið góð viðbót við frábært sumar, og kýrnar sem ekki fara út nema veðrið sé gott, viðra sig daglega. Reyndar var ákveðið að beita þeim á rýgresið sem annars hefði verið slegið í þriðja sinn.
Þar sem þessi spilda er ný fyrir þeim, úða þær rýgresið í sig en þær voru orðnar virkilega fúlar út í rýgresisshólfin sem verið var að skiptibeita þeim á í sumar.
Þó ekki sé kvartað undan veðrinu er því ekki að leyna að við byggræktendur eru orðnir pínu strekktir yfir þurrkleysinu. Núna er hluti akranna orðinn tökuhæfur í þreskinguna og uppskeran virðist góð eða mjög góð. Þeir sem urðu fyrir mesta foktjóninu í fyrra eru því farnir að naga neglurnar og komnir með bauga undir augun.
Og veðurfræðingarnir sýna enga miskunn og bæta gróflega í með rigningarspárnar.
Vonandi er ekkert að marka þá frekar en oft áður.
Nú er sem sagt beðið um 10 daga þurrk. Rétt er að taka fram að það á ekki að vera þurrkur með vindhraða uppá 25 m. sek.
Skrifað af svanur