Færslur: 2008 Júlí
14.07.2008 23:39
Reykjavíkin og rigningin.

Síðasti áningarstaðurinn í Suðursveit við Jökulsárlónið.
Það var brunað í bæinn í dag . Erindin voru nokkur en aðalerindið var að kaupa þvottavél í mjólkurhúsið.( mjaltaklútana.) Þó þvottavélin þar væri ung að árum var hún steinhætt að vera til friðs og umdeilanleg fjárfesting að kaupa viðgerð á tæki sem kostar ekki meira (virðist vera einnota dót.). Þó umhverfið sé trúlega ekki þvottavélavænt og erfiður þvottur að þvo 40 + þvottaklúta var ákveðið að kaupa "alvörumerki" núna og vita hvort það entist lengur.
Og þessi rigning sem við erum að fá er virkilega fín , ekkert of mikil og svo lítur út fyrir að seinnipartinn á morgun bresti á þurrkur sem hentar vel fyrir þá sem eiga eftir af fyrri slættinum. Líklega verður Hestamiðstöðvareigandinn æstur upp í að láta slá allt sitt í Hrossholti og Söðulsholti og spurning hvort hér verið tekinn rýgresis/byggakurinn en í vor gerðum við tilraun til að sá saman rýgresi og byggi til sláttar. Ætlunin er að slá akurinn a.m.k. tvisar og nú er hann að komast í sláttuhæft ástand. En við viljum vera öruggir með 3-4 daga þurrk á rýgresið því það verður rúllað beint úr skárunum.
Svo er plönuð hestaferð um helgin.

13.07.2008 22:01
Ættarmót .
Snilld fékk að hjálpa til við að koma kindunum á kerrunma.
Ég læt mig nú oftast hafa það að mæta á ættarmót minna nánustu til að halda friðinn.
Ég er hinsvegar innst inni, frekar ómannblendinn einfari og fjarri mér að viðhalda nema nauðsynlegustu ættartengslum, þó skömm sé frá að segja og þessi ágætu og bráðnauðsynlegu samkomur höfða takmarkað til mín.
Ættarmótið sem ég lenti á í gær var þó með þeim ánægjulegri. (Ég þori ekki að kveða fastar að orði, því nokkrir ættingjar mínir eru að slæðast hér inn á síðuna.)
Í stað minnar ágætu fjölskyldu voru Vaskur og smalastafurinn á pallinum og 5 kindur í kerrunni. Ég þurfti ekki að stoppa nema um hálftíma á ættarmótinu og það var ekki nóg með að mér væri borgað fyrir að fara aftur, heldur urðu allir svo glaðir að þeir klöppuðu fyrir mér.
Og ég hef ekki hugmynd um hvaða ætt var þarna á ferðinni.
12.07.2008 22:38
Rigningin og kýrnar..
Kýrnar urðu nú ekki svona glaðar þegar fór að rigna en myndin er kannski táknræn fyrir bændurnar.
Já það fór loksins að rigna og allir urðu glaðir nema ferðamennirnir. Ég stóð og horfði
á rýgresisakurinn og mér sýndist ég sjá stráin lengjast. Reyndar fannst mér dálítið svindl að vinir mínir( hinir líka) á austurlandi, sem ég held að séu farnir að bíða eftir þurrki skyldu líka fá rigningu en það er svo ótalmargt sem ég skil ekki í veðurfræðinni.
Nú er búið/verið að gelda upp kýrnar sem eiga að bera í sept. og fyrst í okt. og gengur misjafnlega. Það er svo byrjað að venja þær við rýgresið sem hefur sprottið hratt síðustu dagana þrátt fyrir þurrkinn. Rýgresið er ekki randbeitt heldur skipt niður í hólf sem duga þeim í nokkra daga í senn. Yfirleitt 6 hólf og þegar sprettan er örust hafa þær ekki við . Reyndar standa þær alltaf í heyi yfir nóttina og þegar rignir munu þær ekki stoppa lengi úti ef ég þekki þær rétt.
Hvað skyldi svo verða búið að rigna í marga daga þegar farið verður að kvarta yfir óþurrkunum??