02.07.2013 23:05
Já, já, - allt að gerast.
Það er nú ekkert forgangsmál að koma kúnum út en Því var samt hespað af fyrir nokkru.

Það kætir Þær samt alltaf, en eftir að lausagangan komst á eru Þær fljótar að róast niður.

Sumar Þurfa Þó að gera upp veturinn og klára Það oftast á fyrsta degi.

Það fór svo skemmtilega saman að gerði loksins Þurrk og allt var orðið vaðandi í grasi.
Nú Þarf bara tvo næstu daga Þurra og Þá verða vonandi heyskaparmálin í góðu horfi hér.

Þessi græni öldungur stendur enn fyllilega fyrir sínu Þó stundum vanti svona 30 hestafla viðbót undir húddið á honum í einstaka verkefni. Við höfum báðir fengið að snúast hraustlega síðustu sólarhringana.

Valtrinn gengur náttúrulega bara og gengur en Viconinn getur verið hrekkjóttari enda er verið að safna fyrir alvöru merki ,sem stokkið verður á um leið og Þar á bæ verður farið að framleiða fastkjarnavélar.

Búið að rúlla tvo hringi um kaffileyti í gær og allt laust síðan komið í plast fyrir miðnætti.
Svo voru slegnir um 18 ha. í gærkvöld og morgun.
Nú er bara að treysta Því að veðurfræðingarnir séu ekki alveg að spá rétt næstu tvo dagana.
Skrifað af svanur
26.06.2013 22:59
Uppáhalds, allir hinir og ótrúlegt einelti.
Já , sumarið tikkar áfram á ógnarhraða og nú fer að sjá fyrir endann á uppáhaldsmánuðinum mínum.
Gallinn við hann er sá að Því skemmtilegri sem hann er, Því fljótari er hann að líða.
Reyndar segja meinhornin að nú sé fyrsta haustlægðin að lemja á okkur en Það kaupi ég ekki.

Hér er verið að fara á Geithellisgrenið sem er nú svona málamyndagerningur. Þetta er eina grenið sem er farið ríðandi á.
Grenjavinnslunni er að mestu lokið enda var rólegt yfir svæðinu Þetta árið. Þó hafa fundist tvö ný gren og eitt er " bara " rétt ófundið en Það er að öllum likindum á Núpudalnum og er búinn að vera staðfestur grunur um Það í a.m.k. 3 ár.
Þetta er náttúrulega hámark ósvífninnar og sýnir hvað rebbarnir geta verið sérlega ósvífnir að brjóta mann niður með Þessum hætti. Þó Það komi Þeim í koll í orðsins fyllstu merkingu Þegar fer að líða á sumarið, spretta upp arftakar Þeirra næsta vor.

Trúlega hefur ungunum verið farið að fækka á svæðinu eða Þessi kappi verið hógvær í veiðunum Því oft hefur mann undrað hversu mörgum ungum, rebbarnir geta raðað uppí sig í veiðiharkinu.

Ég var svo gripinn með sem aðstoðargæd á Gullhringinn kringum Hausthúsaeyjar á laugardaginn. Hér koma menn í land á Suðurey eftir ógleymanlegt stuð á glerharðri Gullströndinni.

Nú var annaðhvort að duga eða drepast og ég ákvað að skella mér á hreindýr áður en ég væri kominn í hjólastól eða dauður úr elli.
Hér er verið að rembast við riffilprófið en ég hef ekki verið mjög ötull við að skjóta á eitthvað skífudót nema rétt til að tékka á hvort sjónaukinn sé að virka.
Einbeiti mér bara að vargfugli og rebbum.

Gamli góði Sakóinn minn er sem betur fer ekki mikið fyrir Það að missa frá sér særð dýr. 7 -9- 13.
Það er svo tímanna tákn að Þar sem ég lá og var að glíma við prófið, heyrði ég tófu gagga í fjallinu fyrir ofan mig.
Eitthvað samsæri í gangi hjá Þeim um að leggja mig í einelti.
Skrifað af svanur
17.06.2013 19:59
" Sleppitúrinn 2013 " .
Hrossin voru komin í aðhald og réttina við beitarhólfið á Staðarhrauni.
Þetta var Þriðji dagurinn og mesti gassagangurinn farinn af hrossum og mönnum.
Það var tékkað á hvort allar skeifur væru á sínum stað, framfætur stroknir til að fullvissa sig um að allt væri í sómanum fyrir átök dagsins og svo var farið að beisla Þá sem áttu fyrsta legginn.

Það var óvanalega mikið um skeifnavanhöld í ferðinni og Nonni fékk að spreyta sig á a.m.k. 4 hófum áður en lauk Þennan morguninn.
Hrossunum hafði verið safnað saman efst í Skorradalnum að Fitjum , í upphafi ferðar.
Þau komu víða að, allt vestan af Snæfellsnesi og austan undan Eyjafjöllum.

Hér er verið að lenda á næturstað að Heggstöðum í lok fyrsta ferðadags en svona veður var alla ferðina enda búið að semja um Það með löngum fyrirvara.

Það var samt gola alla dagana sem gerði ferðina bærilegri . Hér erum við komin undir Múlana vestan Grímstaða og farið að styttast í næturstað annan daginn. Það var margt um menn og hross á Grímstöðum, 3 hópar sem hittust Þar en umferðin á fjölförnustu reiðleiðunum er orðin svo mikil að menn eru ýmist með hóp á undan sér eða móti.
Ekki sérlega spennandi fyrir hópa að mætast, með fleiri tuga hrossa í rekstri.

Alltaf dálítil upplifun að fara einstigin gegnum hraunin að Grjótá og Hítará en Það sést enn glögglega hvernig gatan hefur verið rudd á sínum tíma Þar sem Þess Þurfti.
Göturnar er víða grýttar og leiðinlegar yfirferðar og mætti lagfæra þær umtalsvert með því að tína úr þeim lausa hnullunga.
Yrði örugglega skemmtilegur dagur fyrir unglingana í bæjarvinnunni hjá Borgarbyggð ef Þau fengju að spreyta sig á Því.
Djöfull er Þetta nú ömurlega leiðinlegt sagði einn félaginn við mig Þegar við riðum norður hlíðina í Kolbeinstaðarfjalli að Mýrdal..
Sólin skein og hæfilegur andvari í fangið til að halda hrossunum ferskum.
Útsýnið vestur yfir Löngufjörur með allan Snæfellsnessfjallgarðinn allt til jökulsins.
Nær blöstu við búgarðar vina minna á Austurbakkanum. gaman að geta litið svona niður á Þá einu sinni.
Og við vorum nýbúnir að losa okkur við stóðhóp sem var í rekstrarleiðinni með öllu fjörinu sem jafnan fylgir Því.
Okkur gat náttúrulega ekki liðið betur.

Aðalstopp dagsins var svo í Mýrdal Þar sem bóndinn tók okkur af mikilli alúð og sannri gleði yfir að sjá okkur.
Og ekki minnkaði kætin Þegar hann kvaddi okkur.

Þaðan var riðið að Syðri Rauðamel og til að komst hjá að fara gegnum túnið Þar sem gamla leiðin liggur, var tekinn krókur suður fyrir Það að vaðinu yfir Haffjarðará.

Hér er síðan næstsíðasta stopp leiðarinnar á Ytri Rauðamel Þar sem er næstfallegasta bæjarstæði á Íslandi. Nú var kominn slaki í mannskapinn , við á góðum tíma fyrir lokaslúttið og sólin skein sem aldrei fyrr.

Það var Því ákveðið að koma við hjá snillingunum á Hótel Eldborg og Þar beið okkar áningarhólf með öllu.
Já, hrossin voru alveg búin að blása mæðinni Þegar lagt var í síðustu 2 km. í Söðulsholt.

- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334