07.12.2013 21:05
Klaki í víni ,- nú eða vatnslögnum.
Gömlu fjósin kappeinangruð með lágmarks loftræstingu óðum að syngja sitt síðasta og í Þeirra stað koma rúmgóð hús, há til lofts og víð til veggja eins og Þar stendur.
Nú er vitað að kuldinn er ekkert vandamál gagnvart gripunum, meðan annar aðbúnaður er góður.
Góð loftræsting er svo auðvitað málið í almennilegum byggingum
En hún verður kannski óÞarflega góð Þegar norðanáttin nær sér vel upp, í 12 - 20 st. frosti
Í kuldakasti eins og sést fyrir endann á í bili a.m.k getur stundum kólnað óÞarflega mikið í sumum Þessarra bygginga og reyndar í allskonar húsum öðrum.
Bæði manna og dýra.
Þó gripunum líði ágætlega er vatn t.d. hundleiðinlegt ef hitastigið er komið niðurfyrir frostmarkið.
Reyndar ágætt í ákveðnar víntegundir ef ekki er notað of mikið af Því.
Sum flórsköfukerfin gefa svo skít í vinnuna Þegar hitastigið er komið vel niður.
Og Það er ekki mjög spennandi að dúlla við mjaltirnar í óprenthæfu hitastigi eins og einhverjir hafa upplifað í kuldaköstunum.
Maður veltir Því stundum fyrir sér hvernig staðan yrði víða, ef gerði alvöru frostakafla á alvöru vetri.
Það eru um 40 ár síðan ég naut Þess að moka flór síðast og fór náttúrulega létt með Það.
Síðustu dagana hef ég Þurft að rifja upp Þessa vinnu , ekki vegna kuldans heldur er græjan biluð .
Þetta er mun minna mál en ég hefði haldið, kannski vegna sköfunnar sem ég greip einhverntímann með mér úr rekka hjá Jötunn vélum, Þegar ég átti leið um Selfoss fyrir heillöngu.
Hef fundið á mér að flórskafan, sem mér finnst nú reyndar að hafi aldrei virkað eins og hún á að gera, ætti eftir að svíkja okkur.
Svo óheppilega vill til að yngri bóndinn sem missti algjörlega af Þessari Þroskandi vinnu í uppvextinum er bara á annarri löppinni Þessa dagana.
Í ljósi álits míns á sköfukerfinu góða, er ég samt sannfærður um að hans tími mun koma áður en líkur.

22.11.2013 08:04
Fjölbreytileiki og flóknar spurningar.
Veðurguðirnir kappkosta að sýna okkur allar útgáfur skammdegisveðranna af mikilli rausn nú um stundir.
Maður Þrammar til gegninga í sjókomu og röltir til baka í hellirigningu, eða öfugt.
Og lognið sveiflast fram og til baka á öllum skölum metrakerfisins sem aldrei fyrr.
Dalsmynnisbændur hafa staðið á útkikkinu til að reyna að stilla saman Þurrum kindum og uppteknum rúningsmanni, til að ná hreinni ull af Því fé enn er óhýst.
Þetta náðist svo að lokum, Þurrt fé inn og rúningsmaður daginn eftir.

Svo Þessar fengu fyrstu rúllu vetrarins í gærkveldi.
Það verður síðan svindlað aðeins á loftræstingunni til að halda hitastiginu notalegu fyrir Þær fyrstu dagana.
Það er búið að tæma haughúskjallarana hæfilega til að rúma mykju vetrarins og allt að komast í fastar skorður eftir haustamstrið.
Hundatamningar liggja að mestu niðri framyfir áramót en munu komast á fulla ferð í áliðnum jan.

Þessar blómarósir og vinkonur,Ronja frá Dalsmynni og Frökk frá Eyvindarmúla bíða Þess með óÞreyju að hefja námið. Það verður svo spurning hvernig gengur að koma Þeim að fyrir "aðkomunemendum" .
Enn meiri spurning hvort Þær nái í gegnum nálaraugað inn í ræktunardeildina.
Alltaf jafn spennandi Þessar ósvöruðu spurningar í ræktunarbrasinu.
En svörin stundum lítið spennandi.

16.11.2013 08:34
Smalahundafélag Íslands og hann Snati.
Þegar ég ákvað að koma lagi á fjárhundadæmið og koma mér upp góðum tömdum hundi , kom ekki annað til greina en sá/sú yrði að hafa marktæka ættbók í farteskinu.
Það var nú reyndar í framhaldinu sem ég uppgötvaði að örugg ættbók er kannski ekki örugg ávísun á góðan fjárhund.
En Það er nú önnur saga.
Það hefur gengið á ýmsu hjá Smalahundafélagi Íslands í gegnum tíðina, að halda úti góðu og aðgengilegu ættarforriti fyrir félagana.
Þar kom Þó að kröftugir stjórnarmenn spýttu í lófana, lögðust á árarnar og nú eru Þeir komnir í höfn með ættarforrit sem mun gera Það sem til er ætlast.
Ættarforritð SNATI .
Þeir náðu samningum við bændasamtökin um samstarf við að Þróa og síðan reka forritið með líkum hætti og hjá öðrum búgreinum.
Ég var einn Þeirra sem hafði gefist upp á skráningu gotanna í gamla kerfinu og átti Því nokkur óskráð got í handraðanum.
Nú er stefnan sett á að rækta útaf Tinna frá Staðarhúsum. Brasið við að koma honum inní ættbók varð til af Því að í ættartölunni sem ég fékk með honum hafði afinn verið skírður upp af Þeim sem eignaðist hann. Það var mikill léttir að sá reyndist skráður í ættbók undir öðru nafni sem ræktandinn gaf honum. Til að toppa Það reyndist Skessa gamla mín frá Hæl vera amma hans með goti undan Garry.
Eftir að hafa setið sveittur síðustu dagana eða vikurnar við að grafa upp ættir á einum sem lenti í ræktun hjá mér og koma gotunum síðan inn með tilheyrandi byrjunarörðugleikum er ég hæstánægður með sjálfan mig og tiltölulega sáttur við forritið .
Þar er Þó eins og alltaf, ýmislegt sem má einfalda og bæta.
Bændasamtökin halda utanum forritið og Þar er mikil eðalkona Hallveig Fróðadóttir sem leysir hvers manns vanda. Hilmar Sturluson í Móskógum leiddi mig hinsvegar í gegnum Þetta, en Það er opinbert skotleyfi á hann í málinu, enda var ég kominn með fastan tíma hjá honum á kvöldin.
Það eru einungis skráðir félagar í SFÍ sem geta grúskað í forritinu en aðrir geta skoðað hundaskrána með eigendum.
Fyrir grúskarana er aðgengilegt að leita upp einstaka hunda með Því að slá inn nafni. Síðan er hægt að slá upp öllum hundum frá tilteknum bæjum eða ræktanda.
Ættartré hunds í nokkra ættliði og afkvæmahóp er svo hægt að kalla fram.
Það er ljóst að verulegur hluti BC fjárhunda á landinu er utan skráningar sem er afleitt.
Mjög oft eru Þó til ættartölur sem í sumum tilvikum ná Þó nokkuð aftur.
Gætu dugað til að koma viðkomandi í ættbók.
Og menn Þurfa ekki að vera félagar til að skrá hundinn/tíkina inn.
Verið er að skoða leiðir til að taka inn góða hunda/tíkur með götótta ættarskrá. Þeir yrðu Þá að standast ákveðið gæðamat, sýna hæfileika til kindavinnu sem dygðu Þeim til skráningar.
Enn hefur tekist að reka forritið á félagsgjöldum skráðra félaga án skráningargjalda.
Ef upplýsingar mínar eru réttar kostar hinsvegar skráning BC ræktenda í ISDS um 130.000 isk.
Við, villimennirnir hér á skerinu myndum trúlega hiksta nokkrum sinnum á Því.
Já, nú er bara að nota skammdegið til að róta smaladýrunum sínum inn á ættbókina.
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334