27.11.2018 19:45
Örnámskeið, - og allskonar.
Það hefur allt verið að gerast hjá mér á árinu og margt skemmtilegt framundan.
Nú mun ég m.a. fara á fullt í að sinna aðaláhugamálinu.
Vinna að því að sem flestir hundar verði nothæfir í það sem þeir eru ræktaðir til.
Það geri ég með ræktun , tamningu og leiðbeiningum til þeirra sem það vilja.

Gotið undan Korku og Sweep mun koma sterkt inn næsta haust orðið tveggja ára.
Ég mun bjóða upp á örnámskeið þar sem 2 - 3 geta tekið sig saman og mætt fyrirvaralítið í hvolpavinnu og spjall.

Frumtamning í stóru útigerði.
Það verður í boði að koma hvolpi í 7 - 10 daga startvinnu og síðan væri eigandanum leiðbeint með framhaldið eins og þörf væri á.

Frumtamning í inniaðstöðu.
Meiri tamning fyrir þá sem það hentaði.
Reynslan hefur kennt mér hversu nauðsynlegt er í mörgum tilvikum að fylgja tamningu eftir með leiðsögn og eða námskeiðum.
Það verður gert.
Síðan verða trúlega í boði dagsnámskeið fyrir þá sem eru á svipuðu róli í þessu prógrammi.

Það er svo ljóst að svona þjónusta virkar einungis innan ákveðins radíuss frá mér.
Það vantar hinsvegar helling af nothæfum hundum innan hans svo það verður gaman að sjá hvað gerist. 
Skrifað af svanur
11.08.2018 21:37
Hvolpur til sölu.
SELDUR.
Ef þú ert í alvöru að spá í að koma þér upp góðum fjárhundi þá er rakki eftir af þessu goti.
Sjá HÉR
Móðirin er Aska frá Miðhrauni. Systir Smala og Korku að móðurinni.

Einstaklega skemmtileg á heimili. Glerhörð með mikinn áhuga og frábært meðfætt vinnulag. Fljóttamin og skemmtilegur fjárhundur.
Faðirinn er Sweep innfl.
Þetta er fjórða gotið hans hérlendis.
Hann er að koma prýðilega út í tveim fyrstu gotunum sem búið er að frumtemja. Gefur skemmtilega karaktera, hlýðna og vandamálalausa utan vinnu.( Eftir að þau eru komin til vits og þroska )
Ákveðin eða mjög ákveðin vinnudýr með allt í kollinum sem góður fjárhundur þarfnast. Yfirveguð og frekar skemmtileg í tamningu.
Vinnuskot með Sweep . HÉR
Rakkinn verður seldur með skilyrðislausri ábyrgð eins og allir hvolpar hjá mér. Hægt að skila honum og fá kaupverð endurgreitt til eins árs aldurs.
Hægt er að semja um tamningu ef áhugi er á því.
Allt frá einni viku til einhverra mánaða.
Tamningu fylgir svo dagsnámskeið í framhaldinu.
Leiðbeiningar um uppeldið og tamningu/þjálfun fylgir með í sölunni eins lengi og kaupandi hefur áhuga á slíku.
Verðið er aððeins 120.000kr + vsk.
Ef keyptur er td. pakki með mánaðartamningu og dagsnámskeiði er verðið 180.000 kr.+vsk. Þá yrði 90.000 kr +vsk.greiddur við afhendingu, hitt að lokinni tamningu og námskeiði.
Í því tilviki kæmi rakkinn í tamningu í feb- mars n.k. og svo myndi eigandinn hafa sumarið til að vinna hann fyrir haustið.
Frekari upplýsingar veittar annaðhvort í einkaskilaboðum á fésinu eða í síma 6948020.
Skrifað af svanur
09.04.2018 20:37
Mánaðartamning,- hverju skilar hún ?
Það er ekki einfalt að svara því.
Engir tveir hundar eins og eigendurnir eins misjafnir og þeir eru margir.
Eins og ég geri þetta í dag reyni ég að komast eins langt með hvolpinn í grunnskipunum og ég get.
Ég horfi samt líka á hvað ég held að henti eigandanum best að koma inn í hausinn á hvolpinum.
Það sem ég vil samt að sé komið, er að hægt sé að vinna við kindur án þess að þurfa taum.
Kalla hvolpinn til mín eða frá kindunum, vera kominn vel af stað með hliðarskipanir og byrjaður að senda hann út að sækja hóp.
Vel ræktaður hvolpur kemst yfirleitt létt í gegnum þennan pakka en öll vandamál, eitthvað sem þarf að venja hann af eða vinnulag sem þarf að kenna, er fljótt að setja strik í reikninginn.
Uppeldið getur skipt verulegu máli með árangurinn þessar vikur.
Hvolpur sem hefur hlotið gott uppeldi, verið sinnt og látinn hlýða þó það séu ekki nema einhver smáatrið í daglega lífinu skipta máli.
Kennt að teymast, bíða eftir matnum, fara ekki á undan út um dyr, ekki hleypt útúr búri fyrr en hann situr kyrr o.sv. frv. skipta ótrúlegu máli.
Svona uppeldi skilar móttækilegum hvolpi sem hlustar og hlýðir og er mun fljótari að læra.
Hvolpurinn sem er látinn ala sig upp sjálfur, sleppt út að morgni, -nú eða bundinn daglangt, gefið að éta en annars látinn eiga sig er lengi að læra að hlýða og hlusta og er frekar skilningssljór til að byrja með.
Ætla að sleppa að ræða hvað það þýðir ef hvolpurinn hefur fengið röng skilaboð í uppeldinu hvernig hann eigi að umgangast kindur. Bannað eitthvað sem hann á síðan að gera í upphafi tamningar
.

Hérna á eftir er myndband af tík sem ég er að skila af mér eftir mánaðartamningu. Ég er mjög ánægður með hvað hún er komin langt þó óvíst sé að eigandinn verði sammála
.

Þetta finnst mér ágætt dæmi um að farið var eftir leiðbeiningum um uppeldi ásamt því að " hausinn á þessari var í mjög góðu lagi".
Hún var með vinnulagið , góða heyrn og fljót að læra. Það er alltaf að bæta í áhugann en hún er ekki með þeim harðskeyttustu undan Sweep. Á samt eftir að læra að vaða í eftir skipun ef spilast rétt úr henni.
Hér er svo slóðin á bíóið.SMELLA HÉR
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334