10.02.2019 20:55
Tamningar og tíðarfar.
Eftir einmunatíð í tamningarnar fram að áramótum skipti um og síðan hafa snjóalög og ótíð slegið á alla útivinnu, nema í gerði við fjárhús.
Inniaðstaðan og gerðið nýtast vel í frumvinnuna en svo vil ég komast út á víðan völl með framhaldið.
Sem betur fer er stutt að senda heim í námsfrí það sem ég er með þessa dagana.
Svo er bara að bíða eftir betri tíð með blóm í haga eða þannig.
Systkinin sem ég hélt eftir úr síðasta goti eru komin vel af stað þó þau séu ekki nema sjö mánaða.
Þau eru tamin með það fyrir augum að lenda hjá fólki sem ekki er vant mikið tömdu.
Engin keppnistamning á þeim
.

Sem betur fer eru þau bæði með yfirvegað vinnulag , skemmtilega ágeng/ákveðin og meðfærileg á allan hátt.
Það er reynt að virkja þá eiginleika með lágmarksafskiptasemi ekki síst vegna þess hve þau eru ung.
Þegar alvöru útivinna hefst kemur í ljós hvernig þau bregðast við lengri vinnufjarlægð og þau slípuð meira í takt við það.
Til að gera eitthvað í harðindunum prófaði ég svo að vinna með þau saman í dag.
Hér sést tveggja mín. myndbrot af því. Smella Hér.
Skrifað af svanur
21.12.2018 21:35
Mikilvæg skipun eða ??
Það hefur talsvert vatn runnið til sjávar síðan helstu hundaskipanirnar hjá mér voru " urrdan eða bíttann ".
Nú er auðvelt að rökstyðja það að ýmsar skipanir séu þýðingarmeiri en aðrar. Í reynd er það þannig þegar menn hafa kynnst góðum tömdum hundum er erfitt að segja að þessi eða hin skipunin sé minna virði en önnur.
Ein af þeim skipunum sem ég nota ótrúlega oft er " aftur " skipun. Þ.e. hundurinn er látinn snúa frá kindum sem hann er að vinna við og finna kindur sem ýmist hafa orðið eftir í hita leiksins eða verið utan sjónsviðs hundsins í upphafi.
Þegar kominn er á ríkur skilningur milli smala og hunds er ótrúlega auðvelt að vísa hundi í rétta átt .
Þá skiptir litlu þó langt sé í kindurnar og hundurinn muni ekki sjá þær fyrr en eftir talsvert úthlaup.
Hér er örstutt myndbrot sem sýnir þessa skipun í vinnu.
Það sýnir jafnframt hvernig tveir tamdir hundar hafa lært af sjálfum sér að vinna saman að ýmsum verkefnum.
Það er svo sáraeinfalt að kenna þessa skipun og lítill tími sem fer í það.
Skrifað af svanur
17.12.2018 17:32
Já. vilt þú keppnistamningu eða ???
Tamning og tamning getur alveg verið sitthvað.

Þegar hvolpur er tekinn í 7 - 30 daga tamningu reynir maður að komast eins langt og hægt er með það sem nýtist eigandanum best.
Allt snurfus og pjatt er látið bíða.
Það fer svo eftir því hvernig hæfileikum nemandinn er gæddur hversu miklu tamningin skilar.
Í algjörum undantekningartilfellum spyr ég eigandann hvort það sé stefnt að því að keppnistemja dýrið. Þó ég viti kannski svarið skapast umræðugrundvöllur fyrir spjall um vandaðri tamningu.
Keppnistamning er bara orð sem ég nota fyrir metnaðarfulla tamningu sem skilar hundi sem ræður við fjölhæfa nákvæmnisvinnu við allt sem kemur uppá við notkun á einum hundi.

Keppnisbrautin er alltaf spennandi viðfangsefni en er fyrir mér lítils virði miðað við það sem alvöru/ erfiðar smalamennskur bjóða uppá .
Tekið skal fram að sé hundurinn ekki þeim kostum búinn að ráða við slíka vinnu skal leita að betri ræktun í verkefnið.
Hér er örstutt myndband af rúmlega 5 mánaða hvolpi sem er tilbúinn í létta grunntamningu.
Eftir nokkur skipti í kindavinnu þykist ég nokkurnveginn vita hvað hægt sé að gera úr honum.( Er sá fyrsti úr þriðja gotinu sem ég tem undan Sweep.
)

Ég mun temja hann þegar gefur,
fram á sumar . Í júlí mun hann væntanlega fara í reynsluvist til kaupanda. Næsta haust mun hann svo geta sitthvað í haustraginu, - ef guð lofar.

Þegar ég er að spá í hvolpana í upphafi er ég með allskonar viðmiðanir sem ég hef fyrir mig.
Þessi á bandinu Seigur frá Dalsmynni, er t.d. með einkunnina ákveðinn,- eða mjög ákveðinn fyrir eiginleika sem ég legg mikið uppúr.
Maxið hjá mér í því geni, er " glerharður.
Sú einkunn hentar ekki öllum notendum og næsta einkunn fyrir ofan er " bilaður í hausnum".
Ég er vaxinn uppúr því að leggja vinnu í dýr sem eru í þeim einkunnarskala.

Á þessu stutta myndbandi hér á eftir sjáið þið Seig sem er með gott vinnulag ( fyrir það sem hann er hannaður fyrir
. )

Yfirvegaður með ásættanlega hlýðni. Ekkert stress.

Mjög mikinn vinnuáhuga sem á eftir að aukast ,- samt án vandræða.
Þarna eru engin vandamál á ferðinni sem munu tefja tamninguna.
Dæmigert Sweepsafkvæmi með tíkum úr Tinnalínunni.. ( Með sárafáum + eða - undantekningum



Smella Hér.
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334