04.02.2015 20:43
Að lesa hundinn.
10 mánaða hvolpurinn var greinilega kominn með fínan áhuga.
Hann hafði komið til mín í tamningu daginn áður og nú var verið að meta stöðuna á honum og ákveða framhaldið.
Tamningin felst í stuttu máli í því að kenna nemandanum að nýta meðfædda innræktaða hæfileika sína í þágu smalans. Bregðast fljótt og örugglega við skipunum og vinna með sem skilvirkustum hætti að kindunum.
Þessi hvolpur yrði nokkuð þægilegur nemandi.
Hann hringfór kindurnar og hélt þeim síðan að mér, ekki mjög hraður en í góðu lagi. Öðruhvoru gaf hann í , stökk í hópinn og glefsaði en hékk samt ekki í þeim . Hann vann fullnærri en það yrði ekki vandamál.
Gömul mynd af hvolpi í fyrsta sinn í kindum.
Ég er alltaf undir þeirri pressu að skila árangri í tamningu og reyni í upphafi að meta hvaða aðferðir ég tel best henta hverjum hundi.
Þær eru misjafnar eins og hundarnir. Hefði þessi hundur t.d. sótt í hópinn og viljað reka hann frá mér eða bara djöflast í honum hefði ég séð fram á erfiða tíma með litlum árangri til að sýna eigandanum.
Mikil vinna í að kenna honum réttu vinnubrögðin áður en kæmi að því að leiða hann í gegnum vinnuskipanirnar. Reyndar óvíst að það tækist almennilega, eða borgaði sig.
Þarna gæti ég hinsvegar strax farið að komast í vinnuskipanaferlið fyrirhafnalaust og að nokkrum dögum liðnum myndi hvolpurinn vera farinn að átta sig á því að ég væri eitthvað að segja honum, og í framhaldinu læra að bregðast við því.
Þegar maður veit svo hvernig hvolpurinn bregst við hreyfingum kindanna er auðvelt að stjórna því með þeim, hvað hann gerir og segja svo skipanirnar á réttum tíma.
Hægri skipun æfð
Kindurnar til hægri , hvolpurinn hinumegin til vinstri fyrir þær. Kindurnar til vinstri, hvolpur til hægri o.sv.frv. Þegar smali og kindur stoppa , stoppar hvolpurinn líka og stoppskipun er gefin.
Eins og hjá mannskepnunni þarf námið að vera skemmtilegt og skammir og hávaði eru ekki inni lengur, ef hlutirnir eiga að ganga hratt og örugglega.
Skrifað af svanur
01.02.2015 20:24
Tóm sæla og hamingja.
Dagarnir lengjast og lengjast og það hefur alltaf jafn góð áhrif á mig.
Leiðindar veður og vetrarfar duga ekki til að eyða áhrifunum af því.
Inniaðstaðan er fín fyrstu vikuna en svo vil ég komast út, allavega öðruhvoru.
Hundatamningarnar eru ekki á áætlun vegna tíðarfars en ég legg til að þeir sem eiga bókað hjá mér haldi ró sinni, því um leið og sést framá að hægt verði að komast í útivinnuna fer allt á fullt.
Planið sem er að komast á lokastig, er að bæta við 6 svona búrum.
Þeir sem eiga styttra í mig munu komast að með innivinnuna fljótlega og svo styttist í stórbætta aðstöðu í búramálum nemendanna.
Það virkar mjög afkastahvetjandi þegar því máli lýkur.
Gemlingarnir úða í sig byggskammti dagsins
Gegningar og skepnuhöld eru í góða gírnum og tamningatryppin mín fjögur ekki alslæm samkvæmt tamningarfólkinu. Og ekki lýgur það .
Já það er segin saga að þegar kemur fram í feb. líður restin af vetrinum á örskotshraða.
Það fer nú ekkert á milli mála að þessar eru allar með tveimur. Hvorki meira né minna.
Nú styttist í að fósturvísateljarinn á Skörðum komi og athugi hvernig til hefur tekist við að koma lömbum í hjörðina. Þar sem nóg er til af fénaði í tamningarnar eru ekki krosslagðir puttar í þetta sinn, með óskir um hæfilega ,margar lamblausar.
Ekkert nema sæla og hamingja framundan .
Skrifað af svanur
27.01.2015 09:48
Taminn fjölhæfur BC í vinnu.
Set hér inn smá ( endursýnt ;) ) myndskeið í framhaldi af síðasta bloggi. Þarna er Korka frá Miðhrauni þriggja ára send eftir kindum í um 1 km. fjarlægð.
Ef þarna hefðu verið óþreyttar kindur hefði Korka bara verið send út og hún hefði komið með kindurnar án skipana. Hér var verið að gæta þess að setja þær gætilega af stað og koma rólega með þær, til að komast hjá hugsanlegum vandræðum.
Korka er undan Tinna frá Staðarhúsum og Tátu frá Brautartungu.
Þessar kindur voru með fleirum við erfiðar aðstæður og sluppu meðan verið var að ná hinum niður, en þær sjást síðast á myndskeiðinu.
Lýsingin á góða keppnis/smalahundinum í síðasta bloggi á ágætlega við Korku.
Skrifað af svanur
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334